Sport

Dagskráin í dag: Undankeppni EM, padel, hafnabolti og golf
Það er fjörugur og fjölbreyttur föstudagur framundan á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone.

Fjölnismenn aftur á sigurbraut og með sjö stiga forskot í efsta sæti
Fjölnir styrkti stöðu sína á toppi Lengjudeildarinnar með 1-0 sigri gegn Leikni. Keflavík vann 2-1 endurkomusigur gegn Gróttu á sama tíma í kvöld.

„Hefðum átt að fá allavega eitt víti í viðbót“
Chris Shields fyrirliði Linfield var að vonum svekktur eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Emil Atlason skoraði fyrra mark Stjörnunnar og seinna var sjálfsmark eftir undirbúning Emils.

Öryggisvörður laminn eftir leik og lögregla kölluð til
Stuðningsmenn albanska liðsins Vllaznia réðust á öryggisverði eftir leik á Hlíðarenda. Svo virtist sem tekist hefði að leysa úr málunum en lögregla var kölluð til þegar múgurinn espaðist aftur.

Uppgjörið og viðtöl: Fram - KR 1-0 | Rúnar með fullt hús gegn KR
Fram vann 1-0 sigur gegn KR á heimavelli. Guðmundur Magnússon skoraði sigurmarkið en þetta var fyrsta tap KR undir stjórn Pálma Rafns Pálmasonar.

„Ég er í sjokki eftir þennan leik“
KR tapaði 1-0 gegn Fram á Lambhagavellinum. Pálmi Rafn Pálmason, þjálfari KR, var verulega ósáttur út í dómgæsluna.

Arnar: Maður fær ekki allt sem maður á skilið
Valur náði í jafntefli gegn Vllaznia í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Leiknum lauk 2-2 en Ólafur Karl Finsen jafnaði metin þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Arnar Grétarsson var svekktur en þó þokkalega sáttur að fara ekki út með tap á bakinu.

Seinna markið ekki skráð á Emil: „Ég er ekkert að kippa mér upp við það, boltinn fór inn“
Emil Atlason var frábær fyrir Stjörnuna í 2-0 sigri liðsins á norður-írska liðinu Linfield í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Uppgjörið: Stjarnan - Linfield 2-0 | Emil Atlason með bæði mörkin
Stjarnan lék sinn fyrsta Evrópuleik í þrjú ár í kvöld er liðið fékk norður-írska liðið Linfield í heimsókn. Aðstæður voru líkt og flest önnur sumarkvöld þetta sumarið á höfuðborgarsvæðinu, rigning og vindur. Það hafði hinsvegar lítil áhrif á skemmtanagildi leiksins sem var talsvert.

Uppgjörið: Valur - Vllaznia 2-2 | Læti undir lokin og liðin skilja jöfn
Valur gerði 2-2 jafntefli við Vllaznia frá Albaníu í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Valsmenn gáfu tvö klaufaleg mörk frá sér en gestirnir misstu mann af velli og misstu leikinn í jafntefli undir blálokin.

Þróttur fagnaði þriðja sigrinum í röð
Þróttur vann sinn þriðja leik í röð í Lengjudeild karla þegar liðið tók á móti ÍBV og vann 2-1 sigur.

Uppgjörið: Tikves - Breiðablik 3-2 | Slæmur tíu mínútna kafli gerir stöðuna erfiðari fyrir Blika
Breiðablik laut í lægra haldi með þremur mörkum gegn tveimur þegar liðið sótti Tikves heim til Skopje í Norður-Makedóníu í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeild Evrópu klukkan í kvöld.

Bergþóra Sól kemur heim úr atvinnumennsku og fer í Víking
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er snúin heim úr atvinnumennsku og genginn til liðs við Víking. Hún kemur til félagsins frá sænska úrvalsdeildarliðinu KIF Örebro.

Brynjar Björn tekur við af Olgeiri sem var óvænt sagt upp
Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Fylkis í Bestu deild karla. Hann tekur við af Olgeiri Sigurgeirssyni sem var óvænt sagt upp á dögunum.

Ægir Jarl farinn frá KR til AB í Danmörku
Ægir Jarl Jónasson er farinn frá KR og genginn til liðs við AB í Danmörku þar sem hann mun spila undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

Frakki dæmir úrslitaleikinn
Búið er að ákveða hver dæmir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi. Það verður Frakkinn Francois Letexier.

Össur með tólf mörk í öðrum sigri strákanna í Slóveníu
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri vann góðan sigur á Póllandi, 37-32, í öðrum leik sínum á EM í Slóveníu.

„Fyrst og fremst ánægð ef ég fæ að vera inni á vellinum“
„Við verðum að vera rosalega sterkar varnarlega og sterkar inni í teignum líka. Þær munu koma með mikið af fyrirgjöfum inn í teig. Svo verðum við að þora að halda í boltann til þess að freista þess að skora,“ segir Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í knattspyrnu, fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í gær.

Heimir var valinn í mars og fær næstum hundrað milljónir í árslaun
Írska knattspyrnusambandið ákvað í mars að ráða Heimi Hallgrímsson sem þjálfara karlalandsliðsins.

Valgeir á leið til Düsseldorf
Landsliðsmaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson er á leið til Fortuna Düsseldorf í Þýskalandi.

„Appelsínugula hjartað mitt brotnaði“
Karina Wiegman, hollenskur þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, var á báðum áttum eftir sigur Englands á Hollandi í undanúrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í gær.

Heimir flytur til Írlands og vill halda O'Shea
Heimir Hallgrímsson sat fyrir svörum á sínum fyrsta blaðamannafundi sem þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta í dag.

Halldór B. Jónsson látinn
Halldór B. Jónsson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Fram og fyrrum varaformaður KSÍ, lést þriðjudaginn 9. júlí eftir veikindi. Hann var 75 ára gamall. Greint er frá andláti Halldórs á heimasíðu Fram.

Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum
Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í körfubolta var í miklu stuði í dag þegar liðið vann 43 stiga sigur á Írum, 88-45, í milliriðli í B-deild Evrópumótsins. Þetta er næststærsti sigur liðsins í sögunni.

Allir þrír Evrópuleikir íslensku liðanna sýndir beint í kvöld
Þrjú íslensk félög hefja leik í kvöld í forkeppni Sambandsdeildarinnar í knattspyrnu en þetta eru lið Breiðabliks, Vals og Stjörnunnar. Allir leikirnir verða sýndir beint á sportstöðvum Stöðvar 2.

Caitlin Clark með tölur sem hafa aldrei sést í NBA né WNBA
Körfuboltakonan Caitlin Clark setur nú eiginlega met í leik eftir leik. Á dögunum varð hún fyrsti nýliðinn í sögu WNBA til að ná þrennu og í gær bauð hún upp á einstaka tölfræðilínu.

Bandaríkin ráku landsliðsþjálfarann og Klopp orðaður við starfið
Gregg Berhalter hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta. Bandaríkin verða því með nýjan mann í brúnni á HM á heimavelli eftir tvö ár.

Messi ætlaði ekki að stela markinu
Lionel Messi skoraði seinna mark argentínska landsliðsins í sigri á Kanada í undanúrslitaleik Suðurameríkukeppninnar. En stal hann markinu af liðsfélaga sínum?

Leikmenn Blika í útgöngubanni í Skopje
Breiðablik hefur vegferð sína í Sambandsdeild Evrópu í kvöld er liðið sækir Tikves Kavadarci heim í Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu. Steikjandi hiti er á svæðinu

Svona var blaðamannafundurinn fyrir Þýskalandsleikinn
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Íslands og Þýskalands í undankeppni EM á morgun.