Körfubolti

Öruggur sigur Sigrúnar og félaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigrún átti fínan leik með Höfrungunum í dag.
Sigrún átti fínan leik með Höfrungunum í dag. vísir/stefán
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og stöllur hennar í Norrköping Dolphins unnu öruggan sigur, 79-61. á Visby Ladies í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Fyrri hálfleikur var jafn en Visby leiddi með fimm stigum að honum loknum, 31-36.

Norrköping tók yfir í 3. leikhluta, vann hann 28-13 og hélt svo uppteknum hætti í 4. og síðasta leikhlutanum. Niðurstaðan 18 stiga sigur Höfrunganna, 79-61.

Sigrún spilaði í rúmar 20 mínútur, skoraði sjö stig, tók fjögur fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal boltanum í tvígang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×