Norðvesturkjördæmi
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Þrjár tillögur lagðar fyrir Alþingi í dag Þrjár tillögur varðandi afgreiðslu kjörbréfa verða lagðar fyrir fund Alþingis sem hefst klukkan eitt í dag. Meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út verði samþykkt. Innlent 25.11.2021 10:52
Úrslit gætu legið fyrir í kjörbréfamálinu á Alþingi annað kvöld Engin tímamörk verða á umræðum þingmanna um afgreiðslu kjörbréfa á morgun en starfandi forseti Alþingis bindur þó vonir við að atkvæðagreiðslu ljúki annað kvöld. Fyrrverandi þingmaður Pírata hefur kært mögulegt kosningasvindl formanns yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi til lögreglu. Innlent 24.11.2021 18:31
Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl. Innlent 24.11.2021 13:09
Alvarlegast hvernig staðið var að vörslu kjörgagna Alvarlegasti annmarkinn á framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi þann 25. september lýtur að vörslu kjörgagna á meðan yfirkjörstjórn yfirgaf talningarstað daginn eftir kjördag. Þetta er niðurstaða undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa sem lauk störfum í gær. Innlent 23.11.2021 21:33
Meirihluti að myndast í kjörbréfanefnd en minnihlutinn vil ganga mislangt Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í kjörbréfanefnd Alþingis telja tilefni til ógildingar Alþingiskosninganna í Norðvesturkjördæmi, og þar með uppkosningar, vegna ágalla á framkvæmd kosninganna. Fulltrúi Pírata í nefndinni gengur lengra og telur að kjósa eigi aftur á landinu öllu. Innlent 23.11.2021 20:00
Meirihluti telur ekki forsendur til ógildingar kosninganna Formaður kjörbréfanefndar segir að meirihluti nefndarmanna telji ekki forsendur til að ógilda kosningarnar í Norðvesturkjördæmi. Ekkert hafi komið fram um að gallar hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Fulltrúi Pírata skrifar ekki undir greinargerð undirbúningskjörnefndar sem rannsakaði málið. Innlent 23.11.2021 16:07
Bein útsending: Rætt við þingmenn í kjörbréfanefnd Alþingi kemur saman klukkan hálf tvö í dag eftir eitt lengsta þinghlé síðari ára. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerð sína vegna framkvæmdar kosninga í Norðvesturkjördæmi einnig í dag en reikna má með tveimur og jafnvel fleiri álitum frá nefndarfólki. Innlent 23.11.2021 14:39
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Flokkur fólksins mynda meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd Búist er við að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins myndi meirihluta í undirbúningskjörbréfanefnd um að leggja til að niðurstaða seinni talningar í kosningunum í Norðvesturkjördæmi verði látin gilda. Stjórnarflokkarnir verða því ekki samferða í málinu. Innlent 23.11.2021 11:47
Allt of langt hlé og skaðlegt fyrir lýðræðið Lengsta hlé á störfum þingsins í rúma þrjá áratugi tekur enda á morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn óttast afleiðingar svo langs hlés fyrir lýðræðið en eru langt í frá spenntir að takast á við fyrsta verkefni komandi þings - kjörbréfamálið. Innlent 22.11.2021 22:01
Varaþingmaður VG í Norðvestur: „Er nokkuð annað en uppkosning í boði?“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, vill að Alþingi velji þá leið að halda uppkosningu í kjördæminu. Hún segir traust á framkvæmd kosninga verða að vera hafna yfir allan vafa. Innlent 21.11.2021 22:07
Þingmenn sendir í hraðpróf Þeim tilmælum hefur verið beint til allra sem verða viðstaddir þegar nýtt þing kemur saman í fyrsta sinn á þriðjudaginn að fara í hraðpróf við kórónuveirunni. Um er að ræða ráðstöfun sem ætlað er að koma í veg fyrir að hópsmit komi upp á Alþingi. Innlent 20.11.2021 09:07
Undirbúningsnefnd skili af sér tillögum til kjörbréfanefndar á þriðjudag Undirbúningskjörbréfanefnd átti langan fund í dag en nú eru aðeins fimm dagar þar til Alþingi kemur saman til að leysa úr þeirri óvissu sem ríkir um útgáfu kjörbréfa þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 18.11.2021 22:22
Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur að tveimur tillögum Undirbúningskjörbréfanefnd vinnur í sameiningu að gerð tveggja tillagna til Alþingis um hvernig skuli afgreiða kjörbréf þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Önnur færir rök fyrir því að útgefin kjörbréf verði samþykkt og hin ekki, sem hefði í för með sér að boðað yrði til uppkosningar í kjördæminu. Innlent 18.11.2021 11:11
Alþingi jafnvel kallað saman fyrir lok vikunnar Forsætisráðherra segir formenn stjórnarflokkanna langt komna með texta að nýjum stjórnarsáttmála en ekki sé farið að ræða verkaskiptingu. Kynnig á sáttmálanum muni bíða þar til endanleg niðurstaða liggi fyrir í Norðvesturkjördæmi. Innlent 16.11.2021 13:17
Reiknar með að þing komi saman í næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar smíðar nú drög að tveimur mögulegum leiðum sem nefndarmenn munu síðan taka afstöðu til. Þingmenn eru bjartsýnir á að fá niðurstöðu í málið á allra næstu dögum og er sitjandi forseti Alþingis þegar farinn að undirbúa þingfund í næstu viku. Innlent 15.11.2021 18:32
Telur líklegast að útgefin kjörbréf verði staðfest Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Bifröst telur ekki líklegt að ráðist verði í uppkosningu þrátt fyrir kosningalagabrot í Norðvesturkjördæmi. Innlent 14.11.2021 15:24
Niðurstöðu að vænta varðandi Norðvesturkjördæmi eftir helgi Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis er byrjuð ræða efnislega þau álitaefni sem ráða munu niðurstöðu hennar varðandi tillögu um afgreiðslu útgefinna kjörbréfa til þingmanna í Norðvesturkjördæmi. Nýr stjórnarsáttmáli mögulega kynntur í næstu viku. Innlent 12.11.2021 21:18
Fleiri frávik fundust í kjörgögnum Norðvesturkjördæmis í dag Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis fann í dag fleiri frávik frá talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi en komu fram við endurtalningu og síðar. Tillaga nefndarinnar um hvernig bregðast skuli við frávikunum liggur væntanlega fyrir í næstu viku. Innlent 11.11.2021 19:20
Alþingi kallað saman í fyrsta lagi undir lok næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort nefndin komist að sameiginlegri niðurstöðu varðandi gildi útgefinna kjörbréfa Landskjörstjórnar til þingmanna. Nefndin muni ekki ljúka störfum fyrr en í næstu viku. Innlent 10.11.2021 19:31
Ætla aftur í Borgarnes að skoða atkvæðin betur Undirbúningskjörbréfanefnd ætlar aftur í vettvangsferð í Borgarnes, helst strax í þessari viku, til að fara aftur yfir frágang kjörgagna. Formaður nefndarinnar vill ekki gera grein fyrir því hvaða atriði þurfi að skoða nánar. Innlent 9.11.2021 18:58
Sex vikur frá kosningum og til umræðu að fara í aðra vettvangsferð í Borgarnes Möguleikinn á annarri vettvangsferð til Borgarness til að rannsaka flokkun kjörseðlanna enn betur er nú til umræðu á fundi undirbúningskjörbréfanefndar. Ákvörðunar um hana má vænta þegar fundinum lýkur seinni partinn í dag. Innlent 9.11.2021 12:06
Hægt að efast um að öll atkvæðin hafi verið endurtalin Draga má í efa að öll atkvæði hafi verið talin í endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi samkvæmt rakningu undirbúningskjörbréfanefndar á málsatvikum. Yfirkjörstjórn hafði talið atkvæði nokkurra listabókstafa áður en talningarfólk mætti til endurtalningar. Innlent 5.11.2021 20:01
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju nýja þingmenn á kostnað Framsóknar og Pírata Samfylkingin fengi kjördæmakjörinn þingmann í Norðvesturkjördæmi á kostnað þriðja þingmanns Framsóknarflokksins í kjördæminu ef kosið yrði nú samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig uppbótarþingmanni. Innlent 5.11.2021 19:32
Segir ekki stórmál þó að kjörkassar utankjörfundaratkvæða hafi ekki verið innsiglaðir Formaður undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa segir að nefndin hafi kannað í hvaða kjördæmum utankjörfundaratkvæði hafi ekki verið innsigluð. Hvert utankjörfundaratkvæði sé í umslagi og því skipti öllu að umbúnaðurinn sé góður. Ótímabært sé að segja til um hvenær nefndin lýkur störfum. Innlent 2.11.2021 13:00
„Það er auðvitað ágallinn við þetta kerfi okkar“ Dósent í stjórnsýslurétti segir að það verði að vera ljóst að ágalli á meðferð kjörgagna hafi raunverulega haft áhrif á niðurstöðu kosninganna, ef hrófla eigi við niðurstöðunni. Innlent 31.10.2021 13:29
Týnda Framsóknaratkvæðið kom á óvart Formaður kjörbréfanefndar segir það hafa komið sér á óvart þegar atkvæði merkt Framsóknarflokknum fannst í bunka auðra atkvæða í vettvangsferð í Borgarnesi á miðvikudag. Atkvæðið skipti þó ekki sköpum. Umboðsmaður Pírata telur það eina í stöðunni að láta fyrri talningu gilda. Innlent 29.10.2021 19:45
Þingmenn fundu gilt atkvæði í röngum bunka í Borgarnesi á miðvikdag Gilt atkvæði fannst í bunka sem var merktur auðum atkvæðum í vettvangsferð sem hluti undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa fór í Borgarnes á miðvikudag. Innlent 28.10.2021 18:01
Búin að ræða við kærendur og líður að lokum gagnaöflunar Undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið við að ræða við þá sem kærðu framkvæmd nýliðinna Alþingiskosningar til þingsins. Næstu dagar fara í frekari upplýsingaöflun og í framhaldinu verður ráðist í að skoða þá þætti sem eru matskenndir. Innlent 25.10.2021 16:41
„Þetta snýst um réttlæti ekki þægindi“ Fyrrverandi Alþingismaður segir ekkert annað í stöðunni eftir fregnir dagsins en að blása til nýrra þingkosninga. Lögreglan á Vesturlandi gaf út í dag sektir á meðlimi yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi en ekki er hægt að fullyrði hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi. Innlent 20.10.2021 21:31
Starfsfólk sagðist ekkert hafa átt við kjörgögnin Ekkert bendir til að átt hafi verið við kjörgögn úr Norðvesturkjördæmi sem skilin voru eftir óinnsigluð á talningarsalnum á Hótel Borgarnesi sunnudaginn 26. september. Starfsfólk hótelsins gekk hins vegar um salinn, sem gögnin voru geymd í, án þess að nokkur úr kjörstjórn væri viðstaddur. Innlent 20.10.2021 18:03