Áfrýjun Amöndu Knox tekin fyrir í dag 3. október 2011 12:11
Ítalskur áfrýjunardómstóll kveður síðar í dag upp úrskurð sinn í máli bandarísku skólastúlkunnar Amöndu Knox, sem dæmd var í 25 ára fangelsi fyrir að hafa orðið meðleigjanda sínum að bana fyrir fjórum árum. Knox barðist við að halda tárunum í skefjum þegar hún ávarpaði réttinn á lýtalausri ítölsku í morgun, rétt áður en dómstóllinn tók sér hlé til að ákvarða hvort hún og fyrrverandi elskhugi hennar, Raffaele Sollecito, væru sek um morðið á bandarísku skólastúlkunni Meredith Kercher árið 2007. Knox hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og það gerði hún einnig í morgun. Hún sagðist bæði hafa misst vin og alla trú á ítölsku lögreglunni og að henni hafi verið refsað í fjögur ár fyrir eitthvað sem hún gerði ekki. Það sem vegur þyngst í þessu máli er að ný gögn hafa litið dagsins ljós, en sérfræðingar voru kallaðir til í því skyni að leggja mat á rannsókn ítölsku lögreglunnar á morðinu. Lögfræðingur Knox hefur meðal annars bent á að skítugir hanskar voru notaðir til að safna sönnunargögnum. Ásamt því að áfrýja morðákærunni hefur Knox einnig áfrýjað ákæru fyrir ærumeiðingar sem hún var sakfelld fyrir, en Knox ásakaði á sínum tíma skemmtistaðaeigandann Patrick Lumumba um að hafa orðið meðleigjanda sínum að bana. Áfrýjunardómstóllinn kveður upp úrskurð sinn í málinu síðar í dag. Ef hann hnekkir fyrri úrskurði yfir Knox og Sollecito gætu þau átt rétt á skaðabótum frá ítalska ríkinu upp á allt að 80 milljónir íslenskra króna. Mál Knox hefur vakið heimsathygli en sjónvarpsmynd, sem byggð er á sögu hennar, hefur þegar verið gefin út.
Amanda Knox Ítalía Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira