
Landslið kvenna í fótbolta

„Gaman að fá að vera partur af stóru skrefi í íslenskri fótboltasögu“
Glódís Perla Viggósdóttir segist vera stolt af því að vera valin besti miðvörður heims en að sama skapi ekki hrifin af einstaklingsverðlaunum í knattspyrnu. Fótbolti sé hópíþrótt.

Stelpurnar okkar hita upp fyrir EM með leik á Spáni við Dani
Eftir leikina tvo við Bandaríkin ytra á síðustu dögum er nú orðið ljóst að íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Danmörku í vináttulandsleik á Spáni 2. desember.

Glódís Perla besti miðvörður í heimi
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir varð í 22. sæti í Ballon d'Or kjörinu en úrslitin voru kunngjörð í gær. Það er líka hægt að líta á niðurstöðuna á annan hátt.

„Þetta er bara hundfúlt“
Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í marki íslenska kvennalandsliðsins í 3-1 tapi á móti Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í vináttulandsleik í Nashville í nótt.

Karólína skoraði beint úr horni á móti þeim bandarísku: „Sjúklega ánægð“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði ótrúlegt mark þegar íslenska kvennalandsliðið tapaði á móti Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í vináttulandsleik í Nashville í Bandaríkjunum seint í gærkvöldi.

Mark beint úr horni dugði ekki til
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 3-1 tap er liðið mætti Bandaríkjunum í vináttuleik í kvöld.

Bryjunarlið Íslands: Sex breytingar frá tapinu
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur valið þá ellefu leikmenn sem hefja leik er liðið mætir Bandaríkjunum í vináttulandsleik í kvöld.

Bergdís og Ísabella tryggðu Íslendingum sigur á Finnum
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum 23 ára og yngri svaraði fyrir tapið gegn Finnlandi á fimmtudaginn með því að vinna leik liðanna í dag, 1-2.

Selma um draumamarkið: „Langt síðan ég skoraði með vinstri“
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta laut í lægra haldi fyrir Bandaríkjunum í nótt, 3-1. Markaskorari Íslendinga segir þá geta tekið margt jákvætt út úr leiknum gegn Ólympíumeisturunum og efsta liði heimslistans.

Stórkostlegt mark Selmu í tapi fyrir Bandaríkjunum
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tapaði fyrir Ólympíumeisturum Bandaríkjanna, 3-1, í fyrri vináttuleik þjóðanna í nótt. Selma Sól Magnúsdóttir skoraði mark Íslands með frábæru skoti fyrir utan vítateig. Leikið var í Austin, Texas.

Heimakonan Natasha í vörninni og alls sjö breytingar frá síðasta leik
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið byrjunarliðið sitt fyrir vináttulandsleik á móti Bandaríkjunum en leikurinn fer fram í nótt.

„Prófraun fyrir okkur að mæta þeim allra bestu“
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, segir leikina gegn stærstu liðum í heimi vera þá leiki sem íslenska liðið getur lært hvað mest af. Ísland heimsækir ríkjandi Ólympíumeistara Bandaríkjanna í kvöld.

Stelpurnar fengu skell á móti Finnum
Íslenska 23 ára landslið kvenna tapaði vináttulandsleik á móti Finnum í dag.

Mæta besta liði í heimi: „Verður spennandi að takast á við það“
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir ríkjandi Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í æfingaleik í Austin, Texas skömmu fyrir miðnætti í kvöld. Um fyrri leik liðanna í tveggja leikja æfingaleikja hrinu er að ræða og andstæðingur Íslands gæti vart orðið sterkari.

Fanney verður ekki með gegn Ólympíumeisturunum
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, markvörður Stjörnunnar, hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðið í knattspyrnu í stað Fanneyjar Ingu Birkisdóttir sem fékk höfuðhögg á æfingu sem veldur því að hún mun ekki geta tekið þátt í tveimur æfingaleikjum gegn ríkjandi Ólympíumeisturum Bandaríkjanna.

„Skrýtin tilhugsun að maður komi frá svona litlum bæ“
Það hefur ekki verið eilífur dans á rósum en landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir hefur verið að upplifa draum sinn á þessu ári, sem atvinnumaður í fótbolta, og hún afrekaði um helgina að verða Noregsmeistari með liði sínu Vålerenga í fyrstu tilraun. Nú er hún mætt til Bandaríkjanna til að spila við Ólympíumeistarana.

Hörð barátta um markvarðarstöðuna: „Er spennt að fara inn í þessa samkeppni“
Cecilíu Rán Rúnarsdóttur klæjar í fingurna að spila aftur með íslenska landsliðinu og er klár í samkeppnina um markvarðastöðuna þar. Hún segir að Íslendingar stefni hátt á Evrópumótinu í Sviss á næsta ári.

Tvær breytingar á Bandaríkjahópnum
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur neyðst til að gera tvær breytingar á landsliðshópnum sem tekst á við Bandaríkin í tveimur æfingaleikjum síðar í mánuðinum.

Aðeins tvöfaldur espressó gegn Íslandi
Emma Hayes, þjálfari ólympíumeistaranna í bandaríska landsliðinu í fótbolta, hefur valið 26 leikmenn fyrir vináttulandsleikina tvo við Ísland í lok þessa mánaðar.

Glódís kemst ekki á verðlaunahátíðina: „Mér finnst þetta bara fáránlegt“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, segir það fáránlegt að stærsta verðlaunahátíð ársins í fótboltaheiminum, þar sem sjálfur gullboltinn verður afhentur bestu leikmönnum heims í karla- og kvennaflokki, skuli vera haldin í miðjum landsleikjaglugga kvennalandsliða. Glódís Perla Viggósdóttir er fyrsti Íslendingurinn sem er tilnefnd til verðlaunanna en hún mun ekki geta mætt á hátíðina þar sem að hún verður stödd í landsliðsverkefni.

Þorsteinn hefur gaman að Trump en er frekar Harris megin
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því bandaríska nokkrum dögum fyrir forsetakosningarnar vestanhafs. Landsliðsþjálfari Íslands var spurður að því á blaðamannafundi hvort hann styddi Donald Trump eða Kamölu Harris.

Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta gerir eina breytingu á hópnum sem tryggði sig inn á EM í sumar, fyrir komandi leiki við Bandaríkin.

Þorsteinn kynnti Bandaríkjafarana
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í vináttulandsleikjum ytra síðar í þessum mánuði. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kynnti val sitt á landsliðshópnum og svaraði spurningum fjölmiðla á blaðamannafundi í dag.

Miðasala hafin á EM 2025 og skipulagning hafin fyrir 2029
Fimm formleg boð bárust til UEFA um að halda Evrópumót kvenna í knattspyrnu árið 2029. Frá Þýskalandi, Póllandi, Portúgal og Ítalíu, auk sameiginlegs boðs frá nágrannaþjóðunum Danmörku og Svíþjóð.

Hélt hann væri laus við þessi mál
Eysteinn Pétur Lárusson kann vel við sig í nýju hlutverki, sem framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands. Fyrstu vikurnar í starfi hafa verið viðburðaríkar.

KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár
Knattspyrnusamband Íslands hefur lagt fram umsókn um úthlutun í Afrekssjóð ÍSÍ, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, fyrir árið 2025. Frá þessu er greint á vef KSÍ.

Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur?
Knattspyrnusambönd Svíþjóðar og Danmerkur hafa nú látið UEFA vita af því að þau sækist eftir að halda lokakeppni Evrópumóts kvenna í fótbolta árið 2029.

Bara tvær fljótari en Sveindís
Sveindís Jane Jónsdóttir er þriðja fljótasta knattspyrnukona heims, ef miðað er við tölurnar í nýjustu útgáfu FC fótboltatölvuleiksins.

Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu
Jörundur Áki Sveinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna og nú yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, mætti í heimsókn til Helenu Ólafsdóttur þar sem hitað var upp fyrir 3. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta.

KSÍ lýsir yfir ánægju sinni með að Margrét taki mikilvæg verkefni að sér
Margrét Magnúsdóttir flytur sig til hjá Knattspyrnusambandi Íslands og það verður nóg að gera hjá þjálfaranum á næstunni.