Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands
2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að rússneskum hermönnum muni fjölga á norðurslóðum. Á sama tíma gagnrýndi hann aðildarríki Atlantshafsbandalagsins fyrir meinta vígvæðingu á norðurslóðum. Þetta sagði hann í ræðu sem hann flutti í dag um þau fjölmörgu og stóru tækifæri á þessum slóðum og ætlanir ríkisstjórnar hans til að nýta þau. Erlent 27.3.2025 18:04
Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir nauðsynlegt að Bandaríkin eignist Grænland. Þetta hefur hann ítrekað sagt á undanförnum mánuðum og hefur hann meðal annars neitað að útiloka beitingu hervalds og sagt að þeir muni eignast Grænland með einum hætti eða öðrum. Erlent 26.3.2025 23:32
Heimsækja eingöngu herstöð á Grænlandi JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans munu eingöngu heimsækja bandaríska herstöð á Grænlandi. Hætt hefur verið við heimsóknir til Nuuk og Sisimiut og hafa aðrir sem ætluðu með, eins og þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins, hætt við ferðina. Erlent 26.3.2025 00:05
Vance á leið til Grænlands JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að heimsækja Grænland með Usha Vance, eiginkonu sinni á föstudag. Hann segist ætla athuga öryggisaðstæður í landinu. Erlent 25.3.2025 20:51
Sakar Bandaríkjastjórn um óásættanlegan þrýsting á Grænland Forsætisráðherra Danmerkur segir að fyrirhuguð heimsókn óboðinnar bandarískrar sendinefndar til Grænlands setji óásættanlegan þrýsting á bæði Danmörku og Grænland. Þau ætli sér hins vegar að standast þann þrýsting. Erlent 25.3.2025 13:54
Úkraína og stóra myndin í alþjóðasamskiptum Eftirfarandi var haft eftir Henry Kissinger fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna: "It may be dangerous to be America's enemy, but to be America's friend is fatal," Þetta mætti þýða þannig "Það getur verið hættulegt að vera óvinur Bandaríkjanna, en að vera vinur Bandaríkjanna er banvænt," Er þetta rétt? Er þetta að rætast í Úkraínu? Skoðun 24.3.2025 10:30
„Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn. Nei, við viljum ekki vera Danir. Við viljum vera Grænlendingar og við viljum sjálfstæði í framtíðinni,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, formaður formaður Demokraatic, fyrir þingkosningarnar í síðust viku. Erlent 14.3.2025 06:36
Gerir lítið úr tilkalli Dana til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti segist halda að Bandaríkin muni innlima Grænland. Fráfarandi formaður landstjórnar Grænlands, Múte B. Egede, hefur ítrekað undirstrikað það í viðtölum að Grænlendingar hafi engan áhuga á því að ganga inn í Bandaríkin. Erlent 13.3.2025 18:00
Sögulegar kosningar í skugga ásælni Trumps Á morgun ganga Grænlendingar til þingkosninga sem verða, að sögn formanns landstjórnarinnar, þær örlagaríkustu síðari tíma. Grænlendingar hafa setið undir stöðugum hótunum um innlimun inn í Bandaríkin og spurningin um sjálfstæði brennur á allra vörum. Erlent 10.3.2025 22:30
Segir Bandaríkjaforseta sýna Grænlendingum lítilsvirðingu Formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir að Bandaríkjaforseti komi ekki fram við Grænlendinga af virðingu með hótunum sínum um að yfirtaka eyjuna. Hann vill sjá breiða samsteypustjórn eftir kosningar til grænlenska þingsins sem fara fram á morgun. Erlent 10.3.2025 09:08
Bandaríkin muni eignast Grænland með einum eða öðrum hætti Ummæli Donald Trump um Grænland í ræðu forsetans á bandaríska þinginu í nótt hafa vakið hörð viðbrögð í Danmörku. Erlent 5.3.2025 10:35
Krókur Dana á móti bragði sem vilja kaupa Kaliforníu af Trump Ákall um að Danmörk eignist Kaliforníu hefur vakið athygli. Ríflega tvö hundruð þúsund manns hafa lagt nafn sitt við undirskriftalista þar sem kallað er eftir því að Danmörk kaupi Kaliforníu af Bandaríkjamönnum. Um er að ræða svar við hugmyndum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að kaupa Grænland. Undirtónninn er gamansamur enda um satírískan gjörning að ræða. Erlent 12.2.2025 11:18
Alþjóðasamfélagið þurfi að venjast nýrri taktík Trump Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og Pawel Bartoszek alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar segja alþjóðasamfélagið þurfa að venjast nýrri taktík í pólitík með tilkomu Donald Trump í embætti forseta Bandaríkjanna í annað sinn. Gott sé fyrir Íslendinga að vera í fleiri bandalögum en færri. Innlent 9.2.2025 14:49
Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Fyrrverandi formaður Siumut-flokksins á Grænlandi, segir áhuga og orðræðu Bandaríkjaforseta um Grænland setja landið í sóknarstöðu og að ríkisstjórnin ætti að nýta stöðuna til að endurskoða samband landsins við Danmörku. Innlent 2.2.2025 12:34
Vill ræða við Trump í síma Forsætisráðherra lítur ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland alvarlegum augum og ítrekar að fullveldi þjóða beri að virða. Fyrrverandi utanríkisráðherra gagnrýnir hjásetu Kristrúnar á óformlegum fundi forsætisráðherra Norðurlanda um öryggismál á svæðinu. Innlent 29.1.2025 11:49
Ísland og Grænland á áhrifasvæði Bandaríkjanna Ísland er og verður á áhrifasvæðinu óháð því hver er forseti Bandaríkjanna, óháð stöðu NATO hverju sinni og óháð tengslum Íslands við Evrópusambandið. Hvorki ESB né Evrópuríki í NATO munu nokkurn tíma hafa burði til að koma í stað Bandaríkjanna í hernaðarlegum efnum í okkar heimshluta eða á norðurslóðum almennt. Umræðan 29.1.2025 07:01
Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Lang flestir Grænlendingar vilja ekki að Grænland tilheyra Bandaríkjunum. Svo svöruðu 85 prósent svarenda í nýrri könnun þar í landi. Tæpur helmingur þeirra sem svöruðu segjast þó sjá mikil tækifæri í áhuga Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, á eyjunni. Erlent 28.1.2025 22:35
Hótanir Trumps eigi ekki að líðast í lýðræðissamfélagi Íslenskur þingmaður í Vestnorræna ráðinu, sem er samstarfsráð Íslands, Færeyja og Grænlands, segir að taka þurfi hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi alvarlega. Ráðið hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við Grænland. Innlent 28.1.2025 12:24
Senda Trump skilaboð og auka viðbúnað við Grænland Ríkisstjórn Danmerkur opinberaði í dag nýja áætlun um að auka hernaðarviðbúnað ríkisins við Grænland og á norðurslóðum til muna. Smíða á ný herskip, auka eftirlit með gervihnöttum og kaupa tvo langdræga dróna en áætlað er að verkefnið muni kosta um 14,6 milljarða danskra króna. Erlent 27.1.2025 21:58
Segir alla íbúa Grænlands vilja undir Bandaríkin Donald Trump Bandaríkjaforseti áréttar þá afstöðu sína að Bandaríkin skuli taka við stjórn Grænlands. Hann sé fullviss í sinni trú að Bandaríkjamönnum muni takast þetta ætlunarverk sitt. Erlent 26.1.2025 13:45
„Við erum Grænlendingar, við erum ekki Bandaríkjamenn eða Danir“ Formaður landsstjórnar Grænlands hélt blaðamannafund fyrr í dag vegna nýlegra og endurtekinna ummæla nýs Bandaríkjaforseta sem girnist Grænland. Erlent 21.1.2025 16:31
Donald Trump forseti Bandaríkjanna: „Gullöld Bandaríkjanna hefst núna“ Donald Trump, nýr forseti Bandaríkjanna, fór yfir víðan völl í innsetningarræðu sinni. Hann hrósaði bandarísku þjóðinni ítrekað og tilkynnti einnig ýmsar breytingar sem hann hyggst framkvæma. Erlent 20.1.2025 19:21
Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Donald Trump, sem tekur aftur við embætti forseta Bandaríkjanna á mánudaginn, hefur heitið umfangsmiklum aðgerðum á sínum fyrsta degi í embætti. Sjálfur sagðist hann hafa undirbúið um hundrað forsetatilskipanir sem hann mun geta skrifað undir þegar hann tekur embætti. Erlent 17.1.2025 13:19
Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ræddi við Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, í 45 mínútur á miðvikudag og sagði meðal annars að framtíð Grænlands væri í höndum Grænlendinga. Erlent 17.1.2025 07:08
Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Námumálaráðherra Grænlands segir að orðræða Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um kaup eða yfirtöku á Grænlandi gæti haft hræðileg áhrif á fjárfestingar á Grænlandi. Naaja Nathanielsen segir Trump geta skaðað ímynd Grænlands sem stöðugt og auðlindaríkt lýðræðisríki. Erlent 15.1.2025 13:37
Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Starfsmenn Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, eru sagðir hafa greitt heimilislausu og jaðarsettu fólki í Nuuk fyrir það að þykjast vera stuðningsmenn Trumps, þegar sonur hann heimsótti borgina fyrr í vikunni. Fólkið mun hafa fengið máltíð á veitingastað í staðinn fyrir að birtast á myndböndum Trump yngri. Erlent 10.1.2025 13:44
Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Neyðarfundur flokksformanna allra flokka á danska þinginu sem Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, boðaði lauk í kvöld, fimmtudag. Fundarefnið var umtal um mögulega yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi, sem er sjálfsstjórnarsvæði innan Danska konungsveldisins. Erlent 9.1.2025 23:56
Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Deildarforseti við Háskólann á Grænlandi segir sögu slæmrar meðferðar Bandaríkjanna á frumbyggjum landsins vekja ugg meðal Grænlendinga sem horfa nú fram á mögulega innlimun inn í Bandaríkin sé eitthvað að marka orð verðandi forseta. Innlent 9.1.2025 17:03
Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ Mike Waltz, þingmaður Repúblikanaflokksins og verðandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump, segir Grænland mikilvægt þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Bæði Rússar og Kínverjar væru að láta að sér kveða á norðurslóðum og á Grænlandi mætti þar að auki finna mikið af auðlindum. Erlent 9.1.2025 09:35
Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, telur ólíklegt að Donald Trump, fyrrverandi og verðandi Bandaríkjaforseti, láti verða af því að taka yfir Grænland þegar hann tekur á ný við stjórnartaumunum vestanhafs. Þó sé mikilvægt að taka orð hans alvarlega og velta fyrir sér orðræðunni sem hann notar. Innlent 8.1.2025 21:30