Miklar tímamótaákvarðanir í samgöngusáttmála Heimir Már Pétursson skrifar 22. ágúst 2024 19:31 Nokkurn veginn svona gæti Miklabrautin til móts við Skeifuna litið út eftir að framkvæmdum lýkur. Grafík/Efla Vegamálastjóri segir ákvörðun um göng undir Miklubraut og aðrar stórframkvæmdir í samgöngusáttmála marka mikil tímamót. Nú geti raunverulegur undirbúningur hafist. Verkefni sáttmálans muni gerbreyta samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. „
Já, það er mikill léttir. Þetta var bara gleðidagur í gær. Fá botn í þessa stefnumótun ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri. Óvissu um risaframkvæmdir upp á 311 milljarða á næstu 16 árum hefur verið eytt, þótt nú þegar hafi verið ráðist í töluverðar framkvæmdir samkvæmt samgöngusáttmálanum sem fyrst var undirritaður árið 2019. Hér sést hvernig framlenging á Arnarnesveginum frá Salahverfi í Kópavogi mun líta út.Grafík/Efla Framlenging Arnarnesvegar um tæpa tvo kílómetra úr Salahverfi í Kópavogi er hluti af samgöngusáttmálanum á höfuðborgarsvæðinu. Vegurinn heldur áfram þaðan og kemur niður hinum megin við Fellahverfið í Breiðholti. Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri segir þær ákvarðanir sem koma fram í samgöngusáttmála marki mikil tímamót.Stöð 2/Arnar „Við áætlum að Arnarnesveginum ljúki haustið 2026. Það er bara stutt í það,“ segir vegamálastjóri. En auk akvegarins verða einnig lagðir 2,6 kílómetrar af hjóla- og göngustígum með þremur hjólabrúm. Ein stærstu tímamótin felast síðan í ákvörðun um að leggja jarðgöng undir Miklubraut allt frá Skeifunni að Landspítalanum og suður undir Kringlumýrarbraut frá gatnamótunum við Miklubraut. „Það er rosalega mikilvægt að það skuli vera búið að taka þessa ákvörðun. Okkar vinna hefur fram að þessu snúist um að meta þessa valkosti. Annars vegar stokk og hins vegar jarðgöng. Það er alveg ljóst að mjög fljótlega eftir að við byrjuðum þá vinnu fóru að renna tvær grímur á menn, varðandi stokkinn,“ segir Bergþóra. Enda hefði sú framkvæmd haft í för með sér gífurlegt rask á löngum framkvæmdatíma á fjölförnustu samgönguæð borgarinnar. Bergþóra segir að nú geti mikil undirbúnings- og skipulagsvinna hafist áður en ráðist verði í framkvæmdir á seinni hluta áætlunarinnar. „Niðurstaðan var líka sú að þessi lausn er betri fyrir alla samgöngumáta. Við erum að fá meiri framfarir fyrir alla samgöngumáta í þessari lausn en þeirri sem upphaflega var skoðuð,“ segir vegamálastjóri. Þar með breytist allt landslagið ofanjarðar með rólegri borgargötu, borgarlínu ásamt göngu og hjólastígum. Og þá eru það umbyltingarnar á Sæbraut sem fer að hluta í stokk og tengist síðan áformum um Sundabraut. „Það verkefni er komið lengra. Forhönnun er búinn og mat á umhverfisáhrifum klárast nú fyrir jól. Síðan er verið að vinna samhliða að skipulagsmálum. Og við þurfum að horfa til þess að kaupa þarna upp land því það þarf að gera hjáleið þegar þetta fer svo í framkvæmd.“ Hvenær sérðu það verkefni hugsanlega fara af stað? „Við reiknum með að það fari af stað árið 2027,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir.
Borgarlína Samgöngur Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Sveitarstjórnarmál Reykjavík Alþingi Tengdar fréttir Áskorun að fá mannafla í allar framkvæmdir samgöngusáttmála Forsætisráðherra segir það geta verið áskorun að fá mannafla í allar þær miklu framkvæmdir sem fyrirhugaðar væru á næstu sextán árum samkvæmt uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þrátt fyrir mikla pólitíska samstöðu um markmið sáttmálans verði menn að hafa burði til að ræða einstakar framkvæmdir innan hans. 22. ágúst 2024 11:57 Forsætisráðherra segir sátt ríkja um samgöngusáttmála Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. 21. ágúst 2024 19:20 Borgarlína í grunninn bara betri strætó Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að verið sé að mæta væntingum íbúa um greiðari samgöngur fyrir alla með nýjum samgöngusáttmála. Hann segir að höfuðborgarsvæðið sé í bullandi samkeppni við borgir um heim allan um fólk, og tryggja þurfi samkeppnishæfni svæðisins. Einnig sé Borgarlína í grunninn bara strætó. 21. ágúst 2024 17:09 Samgöngusáttmálinn taki á mikilli innviðaskuld við höfuðborgarsvæðið Uppfærður samgöngusáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið verður kynntur opinberlega á morgun. Innviðaráðherra segir algera samstöðu ríkja um sáttmálann innan ríkisstjórnarinnar og kannast ekki við að kostnaður við hann hafi tvöfaldast, eins og sumir hafi fullyrt en umfang sáttmálans hafi aukist. 20. ágúst 2024 13:18 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira
Áskorun að fá mannafla í allar framkvæmdir samgöngusáttmála Forsætisráðherra segir það geta verið áskorun að fá mannafla í allar þær miklu framkvæmdir sem fyrirhugaðar væru á næstu sextán árum samkvæmt uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þrátt fyrir mikla pólitíska samstöðu um markmið sáttmálans verði menn að hafa burði til að ræða einstakar framkvæmdir innan hans. 22. ágúst 2024 11:57
Forsætisráðherra segir sátt ríkja um samgöngusáttmála Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. 21. ágúst 2024 19:20
Borgarlína í grunninn bara betri strætó Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að verið sé að mæta væntingum íbúa um greiðari samgöngur fyrir alla með nýjum samgöngusáttmála. Hann segir að höfuðborgarsvæðið sé í bullandi samkeppni við borgir um heim allan um fólk, og tryggja þurfi samkeppnishæfni svæðisins. Einnig sé Borgarlína í grunninn bara strætó. 21. ágúst 2024 17:09
Samgöngusáttmálinn taki á mikilli innviðaskuld við höfuðborgarsvæðið Uppfærður samgöngusáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið verður kynntur opinberlega á morgun. Innviðaráðherra segir algera samstöðu ríkja um sáttmálann innan ríkisstjórnarinnar og kannast ekki við að kostnaður við hann hafi tvöfaldast, eins og sumir hafi fullyrt en umfang sáttmálans hafi aukist. 20. ágúst 2024 13:18