Sjáðu dramatísk jöfnunarmörk, Sævar Atla afgreiða FH og öll hin mörkin í sjöttu umferðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2021 08:01 Sævar Atli Magnússon og félagar í Leiknisliðinu eru erfiðir við að eiga upp í Efra-Breiðholti. Vísir/Hulda Margrét Sjöttu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum þar sem Fylkir og HK náðu jafntefli á útivelli en nýliðar Leiknis unnu athyglisverðan heimasigur á FH.
Það var mikið fjör í lokin í Víkinni þar sem þrjú mörk voru skoruð á síðustu tíu mínútum leiksins. HK náði líka að tryggja sér stig í lok leiks og halda því áfram að taka stig af KR-ingum. Víkingum fengu á sig jöfnunarmark á móti Fylki og náðu því ekki að jafna við Valsmenn á toppnum. Jöfnunarmark Fylkismanna var glæsilegur skalli frá Nikulás Val Gunnarssyni. Djair Terraii Carl Parfitt-Williams kom Fylki í 1-0 með skoti utan af kanti en þeir Nikolaj Andreas Hansen og Helgi Guðjónsson snéru leiknum við með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla. HK náði líka að jafna metin á móti KR á KR-velli eftir að Atli Sigurjónsson hafði komið KR-ingum yfir í fyrri hálfleiknum. Stefan Alexander Ljubicic jafnaði metin sex mínútum fyrir leikslok. Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, skoraði bæði mörkin þegar nýliðarnir unnu 2-1 sigur á FH en Matthías Vilhjálmsson hafði komið FH yfir í 1-0. Kvöldið áður unnu Valur, KA og Breiðablik útisigra og eru þau öll meðal fimm efstu liða deildarinnar. Valsmenn eru með tveggja stiga forskot á Víking og KA-menn svo einu stigi á eftir. Blikar eru búnir að ná FH að stigum með tveimur sigurleikjum í röð en FH-liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð. Alls voru skoruð átján mörk í sjöttu umferðinni og nú má sjá þau öll í myndbandinu hér fyrir neðan. Klippa: Öll mörkin í sjöttu umferð Pepsi Max karla
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, píla, snóker og fótbolti Sport Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Sjá meira