Skoðun

Norrænt erindi við Afríku

Stefán Jón Hafstein skrifar
Í ár verða enn vatnaskil í þróunarsamvinnu á heimsvísu þegar Sameinuðu þjóðirnar samþykkja nýja áætlun um þau mál, sem tekur við af Þúsaldarmarkmiðunum 2000-2015. Í tilefni af sameiginlegum norrænum hátíðisdegi í Úganda sameinuðust fulltrúar Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Íslands um að vekja sérstaklega athygli á mikilvægi jafnréttis kynjanna á þeirri vegferð sem hefst með kaflaskilum. Í grein sem fulltrúar ríkjanna skrifa í úgöndsk blöð segir að kynjajafnrétti sé forsenda fyrir því að grundvallarmannréttindi séu virt. Jafnrétti hafi einnig gríðarlegan félagslegan og efnahagslegan ávinning, atbeini kvenna í hagkerfinu skipti miklu máli og framlag þeirra til velferðar fjölskyldna og samfélags sé mikilvægt. Allir eigi að njóta sama réttar, án tillits til kynferðis, aldurs, uppruna, fötlunar, trúar, kynvitundar eða kynhneigðar.

Norrænu ríkin fagna því að Úganda sé eitt af þeim ríkjum sem sett hafa jafnréttismál á oddinn í þróunaráætlun landsins til ársins 2040 og lofa að styðja við þá viðleitni. Landið hefur tekið ákveðin skref í átt til jafnréttis, hlutfall kvenna á þingi farið úr 18% í 35% á fimmtán árum og 25% ráðherra eru konur. Hins vegar er bent á þá staðreynd að fyrir hina almennu konu vanti mikið upp á. Konur taki síður mikilvægar efnahagslegar ákvarðanir en karlar og kyn- og frjósemisheilbrigði sé ábótavant. Lögleiðing úrbóta nægir ekki alltaf, þeim þarf að hrinda í framkvæmd, eins og sést af því að þótt giftingaraldur í landinu sé 18 ár samkvæmt lögum eru 40% stúlkna gefin undir lögaldri. Jafnrétti kynjanna er mál bæði kvenna og karla og verður ekki náð nema með þátttöku allra í samfélaginu eins og norræn reynsla af jafnréttisbaráttu bendir til.

Norrænu ríkin fagna því hlutverki sem Úganda hefur tekið að sér í friðargæslu í álfunni en minna einnig á að í alþjóðlegu samhengi vantar mikið upp á að samþykkt SÞ 1325 um hlutverk kvenna við úrlausn deilumála og í friðarferli hafi náð fram að ganga. Fimmtán ár eru síðan þessi samþykkt var gerð og mikilvægt að endurmeta árangur af henni nú þegar verða kaflaskil í þróunarsamvinnu í heiminum með nýjum markmiðum og nýjum leiðum.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×