Sport

Valsmenn unnu í Frostaskjóli

Garðar Gunnlaugsson skoraði sigurmark Vals á lokamínútu leiks Vals og KR. Leikurinn er því ekki framlengdur eins og allt stefndi í en mark Garðars kom skiljanlega eins og blaut tuska í andlit KR-inga. Sigurbjörn Hreriðarsson kom Val yfir en Ágúst Þór Gylfason jafnaði. KR-ingar léku síðustu 50 mínútur leiksins manni færri. Garðar Gunnlaugsson hefur þar með skorað sex mörk fyrir Valsmenn í þremur leikjum í VISA-bikarnum í sumar. Garðar skoraði tvö mörk í 0-7 sigri á Reyni Á. í 32 liða úrslitunum, þrennu í 5-1 sigri á Haukum í 16 liða úrslitunum og loks sigurmarkið á KR-vellinum í gær eftir að hafa komið inná sem varamaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×