Sport

Víkingar upp, Völsungur niður

Lokaumferðin í fyrstu deild karla í knattspyrnu fór fram í kvöld. Víkingur tryggði sér sæti í Landsbankadeildinni að ári með 2-0 sigri á Völsungi, en tap þeirra þýddi að liðið fellur um deild ásamt KS. Þá gerðu HK og Breiðablik 2-2 jafntefli í grannaslag Kópavogsliðanna. Víkingur Ólafsfirði lagði Þór 1-0, botnlið KS tapaði heima fyrir Fjölni 1-4 og loks vann KA ævintýralegan sigur á Haukum á Akureyri, 5-4. Úrslit og markaskorarar kvöldsins í 1. deildinni:HK–Breiðablik 2–2 1–0 Ólafur Júlíusson (31.), 2–0 Árni Thor Guðmundsson, víti (41.), 2–1 Ágúst Þór Ágústsson (47.), 2–2 Kristján Óli Sigurðsson (49.). Víkingur Ó.–Þór Ak. 1–0  1–0 Ragnar Smári Guðmundsson (52.). KS–Fjölnir 1–4 0–1 Tómas Leifsson (9.), 0–2 Sjálfsmark (38.), 1–2 Grétar Sveinsson, víti (39.), 1–3 Pétur Georg Markan (53.), 1–4 Atli Guðnason (85.). Víkingur–Völsungur 2–0 1–0 Daníel Hjaltason, víti (42.), 2–0 Jón Guðbrandsson (67.). KA-Haukar 5–4 0–1 Þorvaldur Már Guðmundsson (23.), 0–2 Þorvaldur Már Guðmundsson (32.), 0–3 Hilmar Rafn Emilsson (48.), 1–3 Kristján Elí Örnólfsson (74.), 2–3 Bjarni Pálmason (82.), 3–3 Pálmi Rafn Pálmason (85.), 4–3 Jóhann Þórhalsson (86.), 4–4 Davíð Ellertsson (89.), 5–4 Bjarni Pálmason (90.).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×