Rússland
1 2 3 4 5 6 … 113 ›
Vill vita hvað Úkraínumenn vilja gera við bandarískar stýriflaugar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætli að selja Úkraínumönnum Tomahawk stýriflaugar. Næstum því. Fyrst vilji hann ganga úr skugga um hvað Úkraínumenn vilji gera við þær. Erlent 6.10.2025 23:01
Miður að börn fylgi foreldrum en ekki öfugt Gjörðir íslenskra stjórnvalda gætu leitt til þess að börn verði tekin af foreldrum sínum, sem mögulega bíður fangelsisvist. Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar segir aumt að stjórnvöld sendi tveggja vikna börn úr landi undir forsæti flokksins. Innlent 5.10.2025 20:52
Þrjátíu særðust í drónaárás á farþegalest Að minnsta kosti þrjátíu særðust í drónaárás Rússa á lestarstöð í Úkraínu. Úkraínuforseti kallar eftir að vestræn ríki standi við yfirlýsingarnar sínar. Erlent 4.10.2025 16:53
Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Þjóðaröryggisráð Íslands kom saman í dag en vinna er þegar hafin við að efla varnir gegn fjölþáttaógnum að sögn utanríkisráðherra. Betur má ef duga skal en til standi að efla tækni, eftirlits-, greiningar- og viðbragðsgetu. Rússar heyja fjölþáttastríð gegn Vesturlöndum að sögn dönsku leyniþjónustunnar en tilfellum óvelkominnar drónaumferðar í Evrópu heldur áfram að fjölga en Rússar halda áfram að hafna ásökunum um að bera ábyrgð. Innlent 3.10.2025 19:53
Vísa frá máli á hendur skipverjum sem voru taldir hafa slitið sæstrengi Finnskur dómstóll vísaði frá máli ákæruvaldsins á hendur þremur skipverjum olíuflutningaskips sem sleit fimm sæstrengi síðasta vetur á þeim forsendum að hann hefði ekki lögsögu í málinu. Skipið er talið hluti af svonefndum skuggaflota Rússa. Erlent 3.10.2025 15:14
„Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir heiminn vera að ganga í gegnum miklar og hraðar breytingar og hann sé þegar orðinn fjölpóla. Í ræðu sem hann hélt á ráðstefnu í Rússlandi í gær og ummælum í pallborðsummælum sagði Pútín meðal annars að ríki Evrópu væru mörg í stríði við Rússland en það væri fáránlegt að halda að Rússar myndu ráðast á önnur ríki. Erlent 3.10.2025 14:36
Rússar meina kvikmyndagerðarmanni að koma til Íslands Rússneskur kvikmyndagerðarmaður, sem sýnir heimildarmyndina Smákarl gegn Pútín á RIFF, nær ekki að fylgja myndinni til Íslands þar sem afgreiðslu vegabréfs hans „hefur verið frestað“ af rússneskum yfirvöldum. Bíó og sjónvarp 2.10.2025 12:17
Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Yfir 45 Evrópuleiðtogar funda nú í Kaupmannahöfn, þar sem málefni Úkraínu og ögranir Rússa í garð nágrannaríkja sinna verða aðalumræðuefnið. Erlent 2.10.2025 10:43
Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Tveggja vikna tvíburum og tveggja ára bróður þeirra var á mánudag vísað frá Íslandi ásamt foreldrum sínum og þau send til Króatíu. Amma þeirra, frændi og frænka hafa haft alþjóðlega vernd hér á landi í nokkur ár en lögfræðingur fjölskyldunnar segir Útlendingastofnun hafa neitað að upplýsa króatísk stjórnvöld um mögulega fjölskyldusameiningu. Innlent 1.10.2025 21:38
Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Franski sjóherinn ruddist um borð í olíuskip um helgina sem talið er vera hluti af „skuggaflota“ Rússa. Yfirvöld í Frakklandi gruna að áhöfn skipsins hafi skotið drónunum sem sáust á himni yfir Danmörku í síðustu viku. Frakklandsforseti kveðst „varkár“ um að tengja skipið beint við drónabröltið. Erlent 1.10.2025 18:05
Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið Kælikerfi kjarnorkuversins í Sapórisjía í Úkraínu eru enn keyrð á ljósavélum, rúmri viku eftir að síðasta rafmagnslínan í kjarnorkuverið slitnaði. Yfirmaður Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA) segir ástandið alvarlegt og nauðsynlegt að tengja orkuverið aftur við stöðugt rafmagn til að draga úr hættunni á því að kjarnakljúfar orkuversins bræði úr sér, með tilheyrandi hamförum. Erlent 1.10.2025 16:51
Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Framleiðslugeta Rússa á olíu hefur dregist verulega saman og er það að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnslur og tengda innviði. Langan tíma gæti tekið að leysa vandamálið en fregnir af löngum röðum við bensínstöðvar verða sífellt algengari og bensínverð hefur hækkað mjög. Viðskipti erlent 1.10.2025 16:04
Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. Erlent 30.9.2025 10:37
Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Ríflega sjö af hverjum tíu svarendum í skoðanakönnun Gallup segjast nú telja líklegt að hernaður Rússa í Úkraínu leiði til átaka í fleiri löndum. Hlutfallið hefur aukist en nýlega hefur lofthelgi nokkurra evrópskra ríkja verið rofin af rússneskum loftförum. Innlent 30.9.2025 09:42
„Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið,“ sagði Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, á viðburði í Dusseldorf í gær og vísaði þar til sambýlis Evrópu við Rússland. Erlent 30.9.2025 08:52
Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Lögreglan hefur að minnsta kosti tvisvar á síðustu tveimur vikum brugðist við tilkynningu um dróna á sveimi við Keflavíkurflugvöll, annars vegar innan haftasvæðisins og hins vegar utan þess. Í báðum tilfellum fann lögreglan ekki meinta dróna. Lögreglustjóri segist samt ekki merkja nokkra fjölgun á slíkum atvikum. Innlent 29.9.2025 18:16
Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Aðgerða og Samstöðuflokkur (PAS) Moldóvu hlaut 50,03 prósent atkvæða í þingkosningum um helgina, þegar 99,5 prósent atkvæða höfðu verið talin. Erlent 29.9.2025 06:47
Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Danskar orrustuþotur hafa verið á sveimi yfir Borgundarhólmi í kvöld. Í Noregi hefur þurft að snúa tveimur flugvélum við í dag vegna tilkynninga um drónaumferð við flugvelli. Erlent 28.9.2025 22:38
Óttast úrbræðslu vegna rafmagnsleysis í kjarnorkuveri Kjarnorkuverið í Sapórisjía í Úkraínu hefur nú verið ótengt í fimm daga og kælikerfi þess keyrt með ljósavélum. Auknar áhyggjur eru uppi um öryggi kjarnorkuversins en Úkraínumenn og Rússar skiptast á að kenna hvor öðrum um ástandið. Erlent 28.9.2025 13:21
Sjálft lýðræðið undir er Moldóvar ganga til kosninga Moldóvar ganga til þingkosninga í dag og að sögn sitjandi forseta er framtíð lýðræðis í landinu undir. Skoðanakannanir gefa til kynna að stjórn Evrópusinna og standi hnífjafnt en stjórnarandstaðan hefur verið sökuð um að þiggja tugi milljarða króna af Rússum. Erlent 28.9.2025 11:24
Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt einhverjar umfangsmestu loftárásir á Úkraínu hingað til. Árásirnar stóðu yfir í rúma tólf tíma og notuðust Rússar við nærri því sex hundruð sjálfsprengidróna og tæplega fimmtíu eldflaugar af ýmsum gerðum, þar á meðal ofurhljóðfráar stýriflaugar. Erlent 28.9.2025 07:52
Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Tilkynningum um rússneska dróna eða rússneskar herþotur inn í lofthelgi eða á loftvarnarsvæðum ríkja Atlantshafsbandalagsins hefur náð nýjum hæðum í þessum mánuði. Þetta hefur varpað ljósi á holur í vörnum NATO og í senn vakið spurningar um hvað ráðamönnum í Rússlandi standi til. Erlent 27.9.2025 16:01
Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar „Ég var um borð í vél á leiðinni frá Færeyjum til Kaupmannahafnar þetta kvöld. Allt var kyrrt og hljótt, nema rétt áður en við áttum að lenda kemur tilkynning frá flugmanninum um að við getum ekki lent vegna dróna yfir flugvellinum.“ Erlent 27.9.2025 08:01
Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, segist ekkert óttast eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lét ákæra hann í gær. Hann sé saklaus og hafi tröllatrú á dómskerfinu. Erlent 26.9.2025 09:11
Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Utanríkisráðherra Rússlands segir að Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið hafi lýst yfir raunverulegu stríði við Rússland, í gegnum Úkraínu. Á fundi utanríkisráðherra G20 ríkjanna svokölluðu sagði Sergei Lavrov einnig að Vesturlönd bæru ábyrgð á innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 25.9.2025 16:53
Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Volodymyr Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Rússlandsforseti muni auka og breiða út stríðsresktur sinn verði hann ekki stöðvaður. Stríðið væri knúið áfram af nýrri vopnatækni og gervigreind. Alþjóðalög hefðu ekkert gildi án valdamikilla vina og vopna. Þetta kom fram í ávarpi hans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í morgun. Erlent 24.9.2025 15:06
Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Ráðamenn í Rússlandi gefa lítið fyrir þau ummæli Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um að Úkraínumenn geti sigrað Rússa. Rússar muni sigra Úkraínu, af því þeir eigi engra annarra kosta völ og ætla þeir því ekki að hætta hernaði sínum í Úkraínu fyrr en markmiðum þeirra hafi verið náð. Erlent 24.9.2025 10:38
Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Rússa í afar erfiðri stöðu efnahagslega. Áralangt stríð hafi ekki skilað þeim neinu og aðeins afhjúpað hernaðarlega veikleika þeirra. Erlent 24.9.2025 06:26
Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Starfandi forsætisráðherra lítur ólöglega drónaumferð í Evrópu grafalvarlegum augum. Hún segir Íslendinga þurfa að átta sig á gjörbreyttu landslagi og vera vel á verði. Innlent 23.9.2025 11:59
Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að hermenn og flugmenn ríkisins muni ekki hika við að skjóta niður hluti sem eru óvelkomnir í lofthelgi Póllands og taldir eru ógna öryggi fólks. Hann sagði þó einnig að stigið yrði varlega til jarðar í óskýrum aðstæðum. Erlent 22.9.2025 16:23