Brassar skoruðu fimm | Firmino með tvö Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. október 2020 13:16 Brassar byrja undankeppnina af krafti. Buda Mendes/Getty Images
Undankeppni fyrir HM í knattspyrnu hefst alltaf eilítið fyrr í Suður-Ameríku enda leika þar alls tíu lönd saman í riðli. Leikið er heima og að heiman. Að því loknu fara fjögur efstu liðin beint á HM en liðið í 5. sæti fer í umspil við lið úr Eyjaálfu undankeppninni. Fyrsta umferð hófst á fimmtudag en í nótt mættust Brasilía og Bólivía. Leikurinn var aldrei spennandi en heimamenn komust yfir eftir 16. mínútna leik með marki Marquinhos. Áður en flautað var til hálfleiks hafði Firmino tvöfaldað forystu heimamanna og staðan því 2-0 í hálfleik. Í þeim síðari bættu Brassarnir við þremur mörkum. Firmino bætti við sínu öðru marki strax í upphafi síðari hálfleiks. José María Carrasco varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar rúmur klukkutími var liðinni og Philippe Coutinho bætti við fimmta markinu á 73. mínútu leiksins. Reyndist það síðasta mark leiksins og lokatölur því 5-0 Brasilíu í vil sem er sem stendur á toppi riðilsins. Brasilía styrkti upp sterku liði en þeir Marquinhos og Thiago Silva voru saman í miðverðinum. Þá voru Casemiro og Phillipe Coutinho á miðjunni ásamt Douglas Luiz, leikmanni Aston Villa. Neymar var svo úti á vinstri vængnum á meðan Firmino var fremstur. Richarlison og Alex Telles, nýjasti leikmaður Manchester United, komu svo inn af varamannabekknum.
Fótbolti Tengdar fréttir Messi kom að sínu þúsundasta marki og tryggði Argentínu sigurinn í nótt Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu voru ekki sannfærandi í nótt en mark frá Messi bjargaði stigunum þremur í hús. 9. október 2020 07:30 Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Sjá meira
Messi kom að sínu þúsundasta marki og tryggði Argentínu sigurinn í nótt Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu voru ekki sannfærandi í nótt en mark frá Messi bjargaði stigunum þremur í hús. 9. október 2020 07:30