Margrét Júlía Rafnsdóttir

Hjarta umhverfismála
Um aldamótin síðustu hóf ég meistaranám í umhverfisfæði við Háskóla Íslands. Umhverfisverndin var þá hálfgert jaðarsport sem ekki öllum þótti fínt að stunda. Fólk setti upp spurnarsvip er ég sagði því hvað ég væri að læra og sum hváðu og spurðu hvort ég væri að læra umferðarfræði.

Blik í augum barna?
Fátt er yndislegra en að sjá eftirvæntingu og blik í augum barna sem bíða eftir hátíðarstundum eins og jólum. Börn á Íslandi búa flest við góðar aðstæður og geta notið hátíðarstunda við öryggi í faðmi ástvina á heimilum sínum.

Má bjóða þér stutta stráið?
Mörg strá eru sett saman í knippi, eitt þeirra er styttra en hin. Hópur barna kemur saman og eiga að draga strá úr knippinu. Sá sem dregur stutta stráið þarf að inna eitthvað óvinsælt verkefni af hendi. Máltækið „að draga stutta stráið“ kemur af þessari félagslegu athöfn og enginn vill draga það.

Vinnuvika barna
Á undanförnum misserum hafa ýmsar starfsstéttir samið um styttingu vinnuvikunnar. Með styttingunni fær fólk meiri frítíma til að sinna sjálfu sér, sínum áhugamálum og í samveru með fjölskyldu og vinum. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem vinnuvika launafólks er stytt.

Byrgjum eineltisbrunninn
Einelti getur verið fyrsta stefið í langri áfallasögu einstaklings. Einelti er sem dropinn sem byrjar að hola steininn. Þannig brýtur einelti smátt og smátt niður sjálfsmynd einstaklings. Barn sem verður fyrir einelti getur talið sig lítils virði og ekki eiga neitt gott skilið.

Ekki má höggva tvisvar í sama knérunn barna
Reglulega berast fréttir af kvíða, þunglyndi og vanlíðan ungmenna á Íslandi. Margt bendir til versnandi líðan þeirra, drengjum gangi illa í skóla og þar fram eftir götunum. Upphlaup verður í samfélaginu þegar niðurstöður koma úr PISA könnunum, ekki síst vegna stöðu íslenskra drengja í lestri.

Til hvers tómstundir?
Börn eiga rétt á menntun þar sem þau geta þroskast á eigin forsendum og ræktað hæfileika sína. Börn eiga einnig rétt á hvíld, tómstundum, leikjum og skemmtunum sem hæfa aldri þeirra og þroska.

Af gjörðum okkar munu börnin þekkja okkur
Árið 2020 mun vafalaust verða eitt af þeim sem skráð er á spjöld sögunnar, eins og önnur ár stórra viðburða, oftast slæmra. Árið 2020 var fyrir löngu orðið nokkurs konar brautarsteinn, löngu áður en það rann upp.

Í tilefni af 8. nóvember
Fátt er börnum og foreldrum þeirra mikilvægara en að börnunum líði vel í skólanum, eigi góða félaga og vini, hafi sjálfstraust og góða sjálfsmynd.

Menntamál, ekki bara á tyllidögum
Í áratugi hefur umræða um mikilvægi menntunar verið fyrirferðamikil í hátíðaræðum stjórnmálamanna. Þegar niður úr pontu er stigið eru orðin gleymd og efndir litlar. Þetta er gömul saga og ný sem skólafólk þekkir.

Krakkarnir í hverfinu eru allskonar en eiga öll rétt á gjaldfrjálsri grunnmenntun
Skólar eru hornsteinn jafnaðar í samfélaginu“ segir í riti útgefnu af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Við hjá Barnaheillum tökum undir þessa fullyrðingu og teljum afar mikilvægt að skólakerfið standi vörð um réttindi barna og vinni gegn mismunun.

Himnasending
Verkefnið er eins og himnasending til okkar,“ sagði leikskólastjóri einn að loknu námskeiði um Vináttu – forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti í leikskólum. „Það passar einstaklega vel inn í alla starfsemi og styður vel við önnur verkefni og áætlanir leikskólans.“ Setning sem þessi er ekkert einsdæmi,

Kópavogsdalur
Fyrir liggur ósk og tillaga aðstandanda Tennishallarinnar í Kópavogsdal um að stækka húsnæði sitt til austurs um 2.100 fermetra.

Gleðileg jól allra barna?
Jólin eru gjarnan nefnd hátíð barnanna, hátíð ljóss og friðar og hátíð samveru. Víða einkennir jólin mikil ofgnótt en annars staðar er skortur. Allir keppast við að gera vel við sig og sína, ekki síst við börnin sín og flestir reyna að hafa

Ef okkur er ekki sama um framtíð barnanna?…
Þá drepum við á bílvélinni þegar bíllinn er kyrrstæður, því það er óþarfi að brenna meira jarðefnaeldsneyti en þörf krefur.

Ég vil ekki leiða þig?…
Fátt er foreldrum mikilvægara en að börnum þeirra líði vel í skólanum, eigi góða félaga og vini, hafi sjálfstraust og góða sjálfsmynd. „Þú mátt ekki vera með í leiknum“ eða „ég vil ekki leiða þig“ eru orð lítilla leikskólabarna í íslenskum leikskólum, barna sem eru að fóta sig í flóknum heimi og læra samskipti við jafnaldra sína.

Frítíminn getur verið dýrt spaug
Brátt líður að sumri, skólar loka dyrum sínum og börnin flykkjast út til að njóta þess sem sumarið hefur upp á að bjóða; ferðalög, leiki, námskeið og samveru við fjölskyldu og vini. Ólíkt grunnskólanum, sem er kjölfesta allra barna

Einelti er á ábyrgð fullorðinna
Reglulega koma fram einstaklingar sem segja sögu sína af skelfilegu einelti, jafnvel einstaklingar sem enn eru á barnsaldri og hafa þurft að þola einelti árum saman, í aðstæðum sem þeir hafa ekkert val um að vera í, þ.e. skóla eða bekkjardeild.

Orðsending til jólasveina
Nú eru jólasveinar farnir að koma til byggða með ýmislegt spennandi í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein – eins og flestar þjóðir gera – heldur 13 sem koma einn af öðrum. Það hljóta að fylgja þessu gjafastússi mikil útgjöld á jólasveinaheimilinu.

Skilum peningunum aftur til skólanna
Atkvæði greitt Vinstri VG og félagshyggjufólki Í Kópavogi tryggir forgangsröðun í þágu barna og fjölskyldna þeirra.

Eru börn dregin í dilka vegna fátæktar?
„Þarna var stéttaskiptingin algjör. Þarna var búið að skipuleggja framtíðina fyrir börnin og ég var oft eins og illa klemmdur hlutur á milli stétta, komin af óregluheimili og átti stundum ekki fyrir nesti í skólann en samt í besta bekk með yfirstéttarbörnum.“

Það þarf þjóð til að vernda barn á netinu
Á undanförnum vikum hefur verið mikil umræða í samfélaginu um orðræðu á netinu. Við erum minnt á að það sem einu sinni fer á netið er hægt að grafa upp aftur. Menn geta þurft að mæta fortíð sinni og svara fyrir orðræðu sem er geymd en ekki gleymd. Börnin okkar alast upp sem netverjar. Það fennir síður yfir bernskubrek þeirra en okkar sem vorum börn fyrir tíma netsins.

Orðsending til jólasveina og foreldra
Nú nálgast jólin og jólasveinar fara að gera sig tilbúna til bæjarferða með ýmislegt spennandi í pokahorninu í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein eins og flestar þjóðir gera, heldur þrettán sem koma einn af öðrum.

Áríðandi skilaboð til ferðamanna!
Áríðandi skilaboð til ferðamanna er áletrun á póstkorti sem Barnaheill - Save the Children Íslandi hefur gefið út og er dreift til ferðamanna. Heilsugæslan hefur lagt verkefninu lið með því að hafa kortið sýnilegt

Það er erfitt að vera fátækur
Fátækt er samfélagsmein sem hefur aukist á Íslandi síðustu ár, líkt og gerst hefur í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Fátækt barna á Íslandi
Íslenskt samfélag er eitt ríkasta samfélag í heiminum. Á undanförnum árum hefur þó þrengt að hjá mörgum, kjör fólks hafa rýrnað og ójöfnuður og fátækt aukist, ekki síst hjá barnafjölskyldum. Nú er talið að tæplega 9.000 börn á Íslandi búi við fátækt og hefur þeim farið fjölgandi.

Hugrekki - Umhyggja - Umburðarlyndi - Virðing
Öll börn á Íslandi eiga rétt á því að lifa og þroskast, þau eiga rétt á lífsskilyrðum sem stuðla að líkamlegum, andlegum og félagslegum þroska þeirra. Þau eiga rétt á að rækta hæfileika sína og á umönnun og vernd gegn hvers kyns ofbeldi.
