Innlent

Dánarorsökin alvarleg kókaíneitrun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Konan lést á heimili sínu og barnsföður hennar í Reykjavík. Að öðru leyti tengist myndin fréttinni ekki.
Konan lést á heimili sínu og barnsföður hennar í Reykjavík. Að öðru leyti tengist myndin fréttinni ekki. Vísir/Vilhelm
Tæplega fertugur karlmaður þarf í næstu viku að taka afstöðu til ákæru um að hafa brotið gegn lífi og líkama barnsmóður sinnar miðvikudaginn 24. janúar 2018. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum.

Í ákærunni segir að höfða beri sakamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur manninum, sem búsettur er í Reykjavík en á dóma að baki fyrir ofbeldisbrot og fíkniefnamisferli, fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa látið farast fyrir að koma konunni undir læknishendur.

Konan veiktist lífshættulega og lést úr bilun á miðtaugakerfi vegna alvarlegrar kókaíneitrunar. Eins og Vísir hefur áður greint frá verður málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. september.

Grein laganna sem ákært er fyrir brot gegn er 221. grein almennra hegningarlaga sem varðar allt að tveggja ára fangelsi. Samkvæmt íslenskum lögum hvílir sú skylda á mönnum að koma náunganum til hjálpar sé hann í nauðum, eða orðrétt:

Láti maður farast fyrir að koma manni til hjálpar, sem staddur er í lífsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigði sjálfs sín eða annarra í háska, þá varðar það … 1) fangelsi allt að 2 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.

Lögregla leitaði mannsins daginn eftir að hún fannst látin. Fannst hann að kvöldi dags og var handtekinn.

Móðir mannsins tjáði fréttastofu við það tilefni að sonur hennar hefði vissulega farið af vettvangi í íbúðinni í Reykjavík umræddan dag. Það mætti þó rekja til þess að hann hefði verið á skilorði. Áður en til þess hefði komið hefði hún horft á son sinn gera allt sem hann gæti til að blása lífi í konuna á meðan hún ræddi við starfsmann Neyðarlínunnar og kom leiðbeiningum áfram á son sinn.

Maðurinn á langa brotasögu að baki og hefur hlotið þunga dóma fyrir ofbeldi. Þá hefur hann hlotið dóm fyrir að hvetja unglingsstúlku til fíkniefnaneyslu. Fyrri unnusta mannsins lést úr ofneyslu fíkniefna fyrir nokkrum árum en hún var þá rúmlega tvítug.

Að minnsta kosti tvisvar áður hafa karlmenn hlotið dóma fyrir að koma ekki ungum konum í lífshættu til aðstoðar við ofneyslu. Dæmt var í málunum árið 2004 og 2012 og voru dómarnir upp á átján mánaða fangelsi annars vegar og tíu mánaða fangelsi hins vegar.

Konan sem lést var fjögurra barna móðir og átti þrjú barnanna með ákærða.


Tengdar fréttir

Flúði vettvang við andlát

Kona á fertugsaldri fannst látin í íbúð sinni í Álftamýri í gærkvöldi en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag leitað sambýlismanns hennar sem flúði af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×