Rangárþing ytra
1 2 3 4 5 6 7 8 … 15 ›
Langt í að þeir nái sér að fullu Ferðamenn sem voru hætt komnir eftir harðan árekstur á þjóðvegi 1 við Hellu um síðustu helgi telja bílbeltin hafa bjargað lífi þeirra. Bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist í árekstrinum og annar ferðamannanna liggur enn talsvert þungt haldinn á Landspítalanum. Innlent 28.4.2024 19:47
Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Ellefu landeigendur við bakka Þjórsár hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu og Landsvirkjun og freista þess að fá felld úr gildi með dómi leyfi Fiskistofu og heimild Umhverfisstofnunar fyrir Hvammsvirkjun frá því fyrr í þessum mánuði. Hafa þeir fengið flýtimeðferð í málinu. Innlent 23.4.2024 22:14
Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Þokubogi myndaðist í Gunnarsholti í Rangárvallasýslu í morgun. Þokubogi er eins og hvítur regnbogi. Veður 18.4.2024 09:09
Íbúar í Rangárþingi ytra fá að tjá sig um vindmyllugarð Íbúum í Rangárþing ytra mun gefast kostur á að taka þátt í viðhorfskönnun á næstunni þar sem þeir geta sagt álit sitt á Búrfellslundi, sem Landsvirkjun hyggst reisa með allt að þrjátíu vindmyllum austan við Sultartangastöð en staðsetning garðsins er í sveitarfélaginu við Vaðöldu. Innlent 1.4.2024 13:30
Verður Rangárvallasýsla eitt og sama sveitarfélagið? Svo gæti farið að sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu, þar að segja, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur sameinist í eitt sveitarfélag en sveitarstjórnirnar hafa fundað um sameiningu sveitarfélaganna. Yrði það raunin verður til um fjögur þúsund og fimm hundruð manna sveitarfélaga og þriðja landstærsta sveitarfélag landsins. Innlent 30.3.2024 13:31
Góður smalahundur er toppurinn á tilverunni Það er fátt sem toppar það að eiga góðan smalahund segja þeir sauðfjárbændur, sem fóru með hundana sína á smalahundanámskeið hjá norskum smalahundaþjálfara á Hellu. Lífið 29.3.2024 20:31
Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Hellu því þar er verið að byggja við grunnskóla staðarins og þá er ætlunin að byggja líka nýjan leikskóla. Íbúum á staðnum og í sveitarfélaginu öllu, Rangárþingi ytra er líka og fjölga og fjölga og nálgast nú óðfluga að verða tvö þúsund. Innlent 28.3.2024 13:30
Hundóánægðir bændur með reglugerð um sjálfbæra nýtingu Bændur landsins og fjölmargar sveitarstjórnir vítt og breitt um landið eru hundóánægðar með reglugerð úr samráðsgátt stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu í samræmi við markmikið laga um landgræðslu. Nái reglugerðin fram að ganga sé nánast gengið að sauðfjárbúskap dauðum. Innlent 9.3.2024 14:30
Taka upp bókunarkerfi í Landmannalaugum Umhverfisstofnun hefur kynnt bókunarkerfi sem tekið verður upp fyrir bílastæði við Landmannalaugar í sumar. Allir sem aka að Landmannalaugum á eigin vegum munu þurfa að bóka bílastæði fyrir fram og greiða þjónustugjald fyrir. Viðskipti innlent 6.2.2024 20:02
Þriggja bíla árekstur við Þjórsárbrúna Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Þjórsárbrúna í dag. Veginum við brúna var lokað tímabundið vegna þessa og við það myndaðist nokkur umferðarteppa. Vegurinn hefur nú verið opnaður aftur. Innlent 27.1.2024 14:25
Bílastæðin við Landmannalaugar verða ekki stækkuð í bráð Áform um stækkun bílastæðis við Landmannalaugar hafa verið slegin af með úrskurði Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Heildarmat skorti og samræmi við lög um stjórn vatnamála. Innlent 19.1.2024 07:01
Segir áætlaðan vindmyllugarð alfarið innan marka Rangárþings ytra Landsvirkjun segir greinilega einhvern misskilning á ferð hjá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um staðsetningu áætlaðrar uppbyggingar vindmyllugarðs. Fyrirhugaður Búrfellslundur sé alfarið innan marka nágrannasveitarfélagsins Rangárþings ytra. Innlent 19.1.2024 06:42
Útboð á vindmyllum í Búrfellslundi án þess að leyfi liggi fyrir Landsvirkjun hefur auglýst útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál en sú óhefðbundna leið er farin til að flýta fyrir verkefninu. Innlent 17.1.2024 15:22
Ný ríkisstofnun með engar höfuðstöðvar Ný ríkisstofnun, Land og skógur varð til um áramótin en hún tekur við hlutverkum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, sem hafa verið lagðar niður. Um 140 starfsmenn starfa hjá nýju stofnuninni á átján starfsstöðvum um land allt. Innlent 7.1.2024 20:30
Ætla að gefa Hvammsvirkjun grænt ljós Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að heimila breytingar á vatnshloti í Þjórsá 1, vegna framkvæmda við 95 megavatta Hvammsvirkjun. Telur stofnunin að sjónarmið um raforkuöryggi vegi þyngra en umhverfissjónarmið vatnshlotsins. Innlent 22.12.2023 23:05
Lónstaða Þórisvatns með versta móti Landsvirkjun hefur skert raforku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Ert það gert vegna lélegs vatnsbúskaps en lónstaða Þórisvatns er með versta móti. Innlent 19.12.2023 16:59
Vilja reisa hótel, baðlón og tólf einbýlishús á eyju við Hellu Eigendur Gaddstaðaeyjar við Hellu hafa óskað eftir breytingu á deiliskipulagi vegna uppbyggingar á eyjunni. Vilja þeir meðal annars reisa þar einbýlishús og baðlón. Innlent 9.12.2023 07:00
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í Þykkvabæ Það verður líf og fjör í íþróttahúsinu í Þykkvabæ laugardaginn 9. desember klukkan 16:00 þegar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands verður þar með stórtónleika undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Menning 6.12.2023 20:15
Urriðafoss virkjaður en Héraðsvötn vernduð Þrír virkjunarkostir færast úr biðflokki yfir í nýtingarflokk en tveir úr biðflokki yfir í verndarflokk, samkvæmt tillögudrögum verkefnisstjórnar að rammaáætlun sem kynnt voru í dag. Innlent 4.12.2023 20:40
Álftir búnar að éta upp átta hektara af korni hjá Björgvini bónda Kornbóndi á Suðurlandi hefur orðið fyrir milljóna tjóni í haust vegna álfta, sem hafa étið upp sex til átta hektara af korni hjá honum. Bóndinn segir fuglana sitja um akrana en ekki má fækka þeim þar sem álftin er friðuð. „Alveg glatað“ segir bóndinn. Innlent 23.10.2023 20:50
Björgunarsveitir standa í ströngu vegna veðursins Björgunarsveitir hafa farið í nokkur útköll í dag vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Innlent 10.10.2023 18:21
Dauðadæmdur jökull sem hverfur á næstu tveimur áratugum Torfajökull er einn þriggja jökla á landinu sem mun að öllum líkindum hverfa á næstu tveimur áratugum. Jöklafræðingur segir ekkert geta bjargað jöklinum úr þessu. Ljósmyndarinn RAX flaug nýverið yfir jökulinn og sýnir myndefnið vel stöðuna í dag. Innlent 2.10.2023 19:20
Þyrlan send í Þykkvabæ eftir árekstur Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan einstakling frá Þykkvabæ nú síðdegis, eftir tveggja bíla árekstur. Innlent 28.9.2023 17:19
Bíómynd um Kristinn Guðnason fjallkóng með meiru Á sama tíma og göngur og réttir standa nú yfir um allt land verður ný íslensk kvikmynd, „Konungur fjallanna“ frumsýnd annað kvöld i Bíóhúsinu á Selfossi. Myndin fjallar um Kristinn Guðnason, fjallkóng í leitum með gangnamönnum á Landmannaafrétti. Innlent 9.9.2023 13:05
Sóttu örmagna göngumann í Jökultungur Hópur Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sinnir hálendisvakt í Landmannalaugum fékk seint í gær boð frá Neyðarlínu um hóp fjögurra göngumanna á Laugaveginum. Þau þurftu aðstoð þar sem einn í hópnum hafði örmagnast og treysti hann sér ekki til að halda áfram. Innlent 2.9.2023 09:27
Með einum of marga bestu vini á heimilinu Einn nýjasti íbúinn á Hellu bíður þess að fá að vita hvort hann geti búið áfram í bænum. Reglur um hundahald í bænum komu honum í opna skjöldu. Innlent 2.9.2023 08:01
Hjólastólavinir leigðu sér þyrlu til að hitta mótorhjólavini sína Tveir vinir í hjólastólum, sem báðir slösuðust í sitt hvoru slysinu á mótorhjólum í byrjun sumars komu vinum sínum í BMW mótorhjólaklúbbnum heldur betur á óvart í gærkvöldi þegar þeir mættu á þyrlu í Galtalækjarskóg til að taka þátt í veislu klúbbsins. Innlent 20.8.2023 21:00
Vindmyllur í Þykkvabæ - Virkjunarleyfi þrátt fyrir forsendubrest? Eins og mörgum er kunnugt voru reistar tvær stórar vindmyllur um 140 metra frá þéttbýlismörkum Þykkvabæjar árið 2014. Um var að ræða "tilraunaverkefni til nokkurra ára" sem átti að vera að fullu afturkræft. Skoðun 18.8.2023 14:32
Mikið þarf að gerast á undan Torfajökulsgosi Landris mælist nú í Torfajökli vegna líklegrar kvikusöfnunar og grannt er fylgst með Öskju sem talin er vera að undirbúa sig fyrir gos. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir hins vegar ekki búast við gosi í Torfajökli strax og að næsta gos í Öskju verði sennilega ekki jafn stórt og það síðasta. Innlent 16.8.2023 21:58
„Þetta er merki um að eldstöðin sé vöknuð“ Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir landris í Torfajökulsöskju merki um að eldstöðin sé vöknuð. Gos í Torfajökli, sem er norðan við Mýrdalsjökul, gæti haft mikil áhrif víða um land. Hann er þó á því að næsta eldgos hér á landi verði í Öskju. Innlent 16.8.2023 12:20