

Eyleif Ósk er 25 ára gömul og starfar sem flugkennari og flugmaður í Svíþjóð, þar sem hún sérhæfir sig í að fljúga rafmagns flugvélum. Eftir að hafa spurst fyrir hér heima segir hún ljóst að hún sé fyrsti rafmagns flugmaður Íslands. Blaðamaður hafði samband við Eyleif og fékk að skyggnast inn í hennar spennandi heim.
Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á að ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini verði dæmdur í fimm ára fangelsi vegna grófra líkamsmeiðinga á þremur einstaklingum sem fengu grædda í sig plastbarka hjá lækninum. Sjúklingarnir létust allir fáeinum mánuðum eftir aðgerðirnar.
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, átti samtöl við leiðtoga Svíþjóðar og Finnlands í dag, þar sem umræðuefnið voru umsóknir ríkjanna um aðild að Atlantshafsbandalaginu og andstaða Tyrklands við inngöngu þeirra.
Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu.
Svíar og Finnar hafa formlega skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.
Núna hafa ríkisstjórnir Svíþjóðar og Finnlands samþykkt að sækja um aðild að hernaðarbandalaginu Nató og ríkisstjórn Íslands lýst því yfir að hún muni styðja þá umsókn. Þessi umsnúningur í utanríkisstefnu þessara áður hlutlausu landa kemur kannski ekki mjög á óvart. Bæði löndin hafa unnið náið með Nató síðan Kalda stríðinu lauk og í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu hefur orðið umsnúningur í afstöðu almennings til aðildar.
Utanríkisráðherra segir óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá vegna umsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún gerir ráð fyrir að málið verði leyst.
Sænska Eurovision stjarnan Robin Bengtsson var staddur á Íslandi um helgina þar sem hann kom fram á árshátíð Arion banka sem haldin var í Kórnum. Hann nýtti ferðina til þess að kíkja í Bláa lónið með konunni sinni, dansaranum Sigrid Bernson.
Sænski handknattleiksþjálfarinn Bengt Johansson, sem stýrði sænska karlalandsliðinu á sannkölluðu gullaldarskeiði þess í lok síðustu aldar, er látinn.
Fyrsti dagur okkar á Eurovision var heldur betur viðburðarríkur. Við mættum í blaðamannahöllina og tókum púlsinn á Kristínu Kristjánsdóttur hjá FÁSES, félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, hefur verið ráðinn til háskólasjúkrahússins Karolinska í Stokkhólmi í Svíþjóð sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga.
Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir ekki verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort ríkið eigi að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO) eða ekki.
Sænska listakonan Ann Larsson-Dahlin opnar listasýningu á Íslandi um helgina í sal Grásteins. Hún er leiðandi afl í fagi vatnslitamálara og hefur hlotið viðurkenningu um allan heim fyrir verk sín.
Lögreglan í Svíþjóð hefur til rannsóknar karlmann sem talinn er hafa nauðgað konu og ýtt henni í gjótu eftir að hún hafnaði bónorði hans. Konan fannst á föstudaginn eftir að hafa legið í gjótunni í tvo daga.
Finnar og Svíar stefna að því að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu samtímis. Umsóknir ríkjanna gætu borist strax í næsta mánuði.
Meirihluti Svía er hlynntur aðild að Atlantshafsbandalaginu samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem meirihluti íbúa hefur verið fylgjandi aðild að bandalaginu.
Dansk-sænski hægriöfgamaðurinn Rasmus Paludan og flokkur hans Stram kurs munu bjóða sig fram í sænsku þingkosningunum sem fram fara í september næstkomandi.
Páskahelgin í Svíþjóð hefur einkennst af ofbeldisfullum átökum á milli lögreglu og mótmælenda víða um landið. Einn er grunaður um manndrápstilraun á hendur lögreglumanni og fleiri en fjörutíu hafa verið handteknir. Rasmus Paludan, danskur róttækur hægrimaður, á töluverðan hlut að máli.
Á þriðja tug lögreglumanna og 14 mótmælendur eru slasaðir eftir óeirðir víða um Svíþjóð um helgina. Óeirðirnar vöknuðu í kringum Kóranbrennu öfga-hægri stjórnmálamannsins Rasmus Paludan. Lögregla telur að skipulögð glæpagengi hafi tekið þátt í árásum á lögreglumenn.
Sigurlaug Sara tók Stökkið til Stokkhólms í miðjum heimsfaraldri árið 2020 með kærastanum sínum Ásgeiri Pétri þar sem hann stundar sérnám í svæfingalækningum á Karolinska og hún stundar mastersnám í stafrænni stjórnun.
Miklar óeirðir hafa átt sér stað víðsvegar í Svíþjóð undanfarna daga. Danski hægriöfgaflokkurinn Stram Kurs skipulagði útifundi í nokkrum borgum þar sem eintak af Kóraninum var brennt.
Stjórnmálafræðiprófessor telur að Ísland þurfi að vera viðbúið því að verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Rússa, ef Finnland og Svíþjóð sækjast eftir aðild að NATO. Velta megi fyrir sér hvort Ísland sé „veikasti hlekkurinn í varnarkeðju NATO.“
Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja báðir að öryggislandslag Evrópu hafi tekið grundvallarbreytingum með innrás Rússa í Úkraínu. Það geti leitt til þessa að bæði ríki sæki um aðild að NATO, Atlantshafsbandalaginu.
Nyamko Sabuni, formaður Frjálslynda flokksins í Svíþjóð, hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að láta af embætti formanns. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð næsta haust og hafa skoðanakannanir síðustu misserin allar bent til að mikil hætta sé á að flokkurinn muni detta út af þingi.
Umbra, Blood Harmony og Svavar Knútur munu koma fram á Nordic Folk Alliance tónlistarhátíðinni í ár. Öll eru þau þakklát fyrir tækifærið og þennan stóra vettvang til að koma sér á framfæri erlendis.
Sænski grínistinn Sven Melander er látinn, 74 ára að aldri. Hann hafði glímt við krabbamein um nokkurt skeið og segir í tilkynningu að hann hafi andast á heimili sínu í faðmi fjölskyldu sinnar.
Rússneskar orrustuþotur sem flogið var inn í lofthelgi Svíþjóðar í byrjun mánaðarins báru kjarnorkuvopn. Með þessu eru Rússar sagðir hafa viljað ógna Svíum en um þetta leyti var verið að tala um aukinn áhuga á NATO-aðild í Svíþjóð og Finnlandi.
Pólverjar tryggðu sér sæti á HM í Katar með 2-0 sigri gegn Svíum í úrslitaleik umspils í kvöld.
Svíar eru á leið í hreinan úrslitaleik um sæti á HM í Katar eftir 1-0 sigur gegn Tékkum í framlengdum leik í kvöld.
Árásarmaðurinn sem myrti tvo kennara í Malmö á mánudag vildi sjálfur verða kennari. Starfsfólk skólans hafði margsinnis tilkynnt um einkennilega hegðun hans áður en árásin átti sér stað.