Svíþjóð

Svíþjóð

Höfuðborg: Stokkhólmur. Mannfjöldi: 10,6 milljónir (2025). Flatarmál: 450.295 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Arnór Sig kominn á fast

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson er kominn á fast með tónlistarkonunni Thelmu Tryggvadóttur. Arnór hætti með hinni sænsku Sögu Palffy fyrir tveimur árum og var um tíma að hitta bresku Love Island-stjörnuna Ellu Buffin.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kælar mat­vöru­verslana hakkaðir á ný

Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Mið­flokkurinn fær um­boðið

Leiðtogi Miðflokksins fékk umboð til stjórnarmyndunar í Svíþjóð í dag. Jafnaðarmönnum hafði ekki tekist að klambra saman ríkisstjórn á þeim rúma mánuði sem er liðinn frá kosningum.

Erlent
Fréttamynd

Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi

Kona á þrítugsaldri er alvarlega slösuð í kjölfar skotárásar í íþróttahúsi í Älvsjö í suðurhluta Stokkhólms í gærkvöldi. Tveir ungir karlmenn voru snemma í morgun handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald samkvæmt vef SVT. Fjöldi var yfirheyrður í nótt vegna málsins og mennirnir handteknir í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Anders­son hafnað í sænska þinginu

Tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra Svíþjóðar var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu nú rétt áðan. Niðurstaðan kemur lítið á óvart en borin var fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem aðeins væri skipuð fulltrúum Jafnaðarmannaflokksins.

Erlent
Fréttamynd

At­kvæða­greiðsla boðuð í þrá­tefli eftir sænsku kosningarnar

Sænska þingið greiðir atkvæði um hvort að Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna, njóti trausts til að verða forsætisráðherra á sænska þinginu á fimmtudag. Ekkert gengur þó hjá Andersson að mynda ríkisstjórn og ljóst er að hún fái ekki meirihluta í atkvæðagreiðslunni.

Erlent
Fréttamynd

Verð­launaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki sam­tímans

Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til bættra hagstjórnartækja samtímans. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum.

Erlent
Fréttamynd

Fær auka­dag til stjórnar­myndunar

Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Lífið
Fréttamynd

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Menning
Fréttamynd

Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö

Karlmaður á sextugsaldri er í haldi sænsku lögreglunnar grunaður um að hafa stungið konu sem var einnig á sextugsaldri til bana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í morgun. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og ná af honum hnífi.

Erlent
Fréttamynd

Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. 

Innlent
Fréttamynd

Fær um­boðið í fangið fjórum dögum eftir upp­gjöf

Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn.

Erlent
Fréttamynd

Sláandi hug­myndir ís­lenskra karla um of­beldi

Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Svör þeirra skera sig einnig úr þegar kemur að spurningum um lýðræði.

Innlent
Fréttamynd

Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga

Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum.

Erlent