Saga Uhunoma er átakanleg en hann segist hafa flúið Nígeríu vegna alvarlegs ofbeldis og ofsókna af hálfu föður síns, sem sé vel tengdur inn í nígerísku lögregluna. Faðirinn hafi jafnframt ráðið móður hans bana. Þá kveðst Uhunoma þolandi mansals og kynferðisofbeldis, auk þess sem hann hefur glímt við mikil andleg veikindi.
Uhunoma sagði sögu sína í kvöldfréttum Stöðvar 2 í febrúar. Horfa má á viðtalið hér fyrir neðan.
Uhunoma var synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi hér á landi sem hann sótti um á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Magnús D. Norðdahl lögmaður hans skilaði inn endurupptökubeiðni í málinu í febrúar.
Fær þrjátíu daga til að yfirgefa landið
Í úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem kveðinn var upp á föstudag, er fallist á að taka mál Uhunoma upp aftur. Nefndin staðfesti hins vegar eftir sem áður að synja honum um vernd. Afstaða stjórnvalda í málinu er því óbreytt, að sögn Magnúsar, en Uhunoma hafa nú verið gefnir þrjátíu dagar til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Að þeim tíma liðnum er hægt að vísa honum úr landi.
Mál Uhunoma verður þingfest í héraðsdómi á þriðjudag, þar sem krafist verður ógildingar hins nýja úrskurðar. Þar verður einnig farið fram á frestun réttaráhrifa á meðan mál Uhunoma er rekið fyrir dómstólum, sem gæti tekið allt að tólf mánuði.
„Það er með vísan til þess að andlegri heilsu hans hafi hnignað til muna,“ segir Magnús í samtali við Vísi.

Mikið áfall þegar úrskurðurinn var kveðinn upp
Uhunoma kom hingað til lands haustið 2019. Hann hefur eignast marga vini á Íslandi og hefur lengst af búið hjá íslenskri fjölskyldu í miðbænum. Vinir Uhunoma, þau Tómas Manoury, Hallgrímur Helgason, Morgane Priet-Mahéo, Ívar Pétur Kjartansson og Magnús Tryggvason Eliassen segja frá stöðu máls Uhunoma í aðsendri grein sem birtist meðal annars á Vísi í dag.
Þar segir að kærunefnd útlendingamála meti sögu Uhunoma „ótrúverðuga“ og aðstæður í heimalandinu Nígeríu „ekki nægilega „slæmar““ til að réttlæta alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á Íslandi. Úrskurðurinn hefur ekki verið birtur opinberlega og verður ekki afhentur fjölmiðlum, samkvæmt upplýsingum frá Magnúsi.

Þá segja vinir Uhunoma í grein sinni að hann hafi undanfarið sótt aðstoð hjá Stígamótum, samtökum fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Það hafi reynst honum vel og samtökin stutt frásögn hans með skýrslu, sem borist hafi kærunefndinni.
Það hafi svo verið Uhunoma mikið áfall þegar úrskurður kærunefndar var kveðinn upp á föstudag.
„Hann kveið úrskurðarins og svaf lítið sem ekkert dagana á undan og alls ekkert í kjölfarið. Á sunnudag var hann svo lagður inn á bráðageðdeild í mjög slæmu ástandi, illa haldinn af þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun auk þess sem talin var hætta á því að hann veitti sjálfum sér skaða,“ segja vinirnir í pistli sínum.
Þá vísa þau til þess að safnast hafi tæplega 47 þúsund undirskriftir þar sem brottvísun Uhunoma var mótmælt. Þau kalla eftir því að fallið verði frá þeirri ákvörðun.
„Í aðdraganda alþingiskosninga veltum við undirrituð fyrir okkur hvað mikið þurfi til að stjórnvöld hlusti og virði vilja þjóðarinnar í málum sem þessum? Það samræmist ekki yfirlýstri stefnu stjórnvalda að vísa úr landi ungum þolanda mansals, sem hefur verið fylgdarlaus á flótta frá 14 ára aldri.“