KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þór Ak. - KA 0-1 | Hall­grímur tryggði sætan sigur

KA tryggði sér montréttinn á Akureyri með dramatískum 1-0 sigri á nágrönnum sínum í Þór þegar liðin mættust á VÍS-velli Þórsara í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Hallgrímur Mar skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lokin við mikinn fögnuð gulklæddra gesta í stúkunni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við

Þór og KA mætast í fyrsta sinn í 22 ár í efstu deild síðar í dag. Uppselt varð á leikinn á tveimur klukkustundum og Þórsarar unnið hörðum höndum við að bæta við stæðum til að fleiri komist að. KA vann báða leiki liðanna í Símadeildinni sálugu árið 2002.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Hall­grímur Jónas­son: „Staðan er bara al­var­leg“

„Ég er virkilega vonsvikinn með lélega frammistöðu, Keflavík átti bara skilið að vinna þennan leik. Þetta er bara langt frá því sem við viljum standa fyrir í KA, ég er bara virkilega ósáttur.“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 1-2 tap á móti Keflavík á heimavelli í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans

Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hreint agalega og var refsað fyrir það.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég er ekkert ó­ró­legur“

Hallgrímur Jónasson prísar sig sælan að komast með stig frá Akranesi eftir 1-1 jafntefli hans manna í KA við ÍA í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í kvöld. Hann er ánægður með sína menn og segir þetta sterkt stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Erum á réttri leið“

Víkingur hafði betur gegn KA í annarri umferð Bestu deildar karla fyrir norðan í dag. Lokatölur urðu 2-0 þar sem Víkingar skoruðu bæði mörkin í síðari hálfleik og hafa nú fjögur stig eftir tvo leiki en KA-menn eru enn án stiga eftir tvo heimaleiki.

Íslenski boltinn