Körfubolti

Jón Arnór lék með Roma á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma.
Jón Arnór í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / Getty Images

Jón Arnór Stefánsson lék með Lottomatica Roma á nýjan leik í gær eftir meiðsli og skoraði sautján stig í tapleik.

Lottomatica tapaði fyrir Pierrel Capo d'Orlando í ítölsku úrvalsdeildinni, 82-71, eftir að hafa verið með átta stiga forystu í hálfleik, 58-50.

Jón Arnór var í byrjunarliðinu og lék í 34 mínútur. Hann hitti úr fjórum af fimm tveggja stiga skotum sínum og þremur af átta þriggja stiga skotum. Hann tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Roma er nú í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig eftir 23 leiki. Pierrel Capo er í fimmta sæti með 25 en Montepaschi Siena er á toppnum með 42 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×