Körfubolti

Jón Arnór með 11 stig í tapi Granada

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Jón Arnór og félagar töpuðu í dag.
Jón Arnór og félagar töpuðu í dag.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 11 stig í tapi Granada í spænska körfuboltanum í leik gegn Estudiantes á útivelli í dag, 83-73.

Granada er í harðri fallbaráttu í spænsku deildinni og mátti því illa við að tapa leiknum. Leikurinn var í járnum fyrir lokaleikhlutann en heimamenn í Estudiantes sigu frammúr á lokasprettinum og tryggðu sér sigur.

Jón Arnór og Granada eru með tíu stig í spænsku deildinni eftir í 17. sæti deildarinnar og eru fjórum stigum á eftir Meridiano Alicante sem eru í öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×