
Reykjavík

„Valdakerfin okkar eru enn að bregðast þolendum“
Druslugangan var gengin í dag í tíunda sinn eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldurs. Hundruð voru saman komin við Hallgrímskirkju til að ganga niður að Austurvelli til samstöðufundar.

Sænsk fjölskylda málaði yfir antikrist við Grafarvogskirkju
Skemmdarvargar máluðu orðið „antichrist!“ (e. antikristur) á hinseginfána sem búið er að mála á gangstéttina fyrir utan Grafarvogskirkju. Sænsk fjölskylda bauðst til að laga fánann og bjargaði málunum á mettíma.

Druslugangan haldin í tíunda sinn
Druslugangan var haldin í tíunda sinn í dag eftir tveggja ára hlé. Mikill fjöldi fólks safnaðist saman við Hallgrímskirkju og gekk að Austurvelli þar sem var haldinn samstöðufundur með ræðuhöldum og tónlistarflutningi.

Druslugangan haldin í dag: „Það er hiti og fólk er tilbúið að berjast“
Druslugangan verður haldin í dag í fyrsta skipti eftir tveggja ára hlé í heimsfaraldri. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag og niður á Austurvöll þar sem efnt verður til samstöðufundar með ræðuhaldi og tónlistarflutningi.

Sparkaði í dyraverði og lögreglumenn
Óskað eftir aðstoð lögreglu að á skemmtistað í miðbænum vegna tveggja einstaklinga sem voru til vandræða. Annar einstaklingurinn handtekinn en hann er gurnaður um að hafa sparkað bæði í dyraverði og lögreglumenn en einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Tælandi tölvutorg eða raunverulega vinsæl torg?
Berleggjuð kona í hvítum kjól og sambýlismaður með uppbrettar skyrtuermar og sólgleraugu eiga í djúpum samræðum á rölti sínu um bæinn. Skammt frá heldur maður ástúðlega utan um unnustu sína á meðan þau labba í takt yfir götuna. Á undan þeim labbar kona með sólhatt og bók í hönd með ekkert nema í slökun á dagskrá. Það er heitt og logn. Hvert sem litið er fallegt, léttklætt og hamingjusamt fólk. Allt iðar að lífi við þetta velheppnaða torg i hjarta Reykjavíkur. Eða hvað?

Stal snyrtivörum að verðmæti tæpra tvö hundruð þúsund króna
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir þjófnað í verslunum Hagkaups, IKEA og ÁTVR. Þá er hann einnig ákærður fyrir tvö umferðarlagabrot.

Starfsemi Hjallastefnunnar flyst tímabundið í Skógarhlíð
Skólastarf leikskólans Öskju og Barnaskólans í Reykjavík flyst tímabundið í Skógarhlíð og mun skólastarf þar hefjast að loknum sumarleyfum. Foreldrar barna í Öskju fá undanþágu á uppsagnarfresti á samningi við aðra leikskóla borgarinnar kjósi þeir að börnin haldi áfram dvöl þar.

Á brattann að sækja en Hjartagarðurinn sé ekki misheppnaður
Rekstraraðilar í Hjartagarðinum eru ósammála borgarfulltrúa um að torgið sé misheppnað, eftir þær breytingar sem þar hafa orðið á undanförnum árum. Svæðið sé ekki jafn laust við mannlíf og fólk tali oft um.

Veitingamenn segja menningarskipti eiga sér stað í íslensku næturlífi
Veitingamenn segja nokkrar breytingar hafa orðið á skemmtanalífi í miðbænum eftir að faraldrinum lauk. Fólk fari nú oft fyrr heim, sé rólegra og djammið dreifist betur yfir vikuna.

Hefja athugun á starfsemi tveggja vöggustofa
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að skipa nefnd um heildstæða athugun á starfsemi vöggustofu að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins. Börn sem dvöldu á vöggustofunum hafa bent á að sum barna hafi hlotið varanlega skaða vegna rofs á tilfinningalegum þroska þeirra.

Miami lokað og nýs eiganda leitað
Skemmtistaðurinn Miami á Hverfisgötu hefur verið lokaður frá byrjun júlí og nú er nýs eiganda leitað til þess að taka við rekstri skemmtistaðarins.

Sameina menningu, ferðamál, íþróttir og tómstundir undir eitt svið
Borgarráð samþykkti í dag að sameina menningar- og ferðamálasvið (MOF) og íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR). Markmiðið er að styrkja málaflokkana með því að nýta samlegð í innviðum.

Óvissa um hjólhýsasvæðið í Laugardal sé kvíðavaldandi
Tólf manns hafa kosið að búa í hjólhýsabyggðinni í Laugardal. Mikil óvissa ríkir um framtíð svæðisins þar sem einungis eru gerðir skammtímaleigusamningar við íbúa og til stendur að loka svæðinu. Borgarfulltrúi segir óvissuna valda íbúum kvíða.

Druslugangan haldin eftir tveggja ára hlé: „Við erum enn að ræða sömu hlutina og sömu sögurnar“
Druslugangan fer fram á laugardaginn eftir tveggja ára hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Einn skipuleggjenda göngunnar segir gönguna mikilvæga til að sýna að samfélagið samþykki ekki ofbeldi.

Druslugangan haldin á ný
Nú á laugardaginn, þann 23. júlí, verður samstaða með þolendum kynferðisofbeldis sýnd í verki á nýjan leik þegar við göngum saman frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll kl. 14:00.

Misheppnuð tilraun til að kveikja líf
Hjartagarðurinn, torg á milli Hverfisgötu og Laugavegs, hefur ekki beint slegið í gegn hjá borgarbúum og hefur torgið staðið nánast autt frá því framkvæmdum lauk. Umhverfis- og skipulagsráð er meðvitað um vandann og borgarfulltrúi segir torgið misheppnaða tilraun til að kveikja líf.

Kaup ríkisins á hluta nýbyggingar Landsbankans enn til skoðunar
Viðræður hafa farið fram milli ríkisins og Landsbankans um kaup þess fyrrnefnda á 6500 fermetra hluta nýbyggingar Landsbankans við Austurhöfn. Kaupin eru enn til skoðunar og vonast er til að niðurstaða fáist á næstu vikum.

Einn stunginn í vopnuðu ráni í Reykjavík
Lögreglu var tilkynnt um vopnað rán í Reykjavík snemma í morgun. Tveir aðilar heimtuðu þar fíkniefni af tveimur öðrum. Átök komu upp á milli mannanna og hlaut eitt fórnarlamba ránstilraunarinnar stungusár á handlegg. Árásaraðilarnir voru þó handteknir og vistaðir í fangageymslu. Hinn slasaði fór með sjúkrabíl á bráðamóttöku.

Grafa brann í Grafarholti
Eldur kom upp í lítilli gröfu í Grafarholti í dag. Slökkviliðið er nú á svæðinu og er búið að slökkva eldinn.

Breiðablik segir orðaval umræðu ekki endurspegla félagið
Fyrr í kvöld sendi knattspyrnudeild Breiðabliks frá sér tilkynningu vegna fréttaflutnings um bréf þjálfara hjá félaginu vegna mætingu stúlkna á viðburði ReyCup. Deildin segist harma það orðaval sem fram komi í umræðunni.

Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng
Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum.

Evrópskir ferðamenn fegnir að komast í svalann á Íslandi
Greinilegt er að margir þeirra evrópsku ferðamanna sem komnir eru hingað til lands eru fegnir að vera lausir undan ofurhitanum á meginlandinu og í Bretlandi. Við hittum nokkra þeirra fyrir í miðbæ Reykjavíkur í dag.

„Það að fá svona klapp á bakið er alveg ómetanlegt“
Níutíu ára afmæli listamannsins Erró var fagnað með pompi og prakt í Listasafni Reykjavíkur í dag. Í tilefni dagsins hlaut Ingibjörg Sigurjónsdóttir úthlutun úr Guðmundusjóði, sem styrkir framúrskarandi listakonur.

Stórkostlegar breytingar fyrirhugaðar í kring um Hlemm
Framkvæmdir við fyrsta áfanga að nýju Hlemmtorg eru hafnar á hluta Rauðarárstígs. Hlemmur og nærliggjandi götur munu taka miklum stakkaskiptum á næstu árum þar sem lokað verður fyrir almenna bílaumferð.

Foreldrar stúlkna varaðir við því að senda þær á viðburði ReyCup
Foreldrum þrettán og fjórtán ára gamalla stúlkna í fjórða flokki í Breiðablik hefur verið sent bréf frá þjálfurum liðsins. Í bréfinu eru foreldrar hvattir til þess að halda börnum sínum frá því að fara á ball og í sundlaugarpartý í tengslum við ReyCup.

Ingibjörg Sigurjónsdóttir er handhafi Guðmunduverðlaunanna
Ingibjörg Sigurjónsdóttir er handhafi Guðmunduverðlaunin í ár en verðlaunin voru veitt í 23. sinn í Listasafni Reykjavíkur í dag.

Ekki opnað aftur fyrir bílaumferð um Rauðarárstíg við Hlemm
Framkvæmdir á fyrsta áfanga Hlemmtorgsins svokallaða á Rauðarárstíg eru hafnar. Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir markmiðið að gera nýtt torg að svæði fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur.

Mötuneyti og íþróttahús Fossvogsskóla í álmunni sem opnar ekki
Mötuneyti, íþróttahús og kaffistofa kennara Fossvogsskóla eru í Meginlandi, álmu skólans sem opnar ekki í haust. Álman er sú verst farna af myglu og hafa foreldrar óskað eftir því að hún verði rifin.

Komu örmagna kóp til bjargar við Reykjarvíkurhöfn
Örmagna kóp með öngul í munni var komið til bjargar af vegfarendum á Granda í gærkvöldi. Annar þeirra, Sigríður Kristinsdóttir segist í fyrstu hafa haldið að móðurlaus kópurinn væri dauður en þegar svo reyndist ekki vera var kópnum komið í hendur næturvaktar Húsdýragarðsins.