Borgarbyggð

Fluttu gamalt hús frá Akureyri á Refsstaði
Þættirnir Gulli Byggir hófu göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 í gærkvöld en í þáttunum fylgist Gulli Helga með framkvæmdum hjá Íslendingum.

Eina framkvæmd Votlendissjóðs á þessu vori
Endurheimt votlendis á um fimmtíu hekturum hófst í Borgarfirði á dögunum. Votlendissjóður vinnur verkið að beiðni eiganda og verður líklega eina endurheimt votlendis á þessu vori.

Drengurinn fannst við Grábrók
Björgunarsveitir á Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út í dag vegna leitar að drengs sem varð viðskila við fjölskyldu sína.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat á Kjalarnesi felld úr gildi vegna formgalla
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá því í júní í fyrrasumar um að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Kyngreina vantar til landsins til að kyngreina fugla
Íslenskir kjúklingabændur hafa áhyggjur af því að geta ekki flutt egg inn til landsins í næsta mánuði og fengið kyngreiningu á ungunum í hænur og hana, sem koma út úr þeim vegna kórónuveirunnar.

Gunnlaugur krefst 60 milljóna frá Borgarbyggð vegna uppsagnarinnar
Gunnlaugur A. Júlíusson, fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar, hefur stefnt sveitarfélaginu og krafið það um 60 milljónir króna í bætur.

Barnabörnin bíða eftir því að amma Eygló komi og hrekki þau í sóttkvínni
„Ég á sex barnabörn í Borgarnesi og fer því á tvö heimili. Síðan stríði ég líka einhverjum góðum vinum í leiðinni,“ segir Eygló Lind Egilsdóttir, tæplega sjötug kona, sem skemmtir barnabörnum sínum á hverjum degi með því að mæta í búning fyrir utan stofugluggann í Borgarnesi.

Skeljungur kaupir rekstur Baulunnar
Í kaupunum felst allur fasteignar- og lóðarréttur ásamt verslunarrekstri á svæðinu þar sem Baulan er til húsa.

Snerpa bar tveimur kálfum á Hvanneyri
Kýrin Snerpa á Hvanneyri bar tveimur kálfum í nótt, nautkálf og kvígukálf. Mjög sjaldgæft er að kýr beri tveimur kálfum.

Leik frestað vegna veikinda hjá bikarmeisturunum
Flensa hefur herjað á bikarmeistara Skallagríms í körfubolta kvenna.

Níu fluttir á sjúkrahús eftir að nokkrir bílar lentu saman í Melasveit
Hópslysaáætlun á Vesturlandi var vikrjuð eftir að nokkrir bílar lentu saman á Vesturlandsvegi í Melasveit á milli Borgarness og Akraness á níunda tímanum. Meiðsli fólksins reyndust ekki alvarleg en níu voru fluttir á sjúkrahúsið á AKranesi.

Þjálfarar bikarmeistaranna allir úr Borgarfirði
Fjórir þjálfarar og aðstoðarþjálfarar sem fögnuðu bikarmeistaratitlunum tveimur í körfubolta í gær eiga að minnsta kosti eitt annað sameiginlegt. Þeir eru allir Borgfirðingar.

Hetjum Borgarness var vel fagnað
Það voru mikil fagnaðarlæti í Borgarnesi í gærkvöld þegar leikmenn og þjálfarar Skallagríms mættu á þorrablót Borgnesinga eftir að hafa landað fyrsta bikarmeistaratitlinum í sögu félagsins.

Lyfjaeftirlitið tafði fagnaðarlæti Skallagríms
Skallagrímur varð í gærkvöld bikarmeistari í fyrsta skipti í sögunni eftir magnaðan sigur gegn KR í úrslitum Geysisbikarsins. Fagnaðarlætin í Borgarnesi þurftu hins vegar að bíða þar sem nokkrir leikmanna liðsins voru teknir í lyfjapróf beint eftir leik.

Skallagrímur bikarmeistari í fyrsta skipti í sögunni
Skallagrímur vann öruggan sigur á KR í úrslitum Geysisbikar kvenna. Fyrsti bikarmeistaratitill Skallagríms í sögunni staðreynd eftir öruggan 17 stiga sigur, 66-49. Frekari umfjöllun og viðtöl væntanleg.

71 m/s undir Hafnarfjalli
Veginum um Hafnarfjall var lokað um miðnætti og það ekki að ástæðulausu.

Stór skjálfti í Rússlandi mældist á Íslandi
Jarðskjálfti að stærð 6,9 varð austur af Rússlandi upp úr klukkan hálf ellefu í morgun. Skjálftinn skilaði sér á kort Veðurstofu Íslands sem skjálfti upp á 3,7 nærri Borgarnesi.

Slepptu að auglýsa og höfðu samband við mögulega bæjarstjóra
Kristján Þórir Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, reiknar með að það skýrist í vikunni hver verður nýr bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ.

Ætla á Borgarfjörð eystri en aka svo í Borgarnes vestra
Dæmi eru um að fólk sem ætlar á tónlistarhátíðina Bræðsluna á Borgarfirði leiti hennar í Borgarnesi. Það virðist ekki hafa áttað sig á því að til eru fleiri Borgarfirðir á landinu.

Ísafjarðarbær missir annan bæjarstjóra sinn á einni viku
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur lagt til að gengið verði til samninga við Þórdísi Sif Sigurðardóttur um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar og verður sú ákvörðun lögð fyrir sveitarstjórn þann 13. febrúar næstkomandi. Fimmtán sóttu um starfið.

Kræsingar, áður Gæðakokkar, fengu 112 milljónir frá MAST
Fyrirtækið Kræsingar í Borgarnesi, sem áður hét Gæðakokkar, hefur fengið 112 milljónir króna í bætur frá Matvælastofnun vegna nautabökumálsins svokallaða.

Gunnlaugur höfðar mál á hendur Borgarbyggð
Fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar hefur höfðað mál á hendur sveitarfélaginu vegna uppgjörs á óteknu orlofi og launum samkvæmt ráðningarsamningi. Þar að auki verður krafist bóta vegna uppsagnar sem hann vill meina að hafi varið ólögleg.

Björgunarsveitir hvetja þingmenn til að samþykkja frumvarp Jóns
Formaður björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi óskar eftir svörum frá Alþingismönnum um það hvers vegna frumvarp Jóns Gunnarssonar sé ekki orðið að lögum.

Rafmagnslaust á Vesturlandi: „Hún er nú ekkert grín þessi vestan- og suðvestanátt um hávetur“
Rafmagnslaust er á hluta Vesturlands samkvæmt tilkynningakorti á vefsíðu RARIK. Þar kemur fram að rafmagnsbilun sé á Norðurárdalslínu og verið að leita að bilun.

Fyrrverandi borgarstjóri og forstjóri vill verða sveitarstjóri í Borgarbyggð
Átján aðilar sóttu um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar sem auglýst var í desember. Gunnlaugi Júlíussyni var sagt upp störfum sem sveitarstjóri í nóvember eftir þriggja ára starf.

Þrettándabrennum víða um landið aflýst vegna veðurs
Fresta hefur þurft einhverjum Þrettándabrennum sem halda átti í dag en mikil lægð gengur nú yfir landið. Þrettándabrennum hefur verið frestað á Siglufirði, Djúpavogi og Eskifirði.

Hætta leit í bili og búa sig undir óveðrið á morgun
Síðustu hópar, sem verið hafa við leit að Lettanum Andris Kalvan í Heydal á Snæfellsnesi, hafa verið kallaðir heim.

Fundu fjallgöngubúnað Andris í bílnum
Leit lögreglu og björgunarsveita að Lettanum Andris Kalvan í Heydal á Snæfellsnesi hefur haldið áfram í dag.

Leit að göngumanninum hætt í dag
Allir hópar björgunarsveitarmanna, sem verið hafa við leit að Andris Kalvans, lettneskum göngumanni sem skilaði sér ekki til byggða 30. desember síðastliðinn, í Heydölum á Snæfellsnesi voru kallaðir til baka um klukkan fjögur í dag.

„Engar vísbendingar, ekki neitt“
Lögregla og björgunarsveitir á Vesturlandi hófu skömmu eftir hádegi í dag leit að göngumanni sem ekki skilaði sé til byggða 30. desember.