
Ísland í dag

Komst hjá hjartaaðgerð með því að breyta um lífsstíl
Heilsuástandsskoðun er nýtt kerfi hér á landi sem heilsufrömuðurinn og sjúkraþjálfarinn Lukka Pálsdóttir setti á laggirnar fyrir ekki svo löngu.

„Gunnar Smári getur líklega lagt niður flokkinn sinn með þessu áframhaldi“
Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir of langt gengið í aukinni skattlagningu með nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Svo langt gengið raunar, að óhætt væri fyrir sósíalista að segja þetta gott, enda erindið þrotið. Gunnar Smári Egilsson gefur lítið fyrir þetta og segir nú lag að hækka bankaskatt og sækja gróðann sem þar hafi myndast.

„Stundum eins og maður þurfi að selja kerfinu að barnið sé raunverulega fatlað“
Í Íslandi í dag á dögunum var fjallað um fjölskyldusögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Arasyni eignaðist þrjú börn og þar á meðal Katrínu Erlu sem fæddist fötluð.

Kílóin hrundu af Guðbjörgu þegar hún hætti að borða eftir kvöldmat
Hollusta í mat getur verið einföld og gómsæt. Guðbjörg Glóð Logadóttir hefur fundið einfalda leið til að halda sér í hreyfingu sem kostar ekkert og er í leiðinni góð fyrir geðheilsuna.

Eftir 790 þætti hætti Siggi Hlö á toppnum og fór út með stæl
Sigurður Hlöðversson eða Siggi Hlö eins og hann er alltaf kallaður er hættur með þáttinn Veistu hver ég var á Bylgjunni.

Garður sem er eins fallegur yfir vetur og sumar
Nú þegar fer að hausta er gaman að skoða vetrargarða eins og Vala Matt gerði í Íslandi í dag á Stöð 2í gærkvöldi.

Gengur fram af fólki og eignast aðdáendur með svæsnasta hlaðvarpi landsins
Kynlífsklúbbar í Berlín, misgóð Tinder-deit og það eilífa verkefni að hætta að deita meth-hausa. Þetta eru ósköp eðlileg viðfangsefni Vigdísar Howser Harðardóttur í hlaðvarpi hennar Kallaðu mig Howser og á engan er hallað þegar fullyrt er að þar fari yfirgengilegasta hlaðvarp landsins.

Boðar fleiri tugi þúsunda í sparnað með debetkortum
Fleiri þúsund manns eru á biðlista, en tvö hundruð manns hafa þegar tekið í notkun greiðslukort frá nýja samfélagsbankanum - eða sparisjóðnum - Indó. Greiðslukortunum fylgja ekki færslugjöld og framkvæmdastjóri sparisjóðsins segir viðskiptavini hæstánægða.

„Við erum allar mjög góðar fyrirmyndir“
Raunveruleikaþættirnir LXS hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum er fylgst með lífi vinsælustu samfélagsmiðlastjarna landsins.

„Svo veldur það mér áhyggjum hvað bíður hennar“
Samtök atvinnulífsins og fyrirtæki öll verða að vera duglegri að gefa fötluðum börnum sem lokið hafa skólagöngu tækifæri í lífinu en staða þeirra og tækifæri eftir ákveðin aldur eru afar takmarkaðir.

Gagnrýnir harðlega að opinber stofnun taki þátt í „víkingarugli“
Sviðsett víkingaviðureign var liður í dagskrá víkingafélagsins Rimmugýgjar á Menningarnótt, sem hélt uppi stemningunni bæði við Landnámssýninguna og Þjóðminjasafnið. Þjóðminjasafnið og þetta víkingafélag voru í samstarfi - og þetta gagnrýnir Árni Björnsson þjóðháttafræðingur harðlega. Í innslaginu hér að ofan má sjá myndefni frá víkingahátíðinni og viðtal við Árna.

Sigga Dögg með skrifstofu á hjólum: „Bílasalinn hélt að ég væri að grínast“
Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur er með skrifstofuna sína á hjólum en hún á nettan húsbíl sem hægt er að leggja hvar sem er og hún velur á hverjum degi nýja staðsetningu og nýtt útsýni.

Kristín komin með vilyrði fyrir leikskólaplássi en það mun ekki þagga niður í henni
Hún fékk nóg af gagnslausum skýringum og sinnuleysi í leikskólamálum og ákvað að taka málin í sínar hendur.

Skipti um fag í miðri mastersritgerð og klárar nýja námið fertugur
Böðvar Páll Ásgeirsson kláraði fimm ár í hagfræði, átti aðeins ritgerðina eftir en ákvað þá að hætta og fara frekar í læknisfræði.

Gler sumarbústaður í garði í Hafnarfirði
Glerhýsi í garðinum sem virkar eins og sumarbústaður er að finna í Hafnarfirði.

Af hverju er alltaf svona vandræðalegt að syngja afmælissönginn?
„Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Jónas, hann á afmæli í dag.“ Höldum við áfram núna? er spurning sem vaknar í huga margra einmitt þegar þetta erindi klárast. Væri ekki hægt að komast að samkomulagi um eitt eða tvö erindi íslenska afmælissöngsins?

Rómantískur sumarbústaður Péturs Gauts og Berglindar
Pallar og tréstígar eru um allt sumarbústaðaland listahjónanna Pétur Gauts og Berglindar Guðmundsdóttur. Gras innkeyrsla er við bústaðinn þar sem hægt er að tjalda. Vala Matt fór í heimsókn til þeirra í sveitina og skoðaði bústaðinn.

Drekkur Monster orkudrykk fyrir Laugavegshlaupið
Andrea Kolbeinsdóttur hefur verið að slá í gegn í hlaupaheiminum þrátt fyrir ungan aldur. Hún er 23 ára læknisfræðinemi og vann öll hlaup sem hún keppti í síðasta árið.

Lýsandi hegðun: Leikskólalaust barn olli verulegum örðugleikum í fréttasetti
Leikskólamálin í Reykjavíkurborg hafa verið í brennidepli frá því að foreldrar hófu að mótmæla úrræðaleysinu í sjálfu Ráðhúsinu í síðustu viku. Á morgun er boðuð stofnun hústökuleikskóla í Ráðhúsinu meðan á borgarráðsfundi stendur.

Nota blómapott sem grill í garðinum
Myndlistarmaðurinn Pétur Gautur og landslagsarkitektinn Berglind Guðmundsdóttir búa í Hafnarfirði þar sem nostrað hefur verið við garðinn sem Berglind hannaði sjálf. Í garðinum má með annars finna blómapott sem er notaður sem grill og gólfsíðar hurðar sem þau settu til þess að komast beint út í garð.

„Voðalega vinsælt að fá hrátt egg og sokk hjá mér“
Litla Hverabúðin er minnsta verslun Íslands, svo smá að ekki er þar að finna nokkurn starfsmann, í stað þess er stólað á heiðarleika viðskiptavina. Verðlaunakokkurinn Ólafur Reynisson og eiginkona hans Anna María Eyjólfsdóttir eru miklir frumkvöðlar þegar kemur að matargerð.

„Ef að ég geri þetta halda þau þá að ég sé að ljúga?“
Hafdís Sæland var beitt kynferðislegu ofbeldi í mörg ár af nánum fjölskylduvini og lagði fram kæru fimmtán ára gömul. Reynslan af kæruferlinu varð kveikjan að sýndarveruleika dómsal sem hún hannaði ásamt Helgu Margréti Ólafsdóttur og Editi Ómarsdóttur.

„Þetta er mjög óþægilegt“
Verðbólga er í hæstu hæðum og fólk er farið að finna fyrir því, eins og fjallað var um í Íslandi í dag. Rætt var við viðskiptavini matvöruverslunar í Reykjavík. Margir sögðu farir sínar hreinlega ekki sléttar af því að kaupa í matinn þessa dagana.

Kossasjálfa og bannað að tala um börnin í fríinu
Athafna- og fjölmiðlakonan Guðbjörg Gissurardóttir keypti sér eldgamlan, rauðan húsbíl á Bland sem hún nefndi Runólf og ferðast um landið og ræktar sambandið með eiginmanni sínum Jóni Árnasyni en þau fóru meðal annars í brúðkaupsferðina sína á bílnum.

400 millilítrar: Breytingar á stærð bjórglasa ekki samsæri
Efnahagsmálin voru til umræðu í Íslandi í dag, þar sem Jón Mýrdal veitingamaður sat fyrir svörum. Allt hefur hækkað – þar á meðal bjór, en bjórinn fæst nánast hvergi ódýrari en á um 1.300 krónur þessa dagana.

Plöntur sem fæla frá lúsmý
Það eru til ákveðnar plöntur sem hreinlega fæla frá lúsmý og ýmis skordýr. Vala Matt kynnti sér málið í síðustu viku í Íslandi í dag á Stöð 2 en umræddar plöntur eru einnig fallegar.

Manaði sig upp í símtölin og vonaði það besta
Kvikmyndin Þrot í leikstjórn Heimis Bjarnasonar er á leiðinni í kvikmyndahús en um er að ræða sakamáladrama.

Fann fyrir létti þegar eiginmaðurinn kvaddi eftir fimmtán ára baráttu við alzheimer
Vinkonurnar Ragnheiður Kristín Karlsdóttir og Gunnhildur Skaftadóttir kynntust í gegnum Alzheimersamtökin fyrir rúmum áratug eftir að eiginmenn þeirra greindust með sjúkdóminn. Báðir höfðu þeir þurft að bíða í mörg ár frá því að fyrstu einkenni komu þar til þeir voru greindir, sem fékk mjög á fjölskyldur þeirra.

„Hélt að þetta væri leyndarmál sem ég færi með í gröfina“
Hvernig enda konur og menn í vændi? er þetta val eða gert í neyð? Eva Dís Þórðardóttir er ein þeirra sem stundað hefur vændi, gerði það ekki í langan tíma og vill hún opna umræðuna.

Hætti að taka eftir flúrunum og sá aðeins auðu svæðin
Ósk Gunnarsdóttir skellti sér á dögunum á stærstu tattú ráðstefnu landsins þar sem rjóminn af húðflúrlistamönnum var samankomin víðs vegar að úr heiminum en fjallað var um hátíðina í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.