West Ham upp fyrir Liverpool

Anton Ingi Leifsson skrifar
West Ham fagnar í kvöld.
West Ham fagnar í kvöld. Glyn Kirk/Getty

West Ham vann 3-0 sigur á Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í enska boltanum. VAR kom mikið við sögu í leiknum.

Dómari leiksins, Simon Hooper, benti á vítapunktinn eftir fimm mínútur er honum fannst Enda Stevens brjóta á Craig Dawson. Eftir skoðun var þá vítið tekið til baka.

Aftur benti Hooper á vítapunktinn á 41. mínútu. Jesse Lingard fór þá niður í teignum og West Ham fékk fyrstu vítaspyrnu sína á leiktíðinni. Declan Rice skoraði af öryggi.

Issa Diop tvöfaldaði forystuna fyrir West Ham á 58. mínútu en skömmu áður hafði Lukasz Fabianski varið vel frá David McGoldrick.

Mark Diop kom eftir hornspyrnu en ekkert lið hefur skorað fleiri mörk eftir fast leikatriði en West Ham frá því í sumar.

Ryan Fredericks bætti við þriðja mark West Ham á sjöttu mínútu uppbótartíma og lokatölur 3-0.

West Ham er í fjórða sætinu með 42 stig, tveimur stigum meira en Liverpool sem er í fimmta sætinu.

Sheffield er á botninum með ellefu stig, fjórtán stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira