Sökuð um byggðaeyðingarstefnu 6. apríl 2005 00:01
Opinberum störfum við stjórnsýslu fjölgaði um tólf prósent á landsbyggðinni og um tvö prósent á höfuðborgarsvæðinu á fimm ára tímabili. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði ásökunum um að ríkisstjórnin stæði fyrir byggðaeyðingarstefnu. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, stóð fyrir utandagkrárumræðu um misræmi á milli fjármögnunar og umsvifa hins opinbera eftir landsvæðum. Hann sagði að það hefði verið rekin byggðaeyðingarstefna í landinu. Komið hefði verið á kvótum og höftum á atvinnuvegi landsbyggðarinnar og svo væri búið að blása út ríkisbáknið. Allt legðist á eitt svo landsbyggðinni blæddi. Forsætisráðherra svaraði hins vegar með því að birta nýlegar tölur um fjölgun opinberra starfsmanna. Hann sagði að í opinberri stjórnsýslu hefði þeim fjölgað um 7 prósent á árunum 1998-2003, þar af um 2 prósent á höfuðborgarsvæðinu en 12 prósent utan þess. Hann nefndi einnig að heilbrigðisstarfsmönnum hefði fjölgað um 13 prósent á höfuðborgarsvæðinu en um 17 prósent utan þess. Fræðslustörfum hefði fjölgað um 34 prósent á höuðborgarsvæðinu en um 25 prósent utan þess. Það voru hins vegar ekki allir ráðherrar sem vildu stæra sig af fjölgun opinberra starfsmanna. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagðist vilja taka undir með Sigurjóni að stöðugur vöxtur hins opinbera væri áhygguefni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Vill losna við tálma úr vegi sínum Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Fleiri fréttir „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitabæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Sjá meira