

Miles Bridges átti flottustu tilþrifin í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar hann tróð boltanum af miklum krafti í leik Charlotte Hornets við Toronto Raptors. Tíu bestu tilþrif næturinnar má sjá í meðfylgjandi klippu.
Logi Gunnarsson átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik í fjögur ár þegar Domino´s deildin for aftur af stað í gærkvöldi.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið hópinn fyrir síðustu leiki Íslands í undankeppni EM 2021.
Stjörnumenn unnu góðan sigur á Hetti í Domino´s deild karla í körfubolta í Garðabænum í gær og það þótt að sjúkraþjálfari Stjörnuliðsins hafi hjálpað mótherjunum í miðjum leik.
James Harden lék ekki með Houston Rockets í nótt vegna yfirvofandi vistaskipta hans til Brooklyn Nets en án hans vann Houston sinn fjórða leik á tímabilinu.
Valur vann góðan útisigur á ÍR í Seljaskóla. Leikurinn var jafn og spennandi en undir lok leiksins kom reynsla og gæði Valsmanna í ljós sem lokuðu leiknum undir lokin.
Tindastóll vann nauman sigur á KR í stórleik 2.umferðar Dominos deildar karla í Vesturbænum í kvöld.
Jón Arnór Stefánsson, Kristófer Acox og félagar í Val sóttu tvö stig í Seljaskóla í kvöld.
„Já þetta er ógeðslega leiðinlegt en við verðum bara að horfa í það að þetta var í rétta átt,“ sagði þjálfari KR strax eftir að hans menn töpuðu fyrir Tindastól í háspennuleik í DHL-höllinni fyrr í kvöld.
Haukar lögðu Njarðvíkinga að velli í hörkuleik í 2.umferð Dominos deildar karla.
Bikar- og deildarmeistarar Stjörnunnar áttu ekki í teljandi vandræðum með nýliða Hattar í 2.umferð Dominos deildar karla í kvöld.
Domino´s Körfuboltakvöld hitaði upp fyrir endurræsingu tímabilsins með sérstökum aukaþætti í gærkvöldi og hér má finna alla umræðu þeirra um liðin sex sem Körfuboltakvöldið spáði að yrðu í efri hlutanum.
Meistaraefnin í Vals sendu heldur betur frá sér skýr skilaboð þegar kvennakarfan fór aftur af stað eftir meira en hundrað daga hlé.
Domino´s Körfuboltakvöld hitaði upp fyrir endurræsingu tímabilsins með sérstökum aukaþætti í gærkvöldi og hér má finna alla umræðu þeirra um liðin sex í neðri hlutanum.
Löngum og tíðindamiklum degi hjá öllum sem að Brooklyn Nets koma lauk með 116-109 sigri á New York Knicks í Madison Square Garden í nótt. Tilþrif úr leiknum og fleiri leikjum má sjá í NBA dagsins hér á Vísi.
Teitur Örlygsson fagnar því að Domino's deild karla fari aftur af stað í kvöld eftir rúmlega þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirufaraldursins.
Keppni í Domino's deild karla hefst á ný í kvöld, 101 dag eftir að síðasti leikurinn í deildinni fór fram.
Í skugga stórfréttarinnar um komu James Harden til Brooklyn Nets var spilað í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Dallas Mavericks unnu fjórða leik sinn í röð og Slóveninn Luka Doncic var aðalmaðurinn, í 104-93 sigri á Charlotte Hornets.
Brooklyn Nets þykja orðnir meistarakandídatar í NBA-deildinni í körfubolta eftir að hafa tryggt sér þjónustu James Harden, verðmætasta leikmanns deildarinnar tímabilið 2017-18.
Valur kjöldró stelpurnar frá Borgarnesi 91-58. Skallagrímur byrjaði leikinn ágætlega og komst yfir í upphafi leiks en í stöðunni 5 - 12 Skallagrím í vil tók Valur leikhlé og snéri taflinu algjörlega við og endaði á að vinna með 33. stiga mun.
Það liðu 102 frá því að Dominos deild kvenna fór síðast fram. Íslandsmeistarar Vals fengu bikarmeistarana Skallagrím í heimsókn og búist var við hörku leik.
Fjórða umferðin í Domino’s deild kvenna hélt áfram í kvöld. Í fyrsta leik dagsins unnu Haukar sigur á Fjölni en Keflavík vann svo sigur á Breiðabliki, 66-56, og Snæfell náði í sín fyrstu stig með sigri á KR, 87-75.
Fyrsti íslenski körfuboltaleikurinn í tæpa hundrað daga fór fram í Dalshúsum í kvöld. Haukar höfðu þá betur gegn Fjölni, 70-54, í fjórðu umferð Domino’s deildar kvenna. Þetta var fyrsta tap Fjölnis.
Þetta er mikil gleðivika fyrir íslenska körfuboltann því Domino´s deildirnar eru báðar að fara aftur af stað. Það var því full ástæða til þess að halda upp á það með einu góðu Domino´s Körfuboltakvöldi í kvöld.
Kevin Durant átti stærstan þátt í því að Brooklyn Nets unnu upp 18 stiga forskot Denver Nuggets og lönduðu sætum sigri, 122-116, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Í NBA-pakka dagsins má sjá svipmyndir úr leiknum sem og öruggum sigri meistara LA Lakers á Houston Rockets og háspennuleik Philadelphia 76ers og Miami Heat.
Pálína María Gunnlaugsdóttir segir að liðin þurfi tíma til að spila sig í gang þegar Domino´s deild kvenna í körfubolta hefst á ný. Í kvöld verða fyrstu leikirnir í kvennakörfunni í meira en hundraða daga hlé vegna kórónuveirufaraldursins.
Domino´s deild kvenna í körfubolta hefst á nýjan leik í kvöld með heilli umferð. Þetta verða fyrstu leikir deildarinnar í 102 daga.
Los Angeles Lakers styrktu stöðu sína á toppi vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta þegar þeir rúlluðu yfir Houston Rockets, 117-100, í nótt. Algjör uppgjafartónn var í James Harden, stjörnuleikmanni Houston.
Martin Hermannsson og félagar í Valencia töpuðu með fimmtán stiga mun gegn Olimpia Milano á útivelli í EuroLeague í kvöld, lokatölur 95-80. Valencia er þar með ekki lengur meðal átta efstu liða deildarinnar.
Það verður væntanlega mikið um „heitt og kalt“ hjá aldursforseta Njarðvíkurliðsins á þeim krefjandi vikum sem eru framundan í körfuboltanum.