Landslið kvenna í fótbolta

Sjáðu mörkin úr stórsigri Íslands
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann afar öruggan 6-0 sigur er liðið tók á móti Hvít-Rússum í undankeppni HM í kvöld. Sigurinn lyfti íslenska liðinu á topp C-riðils og framundan er hreinn úrslitaleikur gegn Hollendingum um beint sæti á HM næstkomandi þriðjudag.

„Þetta var bara á milli okkar“
„Það er eiginlega of langt síðan ég hef skorað og það var frábær tilfinning að sjá boltann í netinu, og það sérstaklega hérna heima á Laugardalsvellinum,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, sem skoraði fyrstu tvö mörk Íslands í 6-0 sigrinum gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld.

„Getum loksins farið að einbeita okkur að þessum leik á þriðjudaginn“
Glódís Perla Viggósdóttir gat leyft sér að brosa eftir öruggan 6-0 sigur Íslands gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld. Glódís skoraði fjóra mark Íslands og segir leikinn gott veganesti í leikinn gegn Hollendingum.

„Ekki í þessu landsliði fyrir eitthvað þannig“
„Við skoruðum sex góð mörk og héldum hreinu, og gáfum þeim aldrei séns. Við getum verið stolt af þessari frammistöðu,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir sem skoraði tvö marka Íslands í 6-0 sigrinum gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld.

„Vorum bara yfirburðarlið á vellinum“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var að vonum kátur eftir öruggan 6-0 sigur liðsins gegn Hvíta-Rússlandi í kvöld. Hann gekk svo langt að segja að leikurinn hafi nánast gengið fullkomlega upp.

Umfjöllun: Ísland - Hvíta-Rússland 6-0 | Komnar skrefi nær HM eftir stórsigur
Ísland steig stórt skref í átt að því að komast á HM kvenna í fótbolta í fyrsta sinn með 6-0 stórsigri á Hvíta-Rússlandi í kvöld.

Einkunnir Íslands: Dagný Brynjars maður leiksins á miðjunni
Ísland valtaði yfir Hvíta-Rússland, 6-0, í undankeppni HM2023 í kvöld. Hér er hægt að sjá einkunnir íslensku leikmannanna í leiknum þar sem Dagný Brynjarsdóttir var valin maður leiksins.

Twitter um landsleikinn: „Þvílík kona“
Íslenska kvennalandsliðið vann í kvöld lið Hvít-Rússa á Laugardalsvelli, 6-0. Íslenska þjóðin hefur verið dugleg að tjá sig um leikinn á Twitter og nokkur tweet má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Íslands: Amanda og Munda byrja
Hin 18 ára gamla Amanda Andradóttir er í byrjunarliði Íslands í dag þegar liðið mætir Hvíta-Rússlandi í næstsíðasta leik sínum í undankeppni HM í fótbolta.

Hallbera og fyrstu meistararnir heiðruð
Fyrir leik og í hálfleik leiks Íslands og Hvíta-Rússlands á Laugardalsvelli í dag verða Hallbera Guðný Gísladóttir og fyrstu Íslandsmeistararnir í fótbolta kvenna, FH-konur, heiðraðar.

„Þeirra leikur er svolítið villtur“
Þó að Ísland hafi unnið 5-0 stórsigur gegn Hvíta-Rússlandi í apríl, í leik sem fór fram í Belgrad, býr íslenska landsliðið sig undir erfiða rimmu á Laugardalsvelli í dag í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

„Ég var komin í gott stand á EM“
Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði í fótbolta segist vera á góðu róli fyrir leikina við Hvíta-Rússland í dag og Holland á þriðjudag, sem gætu skilað Íslandi beint á HM í fyrsta sinn.

„Þær tóku mjög stórt pláss í liðinu“
Ljóst er að Þorsteinn Halldórsson getur ekki stólað á sama byrjunarlið og á EM þegar Ísland mætir Hvíta-Rússlandi á Laugardalsvelli í dag, í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

„Ekki verið minnst á orðið Holland í okkar hópi“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta, sá ekki ástæðu til þess að kvarta yfir því að fyrir úrslitaleik Hollands og Íslands um sæti á HM á þriðjudag þyrfti aðeins Ísland að spila annan mikilvægan mótsleik í dag, gegn Hvíta-Rússlandi.

„Virkar á mig eins og Margrét Lára“
Sérfræðingar Bestu markanna telja að hin 18 ára gamla Amanda Andradóttir eigi að fá sæti í byrjunarliði Íslands gegn Hvíta-Rússlandi á Laugardalsvelli í dag, í leiknum mikilvæga í undankeppni HM.

Enn í óvissu eftir smitið fyrir úrslitaleikinn við Ísland
Eftir leik Íslands við Hvíta-Rússland í kvöld tekur við úrslitaleikur við Holland á þriðjudag, um sæti á HM kvenna í fótbolta. Óvissa ríkir um aðalmarkaskorara Hollands og einn besta leikmann heims, Vivianne Miedema.

„Ég hef oft pælt í því hvernig það er“
„Það er ótrúlega gott að koma heim. Veðrið mætti vera aðeins betra en það er samt alltaf gaman að koma og hitta stelpurnar,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir. Hún verður líklegast í liði Íslands sem mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM á Laugardalsvelli klukkan 17:30 í dag.

Ræddu um leikmannarót íslenska landsliðsins:„Gerir þetta ekki nema eitthvað sé virkilega að“
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM í dag og því var liðið eðlilega til umræðu í seinasta þætti af Bestu mörkunum. Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar þáttarins ræddu um það hversu margir leikmenn liðsins spiluðu á EM í sumar og voru sammála um það að of mikið rót hafi verið á liðinu.

„Ótrúlega hungraðar í HM eftir það sem gerðist á EM“
Það hefur verið skammt stórra högga á milli hjá Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur í sumar en hún er klár í slaginn við Hvít-Rússa og Hollendinga í síðustu leikjunum í undankeppni HM í fótbolta.

„Þykjumst alltaf vera stærstu og bestu stuðningsmenn í heimi“
„Fólk þarf að fara upp úr sófanum og mæta,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, aðspurð hvað þurfi að breytast til að uppselt sé á eins mikilvægan leik og viðureign Íslands og Hvíta-Rússlands í undankeppni HM í fótbolta á morgun.

Drullusama um umræðuna um Elínu Mettu
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari segist treysta öllum sínum leikmönnum til að vera í byrjunarliðinu gegn Hvíta-Rússlandi og Hollandi í leikjunum sem skera úr um hvort Ísland komist beint á HM kvenna í fótbolta.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn gegn Hvíta-Rússlandi
Á morgun mætir Ísland liði Hvíta-Rússlands í mikilvægum leik í undankeppni HM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli. Í hádeginu fór þar fram blaðamannafundur sem var í beinni útsendingu á Vísi.

„Skil ekki alveg það að velja Elínu Mettu á þeim stað sem hún er núna“
Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum settu stórt spurningamerki við það að Elín Metta Jensen skyldi fá sæti í landsliðshópnum sem mætir Hvíta-Rússlandi og Hollandi, í leikjum sem gætu skilað Íslandi á HM í fyrsta sinn.

Stelpurnar okkar beint á HM eða í flókið umspil sem teygir sig til Nýja-Sjálands
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á HM en það gæti breyst strax næsta þriðjudagskvöld. Ef liðið nær ekki HM-sæti það kvöld bíður þess önnur leið sem gæti orðið hreint ævintýralega löng og flókin, og falið í sér umspilsleiki hinu megin á hnettinum í febrúar.

Bestu mörkin: Geta Dagný, Gunnhildur Yrsa og Sara Björk spilað saman á miðjunni?
„Er pláss fyrir þessar þrjár „kanónur“ á miðjunni? Eru þær of líkar eða hvað finnst ykkur,“ spurði Helena Ólafsdóttir, þáttastýra Bestu markanna, sérfræðinga sína í síðasta þætti er miðja íslenska landsliðsins var rædd.

„Langar að setja kröfu á Íslendinga að koma og styðja við okkur“
„Jú ég viðurkenni það. Mér líður bara ágætlega,“ sagði landsliðsmarkvörður Íslands og nýkrýndur bikarmeistari Sandra Sigurðardóttir aðspurð hvort henni liði ekki nokkuð vel þessa dagana. Sandra ræddi við fjölmiðla fyrir landsleikina mikilvægu sem fram fara í upphafi septembermánaðar.

„Mjög gaman og næs“
Bikarhetja Valsara, Ásdís Karen Halldórsdóttir, hafði aldrei spilað á Laugardalsvelli fyrir síðasta laugardag þegar hún skoraði sigurmark Vals í 2-1 sigri á Breiðabliki í bikarúrslitaleik. Nú er hún mætt aftur vegna komandi landsleikja.

Yfir 365 milljónir horfðu á stelpurnar okkar og aðrar á EM
Meira en tvöfalt fleiri áhorfendur fylgdust með Evrópumóti kvenna í fótbolta í sumar en síðast þegar mótið var haldið, sumarið 2017.

„Þökkum allan stuðning sem þjóðin er til í að gefa okkur“
Glódís Perla Viggósdóttir segir það gott að hafa ekki þurft að bíða lengi frá EM eftir því að hitta aftur vinkonur sínar í íslenska landsliðinu í fótbolta. Framundan eru mikilvægir leikir í undankeppni HM og Glódís vonast eftir góðum stuðningi líkt og á EM.

„Af hverju notaði KSÍ ekki tækifærið og dúndraði inn miðasölunni?“
Í umræðu um kvennalandsliðið í fótbolta í Bestu mörkunum veltu sérfræðingarnir fyrir sér miðasölu á leik Íslands við Hvíta-Rússlands, sem er síðasti heimaleikur liðsins á árinu og jafnframt fyrsti heimaleikurinn eftir Evrópumótið í sumar.