Tala látinna nú minnst 35 í Tyrklandi Eiður Þór Árnason skrifar 26. janúar 2020 11:11 Öflugir jarðskjálftar eru nokkuð algengir í Tyrklandi. Árið 1999 fórust 17.000 manns í skjálfta sem reið yfir borgina Izmit. Vísir/AP
Minnst 35 eru nú sögð látin eftir jarðskjálftann sem reið yfir Tyrkland á föstudag samkvæmt upplýsingum frá tyrkneskum yfirvöldum. Nú er talið er að yfir 1.600 manns hafi slasast í skjálftanum sem mældist 6,8 að stærð en Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti greindi fjölmiðlum frá því í dag að 45 hafi verið bjargað úr rústum bygginga. Hamfarirnar ollu mikilli eyðileggingu í bænum Sivrice þar sem byggingar hrundu og íbúar flúðu út á götur. Fólks er enn saknað á svæðinu og hafa yfir 3.500 björgunaraðilar unnið sleitulaust síðustu sólarhringa við mjög erfiðar aðstæður. Næturfrost hefur verið á svæðinu og hafa viðbragðsaðilar sett upp yfir 9.500 tjöld og dreift 17 þúsund heitum máltíðum. Talið er að 76 byggingar hafi eyðilagst í skjálftanum og þar að auki séu yfir eitt þúsund skemmdar. Svæðið sem um ræðir er um 550 kílómetra austur af höfuðborginni Ankara. Um 4000 manns búa í bænum Sivrice sem er vinsæll ferðamannastaður við Hazar-vatn.
Tyrkland Tengdar fréttir Minnst 22 látnir eftir jarðskjálftann Minnst 22 eru látnir og rúmlega eitt þúsund slasaðir eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir austurhluta Tyrklands í gær. 25. janúar 2020 13:32 Minnst fjórtán látnir í hörðum jarðskjálfta í Tyrklandi Talið er að jarðskjálftinn hafi verið 6,8 stig að stærð og að hann hafi fundist í nágrannalöndunum Sýrlandi, Georgíu og Armeníu. 24. janúar 2020 22:13 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fleiri fréttir Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sjá meira
Minnst 22 látnir eftir jarðskjálftann Minnst 22 eru látnir og rúmlega eitt þúsund slasaðir eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir austurhluta Tyrklands í gær. 25. janúar 2020 13:32
Minnst fjórtán látnir í hörðum jarðskjálfta í Tyrklandi Talið er að jarðskjálftinn hafi verið 6,8 stig að stærð og að hann hafi fundist í nágrannalöndunum Sýrlandi, Georgíu og Armeníu. 24. janúar 2020 22:13