Everton heldur áfram að misstíga sig á heimavelli Anton Ingi Leifsson skrifar 5. apríl 2021 19:00 Gylfi í baráttunni við Wilfried Zaha í kvöld. Clive Brunskill/Getty Images Everton gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace í fyrsta leiknum liðsins eftir landsleikjahlé. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn af bekknum í fyrri hálfleik og spilaði í klukkutíma. Everton hafði fyrir leikinn í kvöld tapað þremur leikjum í röð en liðið hefur átt erfitt uppdráttar á heimavelli í vetur. Staðan var markalaus í hálfleik en James Rodriguez kom Everton yfir á 56. mínútu eftir stoðsendingu fyrirliðans Seamus Coleman. Gestirnir jöfnuðu hins vegar fjórum mínútum fyrir leikslok. Þar var að verki Michy Bathusyai og lokatölur 1-1. Gylfi Þór byrjaði á bekknum en kom inn á eftir rúmlega hálftíma leik er Andre Gomes meiddist. Everton er í áttunda sætinu með 47 stig, tveimur stigum á eftir Tottenham sem er í fimmta sætinu. Palace er í tólfta sætinu með 36 stig. FT! Everton 1-1 Crystal Palace.Points shared. Everton's bid for European football takes another hit.#EVECRY #bbcfootball— BBC Sport (@BBCSport) April 5, 2021 Enski boltinn