
Barnalán

Lítill Arnarsson væntanlegur í janúar
Ofurparið Arnar Þór Ólafsson og Helga Kristín Ingólfsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni næstkomandi janúar. Þau tilkynntu barnalánið með Instagram færslu og skrifa: „Hlökkum til að taka á móti litlum Arnarssyni í janúar“.

Heiðar Logi og Anny Björk eiga von á barni
Heiðar Logi Elíasson og Anný Björk Arnardóttir eiga von á barni. Parið greinir frá gleðitíðindunum í einlægri færslu á Instagram en þar kemur fram að von sé á erfingjanum í desember.

Leifur og Hugrún orðin foreldrar
Knattspyrnukappinn og fyrirliði HK í Bestu deild karla, Leifur Andri Leifsson, og kærastan hans Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins og stjórnarmeðlimur FKA, eignuðust stúlku síðastliðinn föstudag. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Drengur Ara og Dórótheu kominn með nafn
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir létu skíra son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Einar Freyr Arason.

Tanja Ýr á von á barni með breskum hermanni
Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tanja deildi gleðitíðindunum í færslu á Instagram. Á myndunum má sjá fallegar myndir af parinu þar sem óléttkúla Tönju er í aðalhlutverki.

„Sigga getur ekki lengur haldið því leyndu að hún er ólétt“
Bardagakappinn Jón Viðar Arnþórsson og Sigríður Jóna Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur eiga von á sínu öðru barni saman í september. Fyrir á Jón Viðar einn dreng.

Sonur Söndru og Daníels kominn með nafn
Handboltaparið Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn fékk nafnið Martin Leo Daníelsson. Parið greindi frá gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram í gær.

Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason, landsliðsfólk í handbolta, hefur eignast sitt fyrsta barn.

Vala Eiríks og Óskar Logi greina frá kyninu
Útvarspkonan Valdís Eiriksdóttir, sem margir þekkja sem Völu Eiríks, og Óskar Logi Ágústssonar úr Vintage Caravan eiga von á dreng í nóvember. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman. Vala greinir frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram á dögunum.

Erna Mist og Þorleifur eiga von á barni
Erna Mist Yamagata listakona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á barni saman.

Margot Robbie ólétt
Ástralska leikkonan Margot Robbie á von á sínu fyrsta barni með kvikmyndagerðarmanninum Tom Ackerley.

Nilli og Sóley eignuðust dóttur
Leikarinn Níels Thibaud Girerd og Sóley Guðmundsdóttir, starfsmaður á samskiptadeild KSÍ eignuðust dóttur 25. júní síðastliðinn. Nilli greindi frá gleðifréttum á samfélagsmiðlum.

Högni og Snæfríður eignuðust stúlku
Högni Egilsson og Snæfríður Ingvarsdóttir eignuðust stúlku í lok júní. Tíðindunum deilir Snæfríður með fylgjendum sínum á Instagram.

Egill og Íris eignuðust stelpu
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, eignuðust stúlku þann 26. júní síðastliðinn.

Garðar Gunnlaugs að verða afi
Garðar Gunnlaugsson fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, tilkynnti um það á Instagram í gær að hann væri að fara verða afi. Sonur hans, Daníel Ingi og kærasta hans Lena Davíðsdóttir, eiga von á barni.

Sumarglaðningur Vigdísar og Ara Freys sparkaði sér í heiminn
Leikarinn Ari Freyr Ísfeld Óskarsson leikari og Vigdís Perla Maack, sýningarstjóri í Þjóðleikhúsinu og verkefnastjóri, eignuðust stúlku þann 7. júní síðastliðinn. Vigdís lýsir fæðingu dótturinnar á einlægan og kómískan hátt í færslu á samfélagsmiðlum.

Dóttir Alfreðs og Fríðu komin með nafn
Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir létu skíra dóttur þeirra við fallega athöfn á dögunum. Stúlkan fékk nafnið Eva Kolbrún. Seinna nafnið er í höfuðið á móður Fríðu.

Leyfir bumbunni að njóta sín á meðgöngunni
Fyrirsætan og förðunarmógúllinn Hailey Bieber er tískufyrirmynd margra en tæplega 53 milljónir fylgja henni á samfélagsmiðlinum Instagram. Hailey og Justin Bieber eiginmaður hennar eiga von á barni og hefur meðgöngustíll hennar vakið mikla athygli, þar sem hún fer eigin leiðir og er ótrúlega smart.

„Fann svo til með okkur að hann gaf okkur afslátt“
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir söng-og leikkona segist ekki alveg hafa hugsað málin til enda þegar hún bókaði ferð fyrir alla fjölskylduna sína til Ítalíu. Yngsta dóttir hennar og Júlí Heiðars Halldórssonar er einungis fjögurra vikna gömul og það reyndist þrautin þyngri að taka passamynd af þeirri litlu.

Tvíburarnir komnir með nafn
Victor Guðmundsson, læknir og tónlistarmaður, og Dagbjört Gudjohnsen Guðbrandsdóttir bráðalæknir hafa nefnt tvíburasyni sína. Drengirnir heita Máni og Stormur. Victor greindi frá gleðitíðindunum í færslu á samfélagsmiðlum í vikunni.

Greta Salóme og Elvar greina frá kyninu
Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á dreng í haust. Um að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau Bjart Elí sem fæddist í nóvember árið 2022. Greta tilkynnti gleðitíðindin í færslu á samfélagsmiðlum.

Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins
Athafnakonan Inga Tinna Sigurðardóttir og handboltakempan Logi Geirsson eiga von á stúlku í ágúst.

Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff eiga von á sínu fyrsta barni saman. Samkvæmt heimildum fréttastofu á hún von á sér í nóvember.

„Örlögin leiddu okkur tvö alveg klárlega saman“
„Við erum sem sagt frekar klassískt nútíma par og kynnumst á Tinder í byrjun 2020,“ segir Fanney Dóra Veigarsdóttir, förðunarfræðingur og áhrifavaldur, um samband hennar og unnustans, Arons Ólafssonar rafvirkjanema. Saman eiga þau eina stúlku, Thalíu sem er þriggja ára, og von á sínu öðru barni í ágúst.

Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“
Leikarinn Jörundur Ragnarsson og kærastan hans Magdalena Björnsdóttir eignuðust dreng 2. maí síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Jörundur einn son, Ragnar sem fermdist í vor.

Katrín Edda og Markus opinbera kynið
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur og verkfræðingur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech eiga von á dreng. Fyrir eiga þau eina dóttur, Elísu Eyþóru sem er eins árs.

Greta Salóme og Elvar eiga von á sínu öðru barni
Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu öðru barni saman. Greta tilkynnti gleðitíðindin á samfélagsmiðlum.

Hækkandi sól, sumarfrí og Bríet á bossanum
Létt er yfir landanum þessa dagana þar sem sólin hefur heiðrað okkur Íslendinga með nærveru sinni. Samfélagsmiðlarnir eru skreyttir sólbrúnum kroppum, ferðalögum og öðrum herlegheitum hvort sem er innanlands eða erlendis.

Annie Mist og Frederik nefna soninn
Crossfit-parið Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Emil Aegidius létu skíra son sinn viðhátíðlega athöfn um helgina. Drengurinn, sem kom í heiminn í apríl, fékk nafnið Atlas Týr. Annie Mist greinir frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum.

Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína
Tískuáhugakonan og ofurskvísan Selma Lind er með einstakan stíl og hefur saumað skemmtilegar flíkur á sjálfa sig. Í fyrra eignaðist Selma sitt fyrsta barn og segist hún nú vera að finna sinn stíl upp á nýtt eftir meðgönguna. Hún er viðmælandi í Tískutali.