
Heimilisofbeldi

Vinnur að því að samræma þjónustu fyrir þolendur heimilisofbeldis
Drífa Jónasdóttir, afbrotafræðingur, hefur verið ráðin af heilbrigðisráðuneytinu til þess að móta og innleiða samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Ríkissaksóknari skipar lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að taka upp rannsókn líkamsárásar
Ríkissaksóknari hefur fellt niður ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá því í febrúar síðastliðnum um að hætta rannsókn á ofbeldismáli, meðal annars vegna þess að lögregla óskaði ekki eftir myndum af áverkum né ræddi við vitni.

„Þó að ég gengi með barnið hans sýndi hann mér enga miskunn“
Séra Karen Lind Ólafsdóttir var í heilt ár að skipuleggja flótta frá manni sem beitti hana alvarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi, sem síðar leiddu til ofsókna í áraraðir. Hann hafði læst hana inni og lokað hana af frá umheiminum með því að taka af henni bæði síma og internet.

Ákærður fyrir tilraun til að drepa eiginkonu sína á Hótel Borg
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum.

Fimmtíu orðið fyrir ofbeldi af hendi fyrrverandi maka
Hundrað og tíu manns leituðu til Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri, í fyrra samkvæmt ársskýrslu Bjarmahlíðar. Fimmtíu þolendur tilgreindu ofbeldi af hálfu fyrrverandi maka.

Fengu góð viðbrögð við „pop-up-kvennaathvarfi“
Til þess að geta tekið á móti konum og börnum í samkomubanni leitaði Kvennaathvarfið eftir húsnæði í gær. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og athvarfið því vel undirbúið fyrir komandi páskahátíð.

Aldraðir verði fyrir miklu ofbeldi og jafnvel frá eigin börnum
Jenný Kristín Valberg segir að það sé oft falið leyndarmál að börn beiti foreldra og jafnvel aldraða foreldra ofbeldi, þetta sé algengara en fólk grunar.

Var föst í óheilbrigðu og ofbeldisfullu sambandi
„Lagið er tileinkað öllum þeim sem hafa einhvern tímann upplifað ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt,“ segir söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir um lagið sitt Reality sem kom út í gær.

Of ung til að átta sig á að hún væri í ofbeldissambandi
Kamilla Ívarsdóttir þurfti að þola gróft ofbeldi af hendi fyrrverandi kærasta síns. Hún var fyrsti gestur nýs hlaðvarpsþáttar, Eigin konur, sem er í umsjón Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur. Í þættinum ræðir Kamilla ítarlega um ofbeldissamband sem hófst snemma á táningsárum hennar. Þegar fram líða stundir vill hún hjálpa konum í sömu sporum.

Beitti barnsmóður sína ofbeldi er hún hélt á níu mánaða syni þeirra
Landsréttur staðfesti í dag átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni sem réðst á barnsmóður sína í október árið 2018. Maðurinn var meðal annars fundinn sekur um brot í nánu sambandi, brot gegn barninu sem og umferðarlagabrot.

Fjórðungur kvenna beittur ofbeldi af maka
Ein af hverjum fjórum konum hefur verið beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu eiginmanns eða karlkyns maka samkvæmt stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á ofbeldi gegn konum.

Þrjú útköll vegna heimilisofbeldis
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var nú síðdegis og í kvöld þrisvar kölluð út vegna heimilisofbeldis; í póstnúmerum 104, 105 og 108.

Kynferðisbrota- og heimilisofbeldismál verða ekki undir í vinnu Jóns Steinars
Vinna Jóns Steinars Gunnlaugssonar fyrir dómsmálaráðuneytið mun ekki snúa að málaflokkum er varða kynferðisbrot eða heimilisofbeldi. Þetta staðfestir Áslaug Arna Sigurbjörsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við Vísi.

Segja dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur
Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót segja Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur með því að fela Jóni Steinari Gunnlaugssyni að vinna að nauðsynlegum umbótum í réttarkerfinu.

Mátti kalla barnsföður sinn ofbeldismann á Facebook
Landsréttur staðfesti sýknu yfir konu sem var kærð fyrir meintar ærumeiðingar um barnsföður sinn á samfélagsmiðlinum Facebook. Konan vísaði til mannsins sem ofbeldismanns í nokkrum færslum á miðlinum.

Sýknaður af ákæru fyrir árás á fyrrverandi maka
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi í síðustu viku. Karlmaðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, tekið hana hálstaki og hent henni út á stétt.

Halda röngum upplýsingum að erlendum konum svo þær fái ekki hjálp
Erlendar konur í ofbeldissamböndum eru ekki meðvitaðar um þau úrræði sem þeim stendur til boða. Algengt er að ofbeldismennirnir nýti sér þekkingarleysi þeirra og fullyrði að þeim verði vísað úr landi ef þær leiti sér aðstoðar.

„Ég ætla ekki að svara þessari spurningu aftur“
Breska tónlistarkonan FKA Twigs segir að ekki eigi að spyrja þolendur heimilisofbeldis að því hvers vegna þeir hættu ekki fyrr í sambandi með ofbeldismanninum. Frekar eigi að spyrja þann sem beiti ofbeldi hvers vegna hann haldi manneskju í gíslingu með ofbeldi.

Rúmlega helmingur býr enn við ofbeldisaðstæður
Rúmlega helmingur þeirra sem varð fyrir heimilisofbeldi í fyrra býr enn við aðstæðurnar og er hlutfallið talsvert hærra miðað við fyrri ár, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Skýrsluhöfundur telur að aukið atvinnuleysi og óvissa í samfélaginu hafi áhrif á stöðuna.

Allir búnir að gleyma ofbeldismáli í Eyjum
Karlmaður í Vestmannaeyjum hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa veist að tveimur konum á heimili þeirra í Heimaey árið 2018. Konurnar lýstu báðar líkamsárás af hálfu karlmannsins á vettvangi og hjá lögreglu umrædda nótt. Sömuleiðis ýtti framburður karlmanns sem mætti á vettvang undir að karlmaðurinn hefði ráðist á konurnar.

Fimm konur saka Manson um gróft ofbeldi
Evan Rachel Wood hefur sakað fyrrverandi maka sinn Marilyn Manson, tónlisetarmann, um að hafa beitt sig „hryllilegu“ ofbeldi um árabil. Hún greindi frá meintum brotum í færslu sem hún birti á Instagram í dag.

Fatlaðar konur festist í ofbeldisfullum aðstæðum
Talið er að um þrjár af hverjum fjórum fötluðum konum verði fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Dæmi eru um aðtekin séu þeim hjálpartækin þannig að þær komist ekki burt úr ofbeldisfullum aðstæðum.

Lítill hluti ofbeldismála á hendur fötluðu fólki ratar inn í réttarvörslukerfið
Talið er að fjöldi fatlaðs fólks hér á landi verði fyrir ofbeldi en að aðeins lítill hluti málanna rati inn í réttarvörslukerfið. Svört skýrsla kom út í dag um ofbeldi gagnvart fötluðum þar sem dregin er sú ályktun að sá hópur njóti ekki sömu réttinda og aðrir í kerfinu.

„Ég er bara mjög ánægð að hann drap mig ekki“
Förðunarfræðingurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir hvetur konur sem eru í ofbeldisfullum samböndum að vera sterkar, það sé alltaf ljós eftir myrkrið. Hún hefur nú opnað sig um sambandsslitin sín og andlega og líkamlega ofbeldið sem hún varð fyrir í sambandinu. Einnig ræddi hún um unglingsárin, sjálfsvígshugsanir og fleira.

Sakaður um gróft heimilisofbeldi og má fylgjast með vitnaleiðslu
Dómarar við Landsrétt segja að ekki sé hægt að vísa manni úr réttarsal á meðan kona sem hann hefur verið ákærður fyrir að beita grófu heimilisofbeldi gefur skýrslu í aðalmeðferð málsins. Með því felldu þeir úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þar að lútandi niður.

FKA twigs kærir Shia LaBeouf fyrir heimilisofbeldi
Tónlistarkonan FKA twigs hefur kært fyrrverandi kærasta sinn leikarann Shia LaBeouf fyrir að hafa beitt hana „ótæpilegu ofbeldi“ á meðan á sambandi þeirra stóð. Hollywood Reporter greinir frá þessu.

Stillum fókusinn
Árlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi sem hófst 25. nóvember sl. er að þessu sinni sérstaklega beint að áhrifum Covid-19 á kynbundið ofbeldi.

Fagnar sigri og biður þolendur ofbeldis að gefast ekki upp
Rúmlega fimm ára baráttu Rúnu Guðmundsdóttur við kerfið lauk í gær þegar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi fyrrverandi sambýlismann hennar til þess að greiða henni 1,3 milljónir í skaðabætur vegna heimilisofbeldis. Rúna segir þungu fargi af sér létt, það sé ómetanlegt að kerfið viðurkenni að hún hafi verið beitt ranglæti.

Ofbeldissambandi lýkur… hvað svo?
Ofbeldi í nánum samböndum er algengasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis á heimsvísu. Mikil og þörf umræða hefur farið fram undanfarið um vaxandi tíðni og alvarleika ofbeldis í nánum samböndum á Íslandi sem og annarsstaðar.

Aldrei eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei fengið eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi og í ár, en þær eru nú orðnar tæplega sjö hundruð talsins.