Bjarni Ófeigur frá Þýskalandi til KA Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2024 10:18 Bjarni Ófeigur Valdimarsson er á leið norður í sumar. KA Handknattleikslið KA hefur tryggt sér góðan liðsstyrk fyrir næstu leiktíðir því Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur skrifað undir samning til þriggja ára við félagið.
Bjarni er 25 ára gamall og leikur í stöðu vinstri skyttu en er auk þess öflugur varnarmaður. Hann er í dag leikmaður Minden, sem er í fallbaráttu þýsku 2. deildarinnar, og hefur skorað 64 mörk og átt 41 stoðsendingu í 23 leikjum fyrir liðið í vetur. Áður lék Bjarni í Svíþjóð, með Skövde, og spilaði tvívegis til úrslita um sænska meistaratitilinn, árin 2021 og 2022. Bjarni lék með yngri landsliðum Íslands og var einnig kallaður inn í A-landsliðið á EM í Ungverjalandi árið 2022, eins og reyndar óvenju margir leikmenn vegna kórónuveirufaraldursins. „Ég er ótrúlega spenntur að taka slaginn með KA næstu árin þar sem að ég hef bullandi trú á þessu liði og KA sem félagi. Hlakka til að mæta norður og spila í gulu treyjunni, áfram KA!“ segir Bjarni í skilaboðum á heimasíðu KA. Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari KA-manna, er að vonum ánægður með liðsstyrkinn sem KA fær næsta sumar: „Mér líst ótrúlega vel á að fá Bjarna norður og mjög spenntur að vinna með honum. Þetta er leikmaður á besta aldri og er öflugur á báðum endum vallarins þannig að já, ég er mjög spenntur að vinna með honum. Ég er handviss um að hann mun koma flottur inn í það verkefni sem við erum að vinna hér í KA með okkar unga lið. Ég hef bara heyrt góða hluti af Bjarna, hann æfir mjög vel og er með gott hugarfar. Hann mun hjálpa ungu strákunum okkar, hefur verið að spila sem atvinnumaður og veit hvað þetta snýst um. Þannig að við bindum miklar vonir við komu hans hingað norður,“ segir Halldór.
KA Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira