Hafrannsóknarstofnunin ráðlagði veiðar á tæplega 128 þúsund tonnum af loðnu í fyrra en tvö ár þar áður var ekkert veitt. Hafrannsóknunarstofnun gerði stofnmælingu á loðnu á skipinu Árna Friðrikssyni. En hvað veldur því að stofninn er nú orðinn svona stór?
Það liggur ekki alveg fyrir, að sögn Birkis Bárðarsonar, fiskifræðings hjá Hafrannsóknarstofnun og leiðangursstjóra stofnmælingarleiðangursins.
„Það liggur beint við að hugsa um umhverfið, hitastig. Við höfum séð frá áramótum hátt hitastig fyrir norðan land þar sem loðnan heldur sig, það hefur aðeins gengið til baka síðastliðin ár.“

Loðnuvertíðin hefst alla jafna um áramót en vegna þess hversu mikill kvótinn er nú gæti þurft að fara fyrr af stað en ella. Og ljóst er að ráðgjöfin í morgun er þegar byrjuð að hafa áhrif - hlutabréf útgerðarfélaganna Brims og Síldarvinnslunnar ruku upp eftir að ráðgjöfin var tilkynnt í morgun. Bréf í Brimi hækkuðu um 9,09 prósent í viðskiptum dagsins og um 9,14 prósent hjá Síldarvinnslunni. Reiknað er með að ráðgjöfin veiti innspýtingu í þjóðarbúið.

„Miðað við hvað síðasta vertíð gaf mikið með 128 þúsund tonnum þá erum við að mæla með 904 þúsund tonna veiði núna þannig það hlýtur að vera gríðarlega mikilvægt fyrir okkur,“ segir Birkir en áréttar að hann sé fiskifræðingur, ekki sérfræðingur í efnahagsmálum.
„Og þessar byggðir þar sem loðnan er hornsteinninn í atvinnulífinu á ákveðnum árstímum,“ bætir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, við.
Og nánasta framtíð er björt. Svokölluð ungloðnuvísitala, það er magn eins árs fisks sem mældist í stofnmælingaleiðangrinum, er sú þriðja hæsta frá upphafi mælinga. Þetta þýði að stofninn sé að taka hraustlega við sér og að veitt verði á þarnæstu vertíð.
„Við eigum von á því að fiskveiðiárið 2022-23 verði gott, hvað gerist svo í framhaldinu af því er algjör óvissa um,“ segir Þorsteinn.