
Kynferðisofbeldi

Gagnrýna rannsókn á meintu kynferðisbroti nágranna gegn þriggja og sex ára systrum
Lögmaður gagnrýnir rannsókn lögreglu á meintu kynferðisbroti gegn þriggja og sex ára systrum. Grunur leikur á að teknar hafi verið kynferðislegar myndir af stúlkunum en málið var látið niður falla eftir rúmlega ár í rannsókn. Fjölskyldan hefur kært málið til Ríkissaksóknara.

Bandaríkjamaður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur drengjum
Bandarískur karlmaður á fertugsaldri sem hefur verið í varðhaldi síðan í lok janúar hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur drengjum.

Ákærður fyrir að nauðga tveimur konum með alzheimer
Karlmaður um sjötugt hefur verið ákærður fyrir að nauðga tveimur konum um áttrætt sem báðar voru með langt genginn alzheimer.

Dæmdur öðru sinni fyrir kynferðisbrot gegn barni
Anthony Lee Bellere var á föstudag sakfelldur fyrir Landsrétti fyrir ítrekuð kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun, áfengislagabrot, brot gegn barnverndarlögum og umferðalagabrot.

Dæmdur fyrir samræði við 13 ára stúlku
Maðurinn var 19 ára þegar brotið átti sér stað.

Húsleit gerð hjá manni sem grunaður er um að hafa brotið á tveimur börnum
Gerð var húsleit á heimili mannsins sem grunaður er um að hafa brotið á tveimur börnum í Hraunavallaskóla í Hafnarfirði og hald lagt á gögn í þágu málsins.

Starfsmaður á frístundaheimili leystur frá störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn nemendum
Starfsmaður á frístundaheimili í Hafnarfirði er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur nemendum í 1. bekk í síðustu viku. Hann hefur verið leystur frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir.

Fleiri leita aðstoðar hjá Kvennaráðgjöfinni og Bjarkarhlíð
Fjölgað hefur í hópi þeirra sem leita lögfræðiráðgjafar hjá Kvennaráðgjöfinni og Bjarkarhlíð. Lögfræðingur segir teikn á lofti um að skilnuðum sé að fjölga og mál séu farin að þyngjast.

Heimilisofbeldismálum fjölgar mikið milli mánaða
Heimilisofbeldismálum hefur fjölgar mikið milli mánaða en hátt í áttatíu tilkynningar um heimilisofbeldi bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í apríl. Tilkynningum um kynferðisbrot hefur aftur á móti fækkað.

Dæmi um að kynferðisbrotamál gegn börnum séu ekki nægilega vel rannsökuð þegar ákæra er gefin út
Dæmi eru um að kynferðisbrotamál gegn börnum séu ekki nægilega vel rannsökuð þegar ákæra er gefin út að sögn varahéraðssaksóknara.

Viðsnúningur í nauðgunarmáli norðan heiða
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður í Landsrétti af ákæru um nauðgun á Akureyri í janúar 2018.

Dæmdur fyrir ofbeldi en ekki nauðgun
Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi meðal annars fyrir alvarlegt ofbeldi gagnvart fyrrverandi unnustu sinni. Hann var sýknaður af ákæru fyrir að nauðga konunni sömu nótt.

Áfram í haldi grunaður um brot gegn drengjum
Bandarískur karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn nokkrum drengjum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 7. apríl.

Kári og Alexandra fórnarlömb dularfulls og grófs stafræns ofbeldis
Myndum stolið af Instagram og notaðar á falskan reikning á vændissíðu.

Netið fjölgar gildrunum fyrir konur með þroskahömlun
Samskiptamiðlar og ný samskiptatækni hafa fjölgað gildrum og auka enn frekar þörfina á fræðslu fyrir konur með þroskahömlun, að sögn félagsráðgjafa. Fræðslan þurfi að vera aðgengileg og ókeypis

Tugir ofbeldismála gegn fötluðu fólki á borði réttindagæslumanna
Á fjórða tug ofbeldismála hafa síðasta árið komið á borð réttindagæslumanna fatlaðs fólks. Aðeins tvö og hálft stöðugildi réttindagæslumanns er á höfuðborgarsvæðinu og því stundum bið eftir þjónustunni

Hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir kynferðislega áreitni í rútu
Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni.

Tíu konur með þroskahömlun leita til Neyðarmóttökunnar á hverju ári
Í mörgum tilfellum kynnast konurnar meintum ofbeldismönnum á netinu á fölskum forsendum.

„Þeir segja að ég eigi að halda leyndó“
Í Kompás segir kona á fertugsaldri sögu sína, hún er með þroskahömlun og glímir við ýmis geðræn vandamál. Hún hefur stundað vændi í nokkur ár og telur að kúnnarnir séu um sjötíu menn. Þeir séu oft giftir menn, venjulegir menn, eins og hún segir sjálf.

Morðingjarnir sem segjast fá samþykki
Réttarhöldin yfir manninum sem myrti breska bakpokaferðalanginn Grace Millane þykja lýsandi fyrir réttarhöld í sambærilegum málum, þar sem sakborningar bera því fyrir sig að andlát hafi borið að við „óhapp“ í kynlífi.

Grunaður barnaníðingur í varðhaldi í fjórar vikur til viðbótar
Bandarískur karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn nokkrum drengjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. mars. Karlmaðurinn hefur verið í varðhaldi í þrjár vikur sem renna átti út í dag. Nú bætast við fjórar vikur til viðbótar.

Bandarískur karlmaður grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum
Bandarískur karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Suðurnesjum grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum í nokkrum löndum.

Komst yfir myndefni af kynlífi hjóna á lokaðri vefsíðu
Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir og kynferðisbrot. Brotin beindust gegn tveimur konum.

Dönsuðu fyrir baráttunni gegn stafrænu kynferðisofbeldi
Dansbyltingin Milljarður rís á vegum UN Women á Íslandi fer fram í Hörpu í dag og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi. Dansinn dunar frá klukkan 12:15 og stendur byltingin yfir í um 45 mínútur.

Sýknuð fyrir hlutdeild í nauðgun á þroskahamlaðri konu
Kona sem dæmd var í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun hefur verið sýknuð í málinu fyrir Landsrétti. Karlmaður, sem var ákærður var fyrir nauðgunina, lést eftir að málið var þingfest fyrir héraðsdómi. Sá var kærasti konunnar. Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag.

Milljarður rís haldinn á mánudaginn
Milljarður rís, bansbylting UN Women á Íslandi verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu á mánudaginn næsta, milli klukkan 12:15 og 13.

Að minnsta kosti fimmtíu meint kynferðisbrot Þorsteins fara fyrir dóm
Þorsteinn Halldórsson, dæmdur kynferðisbrotamaður, þarf að svara til saka í kynferðisbrotamáli héraðssaksóknara gegn honum.

Hafnar því algjörlega að Milljarður rís sé aðeins sýndarmennska
Gagnrýni fjölmiðlakonu þess efnis vakti töluverða athygli á samfélagsmiðlum í dag.

Ein af hverjum fjórum beitt kyrkingartaki
Ein af hverjum fjórum konum sem komu í Kvennaathvarfið á síðasta ári hafði verið beitt kyrkingartaki á heimili sínu og sama hlutfall hafði fengið morðhótanir frá ofbeldismanni.

Sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn leikskólabarni eftir sýknu í héraði
Landsréttur hefur snúið við dómi úr héraðsdómi og dæmt karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólaaldri, dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar.