Innlent

Allt að 16 stiga hiti á morgun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Það gæti orðið ansi hlýtt á Egilsstöðum á morgun.
Það gæti orðið ansi hlýtt á Egilsstöðum á morgun. Vísir/Vilhelm

Talsverð rigning verður viðloðandi sunnanvert landið í dag eftir þurra tíð síðustu vikur. Það helst þó þurrt norðantil fram eftir degi en undir kvöld fer að rigna þar einnig, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Vindur í dag verður af austri eða suðaustri, víða á bilinu 8-13 m/s, en allhvass 13-18 m/s með suðurströndinni. Hiti 7 til 13 stig.

Á morgun er svo spáð sunnan 8-13 m/s með skúraleiðingum en bjart veður í norðausturfjórðungi landins. Búast má við að hiti þar verði allt að 16 stig þar sem best lætur.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag (uppstigningardagur):

Sunnan 8-13 m/s og skúrir, en yfirleitt léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.

Á föstudag:

Austan og síðar norðaustan 5-13 og víða bjartviðri. Skýjað við austurströndina og norðaustan 10-15 og dálítil væta þar um kvöldið. Hiti 10 til 16 stig, en svalara austast.

Á laugardag:

Norðaustanátt, víða 8-13 m/s. Rigning austantil á landinu, skýjað norðanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti frá 4 stigum á Austurlandi, upp 16 stig á Suðurlandi.

Á sunnudag:

Vaxandi suðaustanátt og þurrt veður. Fer að rigna víða um land síðdegis, fyrst syðst. Hiti 7 til 14 stig.

Á mánudag og þriðjudag:

Breytileg átt og líkur á vætu í flestum landshlutum. Heldur kólnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×