Skoðun

Aldraðir eiga að fá 300 þúsund á mánuði

Björgvin Guðmundsson skrifar
Aldraðir og öryrkjar eiga siðferðilegan rétt á því að fá sömu hækkun á lífeyri sínum frá TR eins og verkafólk fær á sínum launum samkvæmt nýgerðum kjarasamningum. Fjármálaráðherra svaraði því neitandi, þegar formaður Samfylkingarinnar spurði að því á Alþingi, hvort lífeyrir yrði hækkaður til jafns við lægstu laun. Fjármálaráðherra sagði, að ríkið hefði ekki efni á því að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja! Ráðherrann gaf jafnframt í skyn, að ríkinu bæri ekki skylda til þess að hækka lífeyri jafnmikið og laun!

Lengi vel var það svo, að tilgreint var ákveðið í lögum, að lífeyrir ætti að hækka jafnmikið og lágmarkslaun. Davíð Oddsson lét sem forsætisráðherra og formaður Sjàlfstæðisflokksins fella þetta ákvæði úr lögunum. En í staðinn var sett í lögin, að við hækkun lífeyris ætti að taka mið af launaþróun en lífeyrir aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Þegar Davíð sætti gagnrýni fyrir þessa breytingu sagði hann, að þetta yrði betra fyrir lífeyrisþega. Nú væru þeir tryggðir bæði með belti og axlaböndum. Það skýtur því skökku við, að núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins reyni að ómerkja orð Davíðs og neiti að láta lífeyri hækka til jafns við lægstu laun!

Aldraðir fái 300 þúsund fyrr

Lífeyrir aldraðra og öryrkja verður að hækka í 300 þúsund kr. á mánuði eins og laun. Lögin og andi þeirra segja það. Og yfirlýsing Davíðs Oddssonar sem forsætisráðherra styður við þá túlkun. Spurningin er aðeins sú, hvort lífeyrir þurfi ekki að hækka fyrr í 300 þúsund en eftir 3 ár. Ef til vill væri eðlilegra að lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði í 300 þúsund eftir 2 ár. Neyslukönnun Hagstofunnar segir, að meðaltalsneysla einhleypinga sé 321 þúsund krónur á mánuði. En lífeyrir aldraðra einhleypinga frá TR er aðeins 192 þúsund kr. á mánuði eftir skatt. Þetta eru sambærilegar tölur. Það vantar því 129 þúsund kr. á mánuði upp á, að lífeyrir aldraðra og öryrkja frá TR nái neyslukönnun Hagstofunnar. Lífeyrisþegar geta ekki beðið í 3 ár eftir því, að sá munur verði jafnaður. Það átti að vera búið að jafna hann fyrir löngu. Það er lágmark að jafna þennan mun á 2 árum. Hækki lífeyrir um 25.000 kr. á mánuði frá 1. maí sl., um 39.500 eftir eitt ár og 64.500 eftir 2 ár hefur þessi munur verið jafnaður. Jöfnun næst fyrr, ef ríkisstjórnin stendur við loforð stjórnarflokkanna um að jafna kjaragliðnun (kjaraskerðingu) krepputímans strax. Það þýðir 45 þúsund kr. hækkun lífeyris á mánuði. Nýir kjarasamningar losa ríkisstjórnina ekki undan loforðinu. Það er kominn tími til, að ríkisstjórnin standi við gefin fyrirheit við aldraða og öryrkja.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×