Segja Aron Jóhannsson vera á leið til Vals Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. október 2021 19:01 Aron Jóhannsson virðist vera á leið heim. lechpoznan.pl/Przemysław Szyszka Svo virðist sem framherjinn Aron Jóhannsson muni leika með Val í efstu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.
Hinn þrítugi Aron Jóhannsson virðist vera á heimleið eftir atvinnumannaferil í Danmörku, Hollandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi. Heimildir Fréttablaðsins herma að framherjinn knái muni leika með Val næsta sumar. Aron lék síðast með Lech Poznań í Póllandi en samningi hans þar var rift sökum meiðsla á öxl. Hann er því samningslaus og hefur verið orðaður við fjölda liða hér heima sem og ytra. Eftir að hafa verið orðaður við Íslandsmeistara Víkings, Breiðablik, FH og Val virðist Aron hafa ákveðið að semja á Hlíðarenda. Hann og Patrick Pedersen munu því berjast um framherjastöðu Valsmanna á næstu leiktíð. Aron skoraði alls 13 mörk í 37 leikjum fyrir Fjölni ásamt að gera það gott í Danmörku og Hollandi áður en meiðsli fóru að setja strik í reikninginn hjá honum. Hann á einnig að baki 10 leiki fyrir U-21 árs landslið Íslands áður en hann ákvað að söðla um og spila fyrir bandaríska landsliðið, þar spilaði hann 19 leiki og skoraði fjögur mörk.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Valur Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira