Innlent

Kvöld­fréttir Stöðvar 2

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir les fréttir í kvöld.
Erla Björg Gunnarsdóttir les fréttir í kvöld.

Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo hún náist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt.

Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við formann Sambands íslenskra sveitarfélaga í beinni.

Snarpur jarðskjálfti fannst vel á suðvesturhorni landsins í morgun. Upptökin voru nær höfuðborgarsvæðinu en oft áður. Við ræðum við Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing í beinni um stöðuna á Reykjanesskaga og hvort virknin sé mögulega að færast til.

Þá verðum við einnig í beinni frá Austurvelli þar sem aðgerðasinnar hafa nú dvalið í tjaldbúðum í eina viku en þeir vilja að stjórnvöld hjálpi dvalarleyfishöfum á Gasa að komast af svæðinu. Mótmælendur hafa fengið leyfi til þess að vera á Austurvelli í tvær vikur til viðbótar og við heyrum í þeim um framhaldið.

Þá verður rætt við í Arnari Þór Jónssyni lögmanni sem tilkynnti um forsetaframboð sitt í dag og við heyrum í borgarbúa sem er ósáttur við að ferðamenn í Airbnb-íbúðum fylli tunnurnar af óflokkuðu sorpi.

Í Íslandi í dag hittum við mæðgurnar Birgittu Líf Björnsdóttur og Hafdísi Jónsdóttur sem luma á ýmsum ráðum fyrir þá sem vilja koma sér í form á nýju ári.

Þetta og fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar og Stöðvar 2 klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×