Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2025 11:47 Magnús Orri Schram er nýr formaður knattspyrnudeildar KR. Aðsend Magnús Orri Schram er nýr formaður knattspyrnudeildar KR. Hann hlaut kjör á aðalfundi deildarinnar í gær og tekur við Páli Kristjánssyni.
Líkt og greint var frá á Vísi í vetur hugðist Páll stíga til hliðar. Vísir greindi frá því þá að Magnús Orri væri líklegur til að taka við. Magnús Orri, sem sat meðal annars á þingi fyrir Samfylkinguna 2009 til 2013, hefur nú formlega tekið við af Páli. Hann snýr aftur í KR eftir að hafa verið framkvæmdastjóri félagsins frá 1999 til 2000. Einhverjar breytingar verða á stjórninni. Athafnamaðurinn Sindri Snær Jensson er ekki í nýrri stjórn og þau Jóhann G. Jóhannsson, Kristján Schram, Valdís Arnórsdóttir og Valgerður Erlingsdóttir stíga einnig til hliðar. Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, er áfram í stjórninni og fyrrum landsliðsmaðurinn Indriði Sigurðsson kemur inn eftir að hafa verið varamaður í síðustu stjórn. Baldur Stefánsson, Bjarki Pjetursson, Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Ása Björnsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Haukur Ingi Guðnason og Hildur Margrét Nielsen manna þá einnig stjórn deildarinnar. Guðlaug og Guðrún Sóley léku báðar um árabil með kvennaliði félagsins og eiga fjölda landsleikja að baki fyrir Íslands hönd. Haukur Ingi lék þá um skamma hríð með KR en var einnig leikmaður Liverpool um tíma. Hann spilaði lengst af með Keflavík og Fylki hér á landi. Ný stjórn knattspyrnudeildar KR: Magnús Orri Marínarson Schram (formaður) Baldur Stefánsson Bjarki Pjetursson Einar Örn Ólafsson Guðlaug Jónsdóttir Guðrún Ása Björnsdóttir Guðrún Sóley Gunnarsdóttir Haukur Ingi Guðnason Hildur Margrét Nielsen Indriði Sigurðsson
KR Besta deild karla Lengjudeild kvenna Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira