
Vinnumarkaður

Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota
Öllum 128 starfsmönnum Skagans 3x var sagt upp í dag. Skaginn 3x er hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki fyrir matvælaframleiðslu aðallega í sjávarútvegi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness, segir ekkert sveitarfélag hafa orðið fyrir jafnmiklum hamförum í atvinnumálum undanfarið, að Grindvíkingum undanskildum.

Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“
„Það sem mér finnst þessi hópur stjórnenda eiga sameiginlegt, er að þetta eru stjórnendur sem segja má að tilheyri nýja skólanum í viðskiptalífinu,“ segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta um nýjan 40/40 listann, sem birtur var á dögunum.

96 sagt upp í hópuppsögnum í júní
Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í júní. 96 starfsmönnum var sagt upp störfum í farþegaflutningum og fiskvinnslu.

Fölsk vernd fæðingarorlofslaga fyrir verðandi feður?
Hjá ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi, var starfsmanni sem hafði nýlega sagt frá því að hann ætti von á barni, sagt upp störfum. Um er að ræða verðandi föður og á fundinum þar sem honum var afhent uppsagnarbréfið sagði hann að þetta gæti ekki verið lögleg uppsögn þar sem hann væri verndaður skv. fæðingarorlofslögum. Svar fyrirtækisins var að þessi vernd gildi einungis fyrir konur.

Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því
„Það eru mörg fyrirtæki að gera geggjaða hluti nú þegar, án þess endilega að átta sig á því að margt af því telst nú þegar til sjálfbærninnar,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu og gestgjafi í Sjálfbærniskólanum sem hefst í haust í Opna háskólanum, Háskóla Reykjavíkur.

Í maí voru 5800 atvinnulausir
Í maí á þessu ári voru 5800 einstaklingar atvinnulausir. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra einstaklinga var 2,5 prósent, hlutfall starfandi var áttatíu prósent og atvinnuþátttaka 82 prósent.

Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki
„Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust.

Milljón í málskostnað út af 50 þúsund kalli
Félag hefur í héraði verið dæmt til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 55.675 krónur í vangoldin laun, auk vaxta, vegna tveggja veikindadaga. Nokkru hærri er upphæð málskostnaðar sem félaginu var gert að greiða starfsmanninum fyrrverandi, eða rúmlega milljón krónur.

Hjúkrunarfræðingur sem neitaði að fara í Covid-próf ekki fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál hjúkrunarfræðings sem höfðaði mál gegn heilbrigðisfyrirtæki sem sagði henni upp eftir að hún neitaði að fara í Covid-hraðpróf.

Reglulegar uppsagnir „því miður verið okkar raunveruleiki“
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir flugmenn duglega að mennta sig og koma sér í aðrar vinnur þegar þeim er sagt upp vegna árstíðasveiflna, en 57 flugmönnum Icelandair var sagt upp í síðustu viku. Tilhneiging þeirra til að snúa aftur til fyrirtækisins sýni heilindi bæði flugmannanna og félagsins.

Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur
Verkefnastjóri hjá ASÍ óttast að Quang Le muni reyna að hafa samband við meinta mansalsþolendur í máli hans. Ábendingum þeirra til lögreglu um mansal á Íslandi fjölgar ört.

Margt þarf að ganga eftir svo hægt sé að segja samningana góða
Byrjað var að undirrita kjarasamninga á opinbera vinnumarkaðnum í gærkvöldi og nótt en í þeim felast kjarabætur sambærilegar þeim sem gerðir voru á almenna vinnumarkaðnum. Samningarnir gilda í fjögur ár og segir varaformaður BSRB margt þurfa að ganga eftir svo hægt sé að fullyrða að samningarnir hafi verið góðir.

Um læknisvottorð til vinnuveitenda
Á síðustu dögum hefur verið töluverð umræða um svokölluð „vinnuveitendavottorð“. Þ.e. læknisvottorð sem eru ætluð til afhendingar til vinnuveitenda til að virkja rétt til greiðslu launa í veikindaforföllum.

Níu manns sagt upp hjá Veitum
Níu starfsmönnum Veitna var sagt upp um mánaðamótin. Rún Ingvarsdóttir samskiptastýra Veitna segir uppsagnirnar vera vegna skipulagsbreyinga sem tilkynnt var um 29. maí síðastliðinn.

Ellefu aðildarfélög BSRB skrifa undir kjarasamninga
Ellefu aðildarfélög BSRB undirrituðu á öðrum tímanum í nótt nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samið var á sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi
Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt.

Bjarkey verði að sæta ábyrgð
Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir matvælaráðherra hafa viljandi gert Hval hf. ókleift að veiða langreyðar í sumar. Hún telur að fyrirtækið fari í mál við ríkið og að borgarar megi ekki sætta sig við það að ráðherrar brjóti lög.

Fiskeldi og Vestfirðir
Í lok maí var birt nýtt fasteignamat. Fasteignamat endurspeglar verðgildi fasteigna og fasteignamatið hækkar nú hvergi meira en á Vestfjörðum. Þetta eru góðar fréttir og endurspegla uppbyggingu í atvinnulífi þar vestra sem fjölgar atvinnutækifærum og hækkar fasteignaverð.

Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp
Áhöfn tveggja skipa í eigu Þorbjarnar í Grindavík hefur verið sagt upp, en gert er ráð fyrir því að skipverjunum verði útveguð ný störf. Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir í samtali við Vísi að verið sé að endurskipuleggja útgerðina fyrir haustið.

Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, óttast að enginn hvalur verði veiddur á þessu ári þrátt fyrir leyfisveitingu matvælaráðherra.

Þeim fjölgar sem kenna án kennsluréttinda
Skólaárið 2023-2024 voru 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda og hefur hlutfallið ekki verið hærra frá árinu 2002. Réttindalausu starfsfólki við kennslu fjölgaði um 132 frá hausti 2022.

Að sækja um starf eftir uppsögn
Það er eðlileg líðan að fara í smá vörn eftir að hafa verið sagt upp í starfi. Því auðvitað gerir ekkert okkar ráð fyrir að starfslokum beri þannig að.

500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík
Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche opnar á gamla Stjörnutorgi Kringlunnar í næstu viku. Framkvæmdastjóri staðarins segir 500 starfsumsóknir hafa borist, þar af fimmtíu frá plötusnúðum.

Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn
Maður sem var sagt upp störfum fær ekki greiddar bætur fyrir fyrstu tvo mánuðina eftir uppsögn en það er vegna þess að hann átti sjálfur sök á því að vera sagt upp. Maðurinn hafði fengið fjölda áminninga í starfi en jafnframt voru vöruúttektir hans ekki rétt skráðar.

Meinsemdir á vinnumarkaði
Útgáfa læknisvottorða hefur verið gerð að umfjöllunarefni í viðtali Vísis við þá félaga Fiskikónginn og svo framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda 5.júní síðastliðinn.

Vill upplýsingar um bótasvik öryrkja
Birgir Þórarinsson hefur lagt fram fyrirspurn til félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem hann kallar eftir upplýsingum um umfang bótasvika og áhrif á útgjöld ríkisins. Frumvarp um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu liggur fyrir Alþingi og viðbúið að tekist verði á um málið í þingsal.

Læknar sagðir útbýta vottorðum eins og sælgæti
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda tók upp þann þráð sem Kristján Berg Fiskikóngur hóf um brottrekna starfsmenn í viðtali í Bítinu. Helst var á honum að skilja að læknar séu ævintýralega glaðir að skrifa út vottorð.

Wolt tekur hlutverk sitt á Íslandi alvarlega
Í aðsendri grein á Vísi og aftur á Stöð 2 fjölluðu Halldór Oddsson og Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ um alvarlegar ásakanir sem beint er að Wolt. Þessum ásökunum getum við ekki látið ósvarað.

Misnotkun veikindaréttar á vinnumarkaði?
Þann 5. Júní 2024 kom út grein á visir.is þar sem rætt er meint misnotkun launtaka á veikindaréttindum sínum og var þá sérstaklega rætt um launtaka sem nýta sér veikindarétt sinn í uppsagnarfresti sínum.

„Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“
„Það sem er að gerast núna og má segja að sé samfélagsleg breyting, er að atvinnulífið er að reyna að gera betur á marga vegu, þó það sé kannski mjög margt í einu,“ segir Helgi Héðinsson, mannauðsleiðtogi hjá Orkuveitunni og Veitum.