Grunaður árásarmaður á Kópaskeri einnig á gjörgæslu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. mars 2020 14:42 Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér tilkynningu um málið fyrir skemmstu. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið annan mann með hnífi á Kópaskeri á föstudagskvöld liggur nú á gjörgæslu. Ekki var unnt að taka af honum skýrslu í gær, né heldur leiða hann fyrir dómara þar sem flytja þurfti hann rænulítinn úr fangageymslu lögreglunnar á sjúkrahús. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá lögreglu. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir rannsókn málsins enn á frumstigi og að málsatvik liggi ekki ljós fyrir. Þrennt var handtekið aðfaranótt laugardags, en nú hefur tveimur þeirra, manni og konu, verið sleppt úr haldi þar sem ekki er talið að þau tengist árásinni. Brotaþoli liggur enn á gjörgæslu og ekki hefur verið unnt að taka skýrslu af honum. Samkvæmt heimildum Vísis var hann stunginn allt að sex sinnum, en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn sem grunaður er um verknaðinn liggur einnig á gjörgæslu og er vaktaður af lögreglu. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú málið á vettvangi, en reiknað er með að rannsókninni ljúki í dag.
Lögreglumál Norðurþing Tengdar fréttir Fórnarlamb stunguárásarinnar á Kópaskeri á gjörgæslu Þrennt var handtekið vegna árásarinnar. 29. febrúar 2020 08:03 Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira
Fórnarlamb stunguárásarinnar á Kópaskeri á gjörgæslu Þrennt var handtekið vegna árásarinnar. 29. febrúar 2020 08:03