
Ástin á götunni

Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ
Það er nóg um að vera hjá liðum í Bestu deild karla í fótbolta þó deildin sé farin í vetrarfrí. Liðin eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir næsta ár og því er af nægu að taka þessa dagana.

Geir fer aftur í Vesturbæinn
Geir Þorsteinsson mun taka við starfi hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur um áramótin. Hann er ráðinn af knattspyrnudeild félagsins sem rekstrarstjóri.

Haraldur Árni áfram með Grindavík
Haraldur Árni Hróðmarsson verður áfram við stjórnvölinn hjá Grindavík í Lengjudeildinni en Haraldur tók við liðinu á miðju sumri í þröngri stöðu.

Katrín áfram í Kópavogi
Framherjinn Katrín Ásbjörnsdóttir mun leika áfram með Íslandsmeisturum Breiðabliks í Bestu deild kvenna að ári.

Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi
Arnór Smárason átti skammvinnan en áhugaverðan tíma í Rússlandi er hann lék sem lánsmaður hjá liði Torpedo Moskvu fyrir tæpum áratug. Launin skiluðu sér misvel frá félaginu.

Enn kvarnast úr liði Vestra
Ibrahima Balde hefur yfirgefið lið Vestra í Bestu deild karla. Hann er áttundi leikmaðurinn til að fara frá liðinu eftir nýliðna leiktíð.

Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“
Nýir þjálfarar kvennaliðs Vals í fótbolta eru spenntir fyrir komandi samstarfi. Þeir endurnýja kynnin en voru síðast saman á Hlíðarenda fyrir rúmum áratug.

Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik
Töluverður rígur var milli jafnaldra Arnórs Smárasonar og Rúriks Gíslasonar á yngri árum. Vítaklúður Arnórs veitti Rúrik og félögum sigurinn á Shell-mótinu í Eyjum á sínum tíma.

Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt
ÍA var í dag sektað um 75 þúsund krónur af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna ummæla Jóns Þórs Haukssonar, þjálfara karlaliðs félagsins, eftir tap fyrir Víkingi í haust.

„Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“
Axel Óskar Andrésson mun ekki leika áfram með KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann hefur nú formlega kvatt liðið á samfélagsmiðlum, ber hann félaginu og KR-ingum í heild sinni söguna vel.

Kristófer áfram í Kópavogi
Kristófer Ingi Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Breiðabliks í knattspyrnu út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans átti að renna út nú um áramótin og var áhugi á leikmanninum bæði hér á landi sem og erlendis.

Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert
Katrín Ásbjörnsdóttir bíður þess enn að ganga frá nýjum samningi við Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta. Hún hefur æfingar með liðinu í vikunni en samningur hennar er runninn út.

„Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“
Ferill fótboltamannsins Arnórs Smárasonar dró hann víða um heim og það gekk á ýmsu. Atvik frá leik í Svíþjóð 10 árum síðan situr enn í honum.

Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn
Mikil gleði var í Kópavogi í sumar þar sem bæði karla- og kvennalið Breiðabliks urðu Íslandsmeistarar. Gleðin var ekki síst á heimili parsins Damirs Muminovic og Katrínar Ásbjörnsdóttur sem unnu hvor sinn titilinn.

Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns
Bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson er genginn í raðir ÍBV og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð.

Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig
Arnór Smárason hætti nýverið knattspyrnuiðkun eftir langan og farsælan feril. Hann skilur sáttur við og er lítið að stressa sig á framtíðinni, enn sem komið er.

Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ
Aron Elí Sævarsson mun ekki ganga í raðir uppeldisfélagsins Vals og tekur slaginn með Aftureldingu í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð.

Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka
Benóný Breki Andrésson, markakóngur Bestu deildar karla í knattspyrnu á nýafstöðu tímabili, er einn eftirsóttasti biti deildarinnar sem stendur. Enska B-deildarliðið Sunderland er sagt meðal liða sem vilja fá hann í sínar raðir.

Valgeir laus í Svíþjóð og gæti verið á heimleið
Valgeir Valgeirsson er á leið frá sænska B-deildarfélaginu Örebro þegar samningur hans rennur út við lok tímabils. Hann er orðaður við lið í Bestu deild karla.

Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út
Fótboltamaðurinn Daníel Hafsteinsson er sagður hafa slitið samningi sínum við KA á Akureyri. Hugurinn leiti út fyrir landssteinana.

Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram
Knattspyrnufélag Reykjavíkur staðfesti í dag að Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson yrðu áfram þjálfarar kvennaliðs félagsins sem leikur í Lengjudeild kvenna á næsta ári. Þeir félagar stýrðu liðinu upp úr 2. deildinni í ár og fá nú tækifæri til að gera gott betur.

Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið
Theodór Elmar Bjarnason hætti tvítugur að spila fyrir íslenska karlalandsliðið eftir að hafa verið settur á varamannabekkinn. Hann fór beinustu leið á Prikið í afmæli hjá bróður sínum.

Jökull laus allra mála hjá Reading | Á heimleið?
Jökull Andrésson hefur komist að samkomulagi við Reading á Englandi um að fá samningi sínum slitið. Hann er því laus allra mála og gæti verið á heimleið.

„Er þetta ekki komið gott af pólitík?“
Birkir Már Sævarsson kveðst eiga heilbrigðisráðherra mikið að þakka fyrir langan og farsælan knattspyrnuferil. Jafnvel sé kominn tími á að hann fari aftur út á æfingavöll.

Um þrjú hundruð vörubílsfarmar af efni: „Engu keyrt í burtu“
Fyrsta skref í uppbyggingu Laugardalsvallar gengur vel og er á áætlun. Formaður KSÍ segir stefnuna svo að byggja völlinn enn frekar upp og enda með mannvirki sem við getum verið stolt af.

Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni
Theodór Elmar Bjarnason batt enda á 20 ára leikmannaferil sinn í fótboltanum síðustu helgi. Hans síðasti leikur var 7-0 sigur KR á HK í Bestu deild karla. Ferill Elmars dró hann víða um heim og óhætt að segja að hann hafi verið viðburðarríkur.

Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“
Birkir Már Sævarsson lauk knattspyrnuferli sínum um síðustu helgi þegar hans menn í Val unnu 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla. Birkir Már í atvinnumennsku í rúman áratug og er á meðal leikjahærri manna í sögu landsliðsins.

Laugardalsvöllur eins og þú hefur aldrei séð hann áður
Góður gangur er á framkvæmdum við þjóðarleikvang okkar Íslendinga í fótbolta, Laugardalsvöll. Við litum við og tókum stöðuna á framkvæmdunum í dag og þar tók Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður, meðfylgjand myndir.

„Þetta var bara ömurlegt í alla staði“
„Það hefði verið fullkominn endir,“ segir Theodór Elmar Bjarnason um fyrrum liðsfélaga sinn hjá KR, Kjartan Henry Finnbogason. Kjartan yfirgaf KR sumarið 2022 sem fylgdi mikið fjaðrafok og náðu þeir félagarnir því örfáum leikjum saman með Vesturbæjarliðinu.

Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri
Hótanir liðsfélaga, partýstand og mannskæður jarðskjálfti er á meðal þess sem er eftirminnilegt frá 20 ára fótboltaferli Theodórs Elmar Bjarnasonar sem taldi sex lönd.