
UMF Álftanes

„Aðdáendur liðsins munu kynnast mínum gríska anda og orku“
Álftanes hefur sótt gríska framherjann Dimitrios Klonaras fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla í körfubolta. Hann á að baki farsælan háskólaferil í Bandaríkjunum.

Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum
Álftanes hefur fundið sér bandarískan leikmann fyrir næsta tímabil í Subway deild karla í körfubolta. Sá heitir Andrew Jones.

Besti leikmaður 1. deildarinnar til liðs við Álftanes
Álftnesingum hefur borist vænn liðsstyrkur fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla en Viktor Steffensen skrifaði undir hjá félaginu í dag. Viktor, sem er 22 ára, er uppalinn í Fjölni og var hann valinn besti leikmaður 1. deildarinnar síðasta vetur.

Álftanes semur við tveggja metra Frakka
Alexez Yetna er genginn til liðs við Álftanes og mun leika með liðinu í Subway deild karla á næsta tímabili.

Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka
Í kvöld mætast Þór Þ. og Álftanes í styrktarleik til minningar um Bjarka Gylfason sem lést langt fyrir aldur fram fyrr á þessu ári.

„Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“
Kjartan Atli Kjartansson var afskaplega svekktur með útgöngu Álftaness úr úrslitakeppni Subway deildar karla. Keflvíkingar unnu stórsigur í Forsetahöllinni í kvöld, lokatölur 85-114.

Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt
Keflavík tryggði sig áfram í undanúrslit Subway deildar karla með stórsigri gegn Álftanesi. Lokatölur í Forsetahöllinni 85-114. Keflavík mætir Grindavík í næstu umferð.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik
Keflavík lagði Álftanes í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Keflavík leiðir nú einvígið 2-1 og þarf aðeins einn sigur til að komast í undanúrslit.

Kjartan Atli sló metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður
Álftnesingar settu nýtt met í úrslitakeppni karla í körfubolta í gær með því að vinna stærsta sigurinn í fyrsta heimaleik félags í sögu úrslitakeppninnar.

„Svona leikir eru leikir andans“
Álftnesingar unnu sinn fyrsta leik í úrslitakeppni efstu deildar í kvöld þegar liðið lagði Keflavík nokkuð örugglega, 77-56. Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness var afskaplega stoltur í leikslok, bæði af sínu liði og körfuboltasamfélaginu á Álftanesi.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Álftanes - Keflavík 77-56 | Nýliðarnir jöfnuðu metin í einvíginu
Álftnesingar léku sinn fyrsta heimaleik í úrslitakeppni efstu deildar karla í körfubolta í kvöld og voru greinilega mættir til að selja sig dýrt og verja heimavöllinn en Keflvíkingar skoruðu aðeins sex stig í fyrsta leikhluta.

„Þetta er eitt af, ef ekki besta sóknarliðið í deildinni“
Keflavík tók á móti Álftanesi í 8-liða úrslitum Subway deildar karla. Það voru heimamenn sem tóku forystu í einvíginu með sjö stiga sigri, 99-92.

Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 99-92 | Of sein endurkoma
Í fyrsta leik sínum í úrslitakeppninni í sögu félagsins tapaði Álftanes fyrir bikarmeisturum Keflavíkur, 99-92.

„Þetta þarf Kjartan að taka af Keflvíkingum“
Keflvíkingar unnu sinn fyrsta titil í tólf ár þegar þeir urðu bikarmeistarar á dögunum og í kvöld hefst vegferð þeirra að reyna að enda líka sextán ára bið eftir Íslandsmeistaratitlinum.

Kjartan minntist Bjarka Gylfasonar: „Erum búnir að vera að vinna úr þessu sem lið“
Álftanes vann níu stiga sigur gegn Hetti 63-54. Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, var ánægður með sigurinn en fór einnig yfir áfallið sem liðið varð fyrir þegar Bjarki Gylfason féll frá á dögunum en hann var hluti af liðinu.

Svona lítur úrslitakeppni Subway deildar karla út
Lokaumferð deildarkeppni Subway deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni deildarinnar. Það eru Valsmenn sem standa uppi sem deildarmeistarar þetta tímabilið. Haldið ykkur fast, skemmtilegasti hluti tímabilsins er framundan.

Umfjöllun og viðtöl: Álftanes - Höttur 63-54 | Álftanes sá til þess að Stjarnan komst ekki í úrslitakeppnina
Álftanes vann níu stiga sigur gegn Hetti 63-54. Fyrri hálfleikur var afar slæmur hjá báðum liðum en heimamenn spiluðu betur í síðari hálfleik og unnu nokkuð öruggan sigur.

„Auðvitað vonum við að Álftnesingar mæti með bumbuboltaliðið sitt“
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, segir það hafa lítið upp á sig að spá í aðra leiki en þann milli Stjörnunnar og Breiðabliks í kvöld. Stjarnan þarf að treysta á önnur úrslit en sín eigin til að komast í úrslitakeppnina.

Hér geta liðin endað eftir kvöldið: Spenna í lokaumferð Subway
Í kvöld kemur í ljós hvaða lið mætast í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta en útreikningurinn í lok kvöld gæti orðið svolítið flókinn. Við ætlum að reyna einfalda aðeins þessa flóknu stöðu.

„Betri en hann var nokkurn tímann með Njarðvík“
„Það er þessi reynslubolti í Hauki Helga Pálssyni sem er svolítið að ganga frá þessum leik,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds, eftir að Álftanes lagði Hauka í Ólafssal.

„Það sem við höfum verið að bíða eftir í vetur“
Pétur Rúnar Birgisson fyrirliði Tindastóls var stoltur af sínu liði eftir sigur á Álftanesi í undanúrslitum VÍS-bikarsins. Hann sagði að nú þyrfti liðið að horfa fram á við það sem eftir er tímabils.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Tindastóll - Álftanes 90-72 | Íslandsmeistararnir í bikarúrslit
Íslandsmeistarar Tindastóls eru komnir í úrslit VÍS-bikars karla í körfubolta eftir sigur á nýliðunum frá Álftanesi. Úrslitin fara fram á laugardag en síðar í kvöld kemur í ljós hvort Keflavík eða Stjarnan fylgi Stólunum þangað.

Magnaður leikmaður með mikið vopnabúr: „Ekki eins og það sé einhver aukvisi að dekka hann“
Dúi Þór Jónsson átti hreint út sagt magnaðar lokamínútur þegar hann tryggði Álftanesi sigur gegn uppeldisfélagi sínu, Stjörnunni, síðastliðinn fimmtudag.

Haukur Helgi: Búið að vera þungt en gott að vinna grannaslag og koma okkur í gírinn
Eftir langa fjarveru átti Haukur Helgi Pálsson frábæra endurkomu í lið Álftaness sem lagði Stjörnuna að velli í Forsetahöllinni í kvöld. Haukur endaði stigahæstur með 23 stig, þar af fimm þriggja stiga skot, auk þess greip hann 8 fráköst og stal einum bolta.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Álftanes - Stjarnan 86-77 | Dúi kláraði uppeldisfélagið og tryggði sæti í úrslitakeppninni
Dúi Þór Jónsson var frábær á lokamínútnum á móti uppeldisfélagi sínu þegar Álftanes vann níu stiga sigur á nágrönnum sínum Stjörnunni, 86-77, og tryggði sér sæti í úrslitakeppni Subway deild karla í körfubolta.

Óheppnin eltir Hauk Helga
Körfuboltamaðurinn Haukur Helgi Pálsson hefur verið frá keppni síðustu vikur vegna meiðsla en stefnir á endurkomu í Subway-deildinni.

Foxillur Kjartan grýtti spjaldinu í gólfið: „Áran yfir þeim rosa þung og leiðinleg“
Það er mikið í húfi hjá körfuboltaliði Álftaness á næstu vikum en sérfræðingarnir í Subway Körfuboltakvöldi voru sammála um að áran yfir liðinu gæfi ekki ástæðu til bjartsýni.

Kjartan Atli: Ekkert jákvætt sem ég ætla að taka úr þessum leik
Leikur Álftaness og Vals á Hlíðarenda var í miklu jafnvægi í fyrri hálfleik og var staðan 46-42 fyrir heimamönnum en það skildi heldur betur á milli liðanna í þeim seinni. Lokatölur urðu 89-71 fyrir Val og það var augljóst að Kjartan Atli þjálfari Álftaness var hundfúll með kvöldið.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Álftanes 89-71 | Ellefu sigrar í röð hjá Val
Valur steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum með sigri á nýliðum Álftaness á Hlíðarenda. Valsmenn sýndu af sér fagmannlega frammistöðu og eftir jafnan fyrri hálfleik þá gengu þeir á milli bols og höfuðs á Álftnesingum. Lokatölur 89-71.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Álftanes - Keflavík 109-114 | Háspenna lífshætta í Forsetahöllinni
Keflavík vann ótrúlegan fimm stiga sigur gegn Álftanesi í tvíframlengdum maraþonleik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 109-114.