Sport

Benitez segir að Baros sé á förum

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur viðurkennt að koma Peter Crouch til liðsins frá Southampton sé líkleg til að marka endalok Milan Baros hjá félaginu. Baros spilaði hvorugan leikinn gegn TNS í Meistaradeildinni og er talið að það hafi verið vegna þess að hann yrði ekki ólöglegur í keppninni, fari svo að önnur lið hefðu áhuga á að fá hann til sín. "Milan var okkar helsti markaskorari á síðustu leiktíð, en við höfum fleiri möguleika í sókninni núna og hugsanlega nokkur tilboð í Baros," segir Benitez. "Hinsvegar fagna ég allri samkeppni og ég græt það ekkert ef hann vill vera áfram. Samkeppni er af hinu góðu og fær alla leikmenn til að leggja harðar að sér," segir Benitez.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×