Innlent

Hvass­viðri og úr­koma og gular við­varanir í gildi víða um land

Atli Ísleifsson skrifar
Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið í dag, eins og það leit út klukkan 7 í morgun.
Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið í dag, eins og það leit út klukkan 7 í morgun. Veðurstofan

Veðurstofan spáir að það gangi í sunnan 13 til 23 metra á sekúndu með morgninum þar sem hvassast í vindstrengjum norðvestanlands.

Má búast við snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en víða rigningu á láglendi, og þurrt um landið norðaustanvert. Hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig.

Gular viðvaranir eru í gildi á sunnan- og vestanverðu landinu í dag, en þar eru líkur á að færð spillist, sér í lagi á fjallvegum. Mun hægari suðlæg átt vestantil verður í kvöld með snjókomu og kólnandi veðri.

„Hæg suðvestanátt og éljagangur í fyrramálið, en áfram hvasst og snjókoma eða slydda með köflum austanlands fram eftir degi. Vægt frost, en hiti 1 til 5 stig austantil. Vaxandi suðvestanátt eftir hádegi á morgun, 10-18 annað kvöld, og styttir upp og kólnar austanlands.

Á sunnudag kemur svo næsta lægð með hvassviðri eða storm og talsverða hláku,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings, en veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir landið allt á sunnudag.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og él, en 15-23 og snjókoma eða slydda með köflum austanlands fram eftir degi. Vægt frost, en hiti 1 til 5 stig austantil. Bætir í vind um kvöldið, og rofar til og kólnar austanlands.

Á sunnudag: Gengur í sunnan hvassviðri eða storm með snjókomu eða slyddu, en síðar hláka um allt land með talsverðri rigningu sunnan og vestantil. Úrkomulítið á NA- og A-landi. Hiti 1 til 7 stig síðdegis.

Á mánudag: Allhvöss eða hvöss suðvestanátt og él eða slydduél, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti um og yfir frostmarki.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Minnkandi suðvestanátt. Él eða slydduél sunnan- og vestanlands, en áfram bjart norðaustantil. Vægt frost, en hiti að 4 stigum við suðurströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×