Flug
151 152 153 154 155 156 157 158 159 … 173 ›
Rafsígarettur leyfðar í farþegaþotum Engar hömlur eru á því að hafa rafsígarettur meðferðis í handfarangri í farþegaþotum samkvæmt upplýsingum frá Isavia. Notkun þeirra um borð er hins vegar bönnuð. Innlent 14.9.2017 20:54
Icelandair hefur áætlunarflug til Dallas Icelandair hefur ákveðið að hefja heilsársflug til bandarísku borgarinnar Dallas á næsta ári. Flugið til Dallas hefst í maí 2018 og flogið verður fjórum sinnum í viku. Viðskipti innlent 14.9.2017 13:29
United hefur Íslandsflug í vor Bandaríska flugfélagið United Airlines mun hefja áætlunarferðir á milli New York og Keflavíkur í vor. Fjögur flugfélög bjóða nú upp á beint flug milli New York og Keflavíkurflugvallar. Viðskipti innlent 13.9.2017 09:51
Ráðherra reiðubúinn að hefja viðræður um framtíð Reykjavíkurflugvallar Í nýrri skýrslu um öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar kemur fram að öryggi þjóðfélagsins og flugöryggi gera það að verkum að tveir flugvellir verða að vera á Suðvesturlandi. Innlent 11.9.2017 16:23
Boða rannsókn á lágflugi við Hlíðarrétt Myndir af lágflugi tveggja manna flugvélar yfir fólki og fénaði á Hlíðarrétt í Mývatnssveit þykja gefa tilefni til skoðunar Samgöngustofu á því hvort reglur um lágmarkshæð hafi verið brotnar. Innlent 8.9.2017 21:46
WOW aflýsir ferðum til Miami vegna Irmu Um er að ræða flug sem áttu að fara frá Keflavíkurflugvelli á föstudag og frá Miami á laugardag. Innlent 7.9.2017 12:18
Gubbað á ganginum og klósettpappírinn kláraðist Flugmálayfirvöld í Kanada hafa hafið rannsókn á tveimur "ömurlegum“ flugferðum félagsins Air Transat eftir að farþegar hringdu ítrekað í neyðarlínuna. Erlent 1.9.2017 08:13
Farþegar WOW í Miami komast heim í dag WOW air sendir aukaflugvél til Miami til þess að sækja farþega sem hafa beðið þar síðan flugi þeirra var aflýst á þriðjudagskvöld. Innlent 31.8.2017 10:56
Biðu hvergi lengur en í Keflavík Undanfarin tvö ár hafa breskir flugfarþegar hvergi þurft að bíða lengur að meðtali en á Íslandi. Viðskipti innlent 30.8.2017 07:48
Fyrsta samflug þrista yfir Íslandi í sextíu ár Tveir fljúgandi forngripir af gerðinni Douglas DC-3 fóru í samflug í kvöld yfir Reykjavík og vestur á Snæfellsnes. Innlent 28.8.2017 21:56
Þrír þristar saman á Reykjavíkurflugvelli Sjaldséður viðburður verður á Reykjavíkurflugvelli um sjöleytið í kvöld þegar tveir þristar á áttræðisaldri, forngripir af gerðinni Douglas DC-3, fara í samsíða flug. Innlent 28.8.2017 16:44
Wow bætir við fjórum borgum í Bandaríkjunum WOW air hefur flug til St Louis, Cincinnati, Cleveland og Detroit. Viðskipti innlent 23.8.2017 11:24
Icelandair byrjar að fljúga til Cleveland á næsta ári Byrjað verður að fljúga í maí 2018 og verður flogið fjórum sinnum í viku. Viðskipti innlent 22.8.2017 13:34
Samið um leiguverkefni í Suður-Ameríku Loftleiðir Icelandic og suður-ameríska flugfélagið LAW hafa gert samning um leigu á Boeing 757-200 þotu frá og með október í vetur. Viðskipti innlent 21.8.2017 13:52
Icelandair endurskoðar umdeilda skilmála eftir kvartanir Stjórnendur Icelandair skoða afnám umdeildrar reglu í skilmálum fyrirtækisins sem veldur því að bókun fyrir báðar flugleiðir fellur niður í heild sinni ef fyrri ferðin er ekki nýtt af farþega. Neytendasamtökin hafa fengið ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum flugfélagsins. Innlent 20.8.2017 21:48
Primera Air: „Það er alltaf spurning hvað er nóg af upplýsingum“ Framkvæmdastjóri hjá Primera Air segir félagið vera með ferla sem eigi að tryggja upplýsingagjöf til farþega Innlent 20.8.2017 12:27
Íslendingar lýsa martraðarhelgi Primera Air Fjölmargir Íslendingar hafa orðið strandaglópar svo klukkustundum skiptir um helgina eftir ítrekaðar seinkanir Primera Air. Innlent 20.8.2017 10:30
Í fyrsta sinn sem Icelandair eltir Wow? Talið er ljóst að íslensku flugfélögin ætli að nýta sér brotthvarf hins gjaldþrota Air Berlin. Viðskipti innlent 20.8.2017 08:25
Fraktflugið upp um 40% með styrkingu krónunnar og Costco Fraktflutningur Icelandair Cargo hefur farið stigvaxandi undanfarin sex ár. Aukningin í júlí nam rúmum fjörutíu prósentum miðað við sama mánuð í fyrra. Framkvæmdastjórinn segir ástæðuna margþætta. Viðskipti innlent 16.8.2017 21:28
Draga til baka uppsagnir um 50 flugmanna Félagið sagði upp 115 flugmönnum í júní en um 520 flugmenn starfa hjá Icelandair. Viðskipti innlent 15.8.2017 15:44
Flýtir í undirbúningi orsök flugslyss á Vatnsleysuströnd Flýtir í undirbúningi og rangur aflestur eldsneytismælis kennsluflugvélarinnar TF-KFB eru talin hafa gert það að verkum að vélin nauðlenti á golfvellinum á Vatnsleysuströnd þann 29. júní 2014. Innlent 14.8.2017 10:52
Metfjöldi flugvéla um íslenska svæðið 20.265 flugvélar fóru um íslenska flugstjórnarsvæðið í júlímánuði. Er það í fyrsta sinn sem fjöldinn fer yfir tuttugu þúsund. Innlent 7.8.2017 20:31
Lenti með veikan farþega í Edinborg Vél WOW Air var á leið frá Íslandi til Düsseldorf var lent í Edinborg fyrr í dag eftir að farþegi um borð veiktist. Innlent 3.8.2017 12:09
Mögulegar tafir vegna herts eftirlits Landamæraeftirlit yfir ytri landamæri Schengen-svæðisins verður hert og mun breytingin einnig taka gildi á Íslandi. Innlent 7.7.2017 19:42
Gert að sitja með tveggja ára son sinn í flugi United Airlines Flugfélagið United Airlines er nú í miðju enn eins hneykslisins í fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Erlent 6.7.2017 20:45
Útlit fyrir enn eitt metið í farþegafjölda á Keflavíkurflugvelli Útlit er fyrir að enn eitt metið verði slegið á Keflavíkurflugvelli í þessum mánuði þegar um eða yfir milljón farþegar fara um flugstöðina. Innlent 6.7.2017 17:15
Telur rannsókn flugslyssins mikinn hvítþvott á Mýflugi Bróðir sjúkraflutningamanns sem lést í flugslysi við Akureyri sumarið 2013 dregur í efa getu rannsóknarnefndar flugslysa til að skila fullnægjandi niðurstöðum í slíkum málum. Innlent 30.6.2017 21:40
Flugmenn þreyttir á ástandinu Örnólfur Jónsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna sagði í samtali við fréttastofu að flugmenn væru orðnir þreyttir á ástandinu hjá Icelandair. Innlent 25.6.2017 16:57
Segir uppsagnir hjá Icelandair skýrast af árstíðasveiflu Icelandair hefur sagt upp 115 flugmönnum og auk þess tilkynnt 70 flugstjórum að þeir verði færðir niður í stöðu flugmanns næsta vetur. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. Viðskipti innlent 25.6.2017 11:32
Keflavíkurflugvöllur opnar aftur flugbraut sem lokuð hefur verið í sex vikur Eftir framkvæmdirnar er norður-suðurbrautin aftur komin í eðlilega lengd eða rúma 3000 metra. Næst á dagskrá er að malbika austur-vesturflugbrautina og verður hún lokuð fram að hausti. Innlent 23.6.2017 13:47
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið