Opna bandaríska

Fréttamynd

Stoltir for­eldrar: Gunn­laugur „mani­festaði“ birtu eftir erfitt vor

„Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.

Golf
Fréttamynd

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.

Golf
Fréttamynd

Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson var í góðum hópi kylfinga sem tókst að tryggja sér þátttökurétt á US Open með góðum leik á lokaúrtökumótinu. Í þeim hópi sem náði að tryggja sér farseðilinn á annað risamót ársins var líka hinn sautján ára gamli Miles Russell.

Golf
Fréttamynd

„Hlakka mikið til að ná fleiri á­föngum fyrir Ís­land“

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson var gripinn í viðtal við Golf Channel nokkrum sekúndum eftir að hann tryggði sig, fyrstur íslenskra karla, inn á Opna bandaríska meistaramótið í golfi í gærkvöld. Þar kvaðst hann afar stoltur af því að vera brautryðjandi fyrir íslenskt golf.

Golf
Fréttamynd

Dúettinn sem er að taka yfir tennisheiminn

Carlos Alcaraz fagnaði í gær sigri á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Hann lagði Jannik Sinner í úrslitaleiknum og virðast þeir félagar hreinlega ætla að taka yfir íþróttina. Þeir fá þá lítinn frið hvor frá öðrum.

Sport
Fréttamynd

Spaun steig ekki feilspor en stór nöfn í brasi

Bandaríkjamaðurinn JJ Spaun er einn með forystuna eftir fyrsta hring á Opna bandaríska mótinu í golfi og honum tókst að sleppa alfarið við skolla á Oakmont Country Club vellinum í dag.

Golf
Fréttamynd

Var í góðum séns en missti af sæti á Opna banda­ríska

Dagbjartur Sigurbrandsson náði ekki að tryggja sér sæti á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, hann endaði jafn í 38. sæti á lokaúrtökumóti í Columbus, Ohio í Bandaríkjunum í gær. Dagbjartur var í tólfta sæti eftir fyrri hringinn en sá seinni reyndist honum erfiður.

Golf
Fréttamynd

Frá­bær byrjun dugði ekki til og Gunn­laugur Árni úr leik

Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur í GKG, tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi í dag. Gunnlaugur Árni fór frábærlega af stað og sat um tíma í 2. sæti. Sú spilamennska entist þó ekki út daginn og hann er úr leik.

Golf
Fréttamynd

DeCham­beau leiðir með þremur fyrir loka­daginn

Bryson DeChambeau er með þriggja högga forystu fyrir lokadag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi sem fram fer á Pinehurst-vellinum í Norður Karólínu. Rory McIlroy, Patrick Cantley og Matthieu Pavon eru jafnir í öðru sæti.

Golf
Fréttamynd

Åberg með eins höggs for­skot

Hinn sænski Ludvig Åberg leiðir US Open mótið þegar tveimur umferðum er lokið. Hann lék hring gærdagsins á 69 höggum líkt og heimamaðurinn Bryson DeChambeau en er alls á 135 höggum, höggi minna en næstu þrír kylfingar.

Golf
Fréttamynd

Rory og Cantlay leiða á US Open

Norður-Írinn Rory McIlroy og Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay deila efsta sætinu á US Open en fyrsti hringurinn var spilaður í gær.

Golf