Sýn
3 4 5 6 ›
Helga Björg, Ingigerður og Páll Vignir í nýjum hlutverkum hjá Sýn Helga Björg Antonsdóttir, Páll Vignir Jónsson og Ingigerður Guðmundsdóttir hafa ýmist verið ráðin til starfa hjá Sýn eða taka við nýjum störfum hjá fyrirtækinu. Helga Björg hefur verið ráðin markaðsstjóri Vodafone, Ingigerður sem nýr öryggis- og gæðastjóri og Páll Vignir nýr forstöðumaður fjölmiðlalausna. Viðskipti innlent 16.8.2022 14:09
Keppinautar vilja skerða einkakaup milli Símans og Mílu til muna Keppinautar Símasamstæðunnar telja að fyrirhugaður einkakaupasamningur á milli Símans og Mílu til 17 ára hafi skaðleg áhrif á samkeppni á íslenskum fjarskiptamarkaði og því þurfi að stytta lengd samningsins til muna. Þetta kemur fram í umsögnum fjarskiptafyrirtækja um tillögur franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian um skilyrði vegna kaupanna á Mílu. Innherji 9.8.2022 12:57
Hilmar Þór íhugar alvarlega að bjóða sig fram til stjórnar Sýnar Hilmar Þór Kristinsson, annar eigandi eignarhaldsfélagsins Fasta sem keypti á dögunum stóran hlut í Sýn, íhugar alvarlega að bjóða sig fram til stjórnar fjarskipta- og fjölmiðlunarfyrirtækisins. Þetta staðfestir Hilmar Þór í samtali við Innherja. Innherji 5.8.2022 13:53
Stjórn Sýnar boðar til hluthafafundar Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar að kröfu Gavia Invest ehf, sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 4.8.2022 15:36
Frostaskjól selur félagi Rannveigar og Hilmars allt sitt í Sýn Frostaskjól ehf. hefur selt Fasta ehf. 3,35 prósent hlut sinn í Sýn auk 4,35 prósent hluta sem félagið átti í framvirkum samningum. Fasti er í eigu helmingseigenda Frostaskjóls en Róbert Wessmann á hinn helminginn. Viðskipti innlent 4.8.2022 11:33
Félag Reynis á rúmlega helmingshlut í Gavia Infocapital ehf., fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar á ríflega helmingshlut í nýstofnaða fjárfestingarfélaginu Gavia Invest, sem keypti á dögunum stóran hlut í Sýn. Viðskipti innlent 4.8.2022 10:15
Hópur einkafjárfesta tengdur Gavia Invest kaupir í Sýn fyrir milljarð Hópur fjárfesta, sem er leiddur af fjársterkum einstaklingum og er í samstarfi með nýjum stærsta hluthafa Sýnar, hefur keypt samanlagt um sex prósenta hlut í félaginu fyrir um einn milljarð króna. Viðskiptin voru kláruð fyrir opnun markaða í morgun, samtals tæplega 16 milljónir hluta að nafnvirði á genginu 64 krónur á hlut, og á meðal seljenda voru lífeyrissjóðir í hluthafahópi fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins, samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 2.8.2022 10:39
Krefjast stjórnarkjörs í Sýn Gavia Invest ehf. hefur farið fram á að boðað verði hluthafafundar í Sýn hf., en félagið fer nú með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn sem nemur 16,06 prósent. Þess er krafist að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin. Viðskipti innlent 26.7.2022 13:01
„Ætlum okkur að hafa virka aðkomu að rekstrinum,“ segir nýr stærsti eigandi Sýnar Forsvarsmaður nýstofnaðs fjárfestingafélags sem hefur fest kaup á um 15 prósenta hlut í Sýn, sem gerir það að stærsta hluthafanum, segir að fjárfestahópurinn hafi „fylgst lengi“ með fyrirtækinu. Innherji 25.7.2022 12:26
Gavia Invest stærsti hluthafi Sýnar eftir kaup á hlut Heiðars Gavia Invest, fjárfestingafélag sem er að hluta til í eigu Reynis Grétarssonar, er orðið stærsti hluthafi fjarskipta- og fjölmiðlunarfyrirtækisins Sýnar með 14,95 prósenta hlut eftir kaup á eignarhlut Heiðars Guðjónssonar um helgina Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar. Innherji 25.7.2022 10:17
Heiðar selur allt í Sýn fyrir 2,2 milljarða og hættir sem forstjóri Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, hefur selt allan 12,7 prósenta hlut sinn í fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu fyrir tæplega 2,2 milljarða króna. Samhliða sölunni mun Heiðar láta af störfum sem forstjóri félagsins um mánaðarmótin. Innherji 25.7.2022 09:40
Heiðar hættir sem forstjóri Sýnar Heiðar Guðjónsson hefur sagt upp sem forstjóri Sýnar og mun uppsögnin taka gildi fyrir lok þessa mánaðar. Heiðar gekk um helgina frá sölu á öllum 12,72 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningum til Kauphallar. Viðskipti innlent 25.7.2022 09:34
Nova og Sýn samnýta 5G senda Forsvarsmenn Nova hf. og Sýnar hf. skrifuðu í dag undir samning um samstarf félaganna við uppbyggingu og samnýtingu sendastaða vegna 5G uppbyggingar. Það felur í sér uppbyggingu og samnýtingu á tvö hundruð 5G sendum á samningstímanum en hann gildi til loka ársins 2028. Viðskipti innlent 13.7.2022 16:18